Morgunblaðið - 05.05.2022, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
Við skoðum glæsilegustu miðalda
borgir Evrópu frá11. og 12. öld
Tallinn og Riga, kynnumst mið-
aldastemningu sem er engri lík.
Borgir sem eru á minjaskrá
Unesco, miðstöð menningar og
lista við Eistrasaltið.
Á vegi okkar verða m.a. dóm-
kirkjur, þröngar steinilagðar
götur, hallir, kastalar, fallegar
sveitir og sveitaþorp með bros-
andi heimamönnum.
Síðumúli 29, 108 Reykjavík | Sími 588 8900
info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Eistland og Lettland
Innifalið í verði er:
• Flug ásamt sköttum og gjöldum
• Allur akstur skv. dagskrá
• Gisting með morgunmat
• 6 X hádegisverður
• Aðgangur að söfnum þar sem við
á; Rundale höll, Bauska kastalinn,
Palmse hefðarsetur, Þjóðmin-
jasafnið, Cesis kastali, Sovéska
neðanjarðarbyrgið
• Vínsmökkun í Lahema þjóðgarði-
num
• Sigling um síki Riga og á ánni
Daugava
• Íslenskur fararstjóri auk
enskumælandi fararstjóra
Stígðu aftur í miðaldir
299.700
á mann í 2ja manna herbergi
6.-13. júlí
2022
Dekkjaverkstæðin hafa enn í nægu að snúast við að
koma bílunum á sumardekk. Hér gerir Þórður Þrast-
arson á dekkjaverkstæði Kletts í Hátúni eitt sumar-
dekkið klárt. Frá 15. apríl hefur verið óheimilt að aka á
nagladekkjum en lögreglan er þó ekki farin að sekta
ökumenn. Guðbrandur Sigurðsson, umferðardeild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir vel fylgst með
stöðunni. Ekki verði sektað í þessari viku en staðan
metin í þeirri næstu. Hvetur Guðbrandur ökumenn til
að skipta nagladekkjunum út en lögreglan geri sér vel
grein fyrir að erfitt geti reynst að fá tíma í dekkjaskipti
á háannatíma.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Enn að skipta en stutt í sektir
Ragnhildur Þrastardóttir
Jóhann Ólafsson
Freyr Bjarnason
Seðlabankinn kynnti mestu stýri-
vaxtahækkun frá hruni í gær. Nemur
hún einni prósentu og eru meginvext-
ir bankans nú 3,75%. Síðast var sam-
bærileg hækkun kynnt árið 2008.
Vaxtahækkunin er viðbragð við
mikilli hækkun fasteignaverðs og
þeirri 7,2% verðbólgu sem mældist í
síðasta mánuði. Er það mesta verð-
bólga sem mælst hefur síðan í maí-
mánuði árið 2010.
Verðbólguvæntingar hafa hækkað
á alla mælikvarða og spáir Seðlabank-
inn 8% verðbólgu á þriðja ársfjórð-
ungi. Er það 2,8% meiri verðbólga en
bankinn spáði í febrúar.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
segir í samtali við Morgunblaðið að
hann telji ekki að einstaklingar muni
missa húsnæði sitt vegna hækkunar-
innar þó svo að hún muni leiða til
hærri afborgana af húsnæðislánum
með breytilegum vöxtum. Hann
bendir á að heimilin í landinu hafi
aldrei staðið jafn vel ef litið er til
kaupmáttar og eignastöðu. Þannig
hafi það ekki verið í kjölfar hrunsins
þegar atvinnuleysi var mikið og
margir voru með verðtryggð lán.
„Ég hef fremur áhyggjur af þeim
sem komast ekki inn á markaðinn,“
segir Ásgeir.
„Staða á fasteignamarkaði er farin
að verða mjög ráðandi þáttur varð-
andi lífskjör í landinu. Þar er fólk í
mjög misjafnri stöðu og það er
áhyggjuefni.“
Spjótin beinast að stjórnvöldum
Drífa Snædal, forseti Alþýðusam-
bands Íslands, segir hækkunina
koma beint við pyngjur landsmanna,
sérstaklega í formi hækkunar á hús-
næðislánum.
Að sögn Drífu munu þessar hækk-
anir hafa áhrif á kjarasamninga, sem
eru lausir í haust. „Öll spjót standa á
stjórnvöldum að bregðast við þessu.“
Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og
viðskiptaráðherra, segir bankann ein-
faldlega vera að sinna skyldu sinni.
„Í fyrsta lagi þarf vinnumarkaður-
inn að líta til þessa veruleika ásamt
stjórnendum fyrirtækja og ganga
fram með góðu fordæmi. Í öðru lagi
þurfa opinber fjármál að vera að-
haldssöm a.m.k næstu 18 mánuði. Í
þriðja lagi þarf að fylgjast náið með
þróun verðlags, þ.e. að fyrirtæki og
þjónustuaðilar hækki ekki verð um-
fram það sem eðlilegt getur talist.
Samkeppniseftirlitið hefur þegar haf-
ið þá vinnu og fagna ég henni mjög.
Að lokum þá verður að byggja meira.
Stór þáttur í hækkun vísitölu neyslu-
verðs er framboðsskortur á hús-
næði,“ sagði Lilja.
Sterk skilaboð
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að Seðlabankinn sendi mjög
sterk skilaboð til aðila vinnumarkað-
arins með sinni ákvörðun. „Og ekki
síður að senda sterk skilaboð til hins
opinbera um að auka aðhaldið enn
frekar, að öðrum kosti muni Seðla-
bankinn verða nauðbeygður til að
bregðast við,“ sagði Halldór.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bankafundur Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, í forgrunni, og Þórarinn G.
Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans kynntu hækkun vaxta í gær.
Stýrivextir hækkaðir um 1%
- Mesta stýrivaxtahækkun frá hruni - Snertir pyngjur landans - Hið opinbera þarf að auka aðhald
Í dag eru níu dagar til sveitar-
stjórnarkosninga, en Morgunblaðið
flytur fréttir af kosningabarátt-
unni hringinn um landið, þar á
meðal með sérstöku kosn-
ingahlaðvarpi, þar sem rætt hefur
verið við frambjóðendur og kjós-
endur í helstu sveitarfélögum. Á
lokasprettinum er enn bætt í, en
fram að kosningum verða daglega
birtar oddvitakappræður Dagmála
úr stærstu sveitarfélögum. Í dag
birtast þær fyrstu, frá Akureyri.
Hér til hliðar sjást þau Brynjólfur
Ingvarsson (F), Jana Salóme Ingi-
bjargar Jósepsdóttir (V) og Hlynur
Jóhannesson (M) sitja fyrir svörum
hjá blaðamönnunum Andrési
Magnússyni og Stefáni Einari Stef-
ánssyni. Morgunblaðið/Ágúst Óliver
Oddvita-
kappræður í
Dagmálum