Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
SÓLA zip-off göngubuxur
Kr. 17.990.-
Þín útivist - þín ánægja
DÖGG regnjakki
Kr. 11 990 -
BRIM regnjakki
Kr 8 990 -
25%
afsláttur
af regnkápum, hettupeysum
og göngubuxum
. .
RÖKKVI göngubuxur
Kr. 11.990.-
JÖKULL hettupeysa
Kr. 9.990.-
HVALFJÖRÐUR hettupeysa
Kr. 11.990.-
SALKA
göngubuxur
Kr. 9.990.-
LYNG
Kr. 1
ullarsokkar
.590.- . . .
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
F
ólk úr öllum stéttum hef-
ur alltaf sótt í að
skyggnast á bak við
tjöldin með Tarot-
spilum. Fólk hefur
áhuga á að rannsaka á hvaða leið það
er í lífinu, hvort og hvað því yfirsést,
hvort það geti bætt sig á einhverjum
sviðum og svo framvegis,“ segir Guð-
rún Tinna Thorlacius, markþjálfi og
sjósundskona, en hún býður upp á
námskeið í lestri Tarotspila á netinu.
Tinna hefur nýtt sér spilin á marg-
víslegan hátt í yfir 30 ár.
„Ég byrjaði að nota Tarotspil
sem unglingur því æskuvinkona mín
átti slík spil, en hún er löngu hætt
slíku grúski, ég hélt því aftur á móti
áfram. Við erum nokkrar æsku-
vinkonur sem höfum alla tíð hist
reglulega og köllum okkur Nornahóp.
Við höfum haldið Tarotinu lifandi
meðal okkar, því kúnstin er að halda
áfram grúskinu. Hjá mér varð þetta
alveg óvart eitthvað sem hægt er að
miðla til annarra, það var ekki planið
en það er eftirspurn eftir því,“ segir
Tinna og bætir við að Tarotspilin séu
ákveðið verkfæri til að skilja hvar við
stöndum í lífinu hverju sinni.
„Ég nota Tarotspilin mikið til að
rannsaka, til að fá vísbendingar í
gegnum spilin um eitthvað sem við
vissum ekki í meðvitund og hvernig
það situr í okkur. Við erum alltaf í
þessu samtali að leita að vísbend-
ingum um hvar við getum stækkað
þægindarammann okkar, gert betur,
til að fá innsæi í lífið. Að leggja Tarot-
spil og lesa í þau er ekki spádómur,
eins og margir halda, heldur frekar
sjálfsskoðun. Hér áður fyrr fór fólk til
spákvenna til að heyra um væntan-
legan maka og eða barneignir, ég er
ekki mikið að nota Tarotspilin þann-
ig, heldur er þetta meira samtal við
innsæið okkar og leiðbeining um að
virkja það. Á námskeiðunum er ég að
kenna fólki hvernig það getur nýtt
sér Tarotspilin sem verkfæri til þess
arna.“
Gleði fylgir nýrri vegferð
Tinna segir að í Tarotspila-
stokknum séu m.a. örlagaspil, en þau
geyma stóru leyndarmálin og eru
mikilvægustu spilin í stokknum.
„Þau eru 22 og heita meðal ann-
ars Sólin, Stjarnan, Turninn, Dauð-
inn og svo framvegis. Þessi spil
geyma þroskasögu sálarinnar sem
við könnumst öll við, þessa reynslu
sem við göngum í gegnum sem mann-
eskjur, að koma ósnortin og saklaus
inn í lífið eins og lamb að vori, en spil
núll stendur einmitt fyrir það og heit-
ir Fíflið. Við lesum í táknin á mynd-
inni af fíflinu, þar er til dæmis hundur
að gelta á fíflið, hann varar við hætt-
um sem eru fram undan, enda er fíflið
á leiðinni fram af kletti, ef það gáir
ekki að sér. Þegar við heimfærum
þetta inn á þroska manneskju, þá
sjáum við að spilið táknar nýja veg-
ferð þar sem allar stærðir eru
óþekktar, hjá manneskju sem er á
nýrri leið í sínu lífi. Gleði og gaman
fylgir því að rannsaka nýja vegferð.“
Næsta spil á eftir Fíflinu er
Töframaðurinn. „Hann er strax kom-
inn með ákveðnar forsendur til að
skilja lífið betur, hann er með öll
verkfærin til að geta tekist betur á við
sínar aðstæður. Þegar spil töfra-
mannsins kemur upp í lögn hjá fólki,
þá segjum við: Nú ert þú meistari í
þínum nýju aðstæðu, þú hefur allt
sem þú þarft til að takast á við þær.
Mér finnst gaman að skoða með spil-
unum hvar við stöndum í verkefnum,
samskiptum og öllu því sem við erum
að fást við í lífinu. Að leggja spil er
fyrst og fremst leiðbeinandi og styðj-
andi, ákveðin sjálfsrækt. Þeir sem
koma til mín á Tarotnámskeið eru
fólk sem hefur áhuga á að rannsaka
hvert það er að fara og hvernig því
gangi í sínum verkefnum. Þetta er
fólk sem vill ekki standa kyrrt heldur
halda áfram og búa til eitthvað meira
í lífinu. Við getum í raun rannsakað í
gegnum Tarotspilin hvað þetta meira
er.“
Gefur öryggi og huggar
Tinna á marga ólíka Tarotspila-
stokka í fórum sínum.
„Ég nota mest Crowley Thoth-
spilin mín, þau eru frekar óhefð-
bundin en Aleister Crowley var einn
mesti seiðkarl Bretlands á nítjándu
öldinni. Hann fékk listakonuna Lady
Frieda Harris til að teikna spilin sam-
kvæmt hans fyrirmælum. Þetta er
mjög fallegur og litríkur stokkur og
mikið af táknmyndum í honum, sem
mér finnst spennandi. Hvert og eitt
tákn hefur sína þýðingu og mörg
þeirra eru úr egypskum fræðum, sem
höfðar til mín. Á námskeiðunum er ég
m.a. að útskýra fyrir fólki hvað táknin
merkja. Til dæmis á spili sem heitir
Lukkuhjólið, þar situr Svinx ofan á
hjólinu en að neðan hangir Pan í hjól-
inu, eða djöfullinn. Þarna er verið að
sýna að hjólið snýst bæði í himnaríki
og helvíti, í ljósi og skugga. Í lífinu er
nauðsynlegt að hjólið snúist og að þar
skiptist á skin og skúrir, annars verð-
ur engin framþróun. Skugginn stend-
ur fyrir áskoranir í lífinu.“
Tinna segir að Tarotspil hafi
fyrst verið búin til á Ítalíu árið 1430.
„Tarotspil eiga langa sögu á Ítal-
íu og þau komu fram hjá hirðinni þar
sem voru spákonur að spá, skoða og
rannsaka lífið fyrir hina eðalbornu.
Tarotspil voru fyrst hefðbundinn
spilastokkur með fjórum sortum,
stöfum, bikurum, sverðum og mynt-
um. Fjórtán spil eru í hverri sort og
þar er verið að vísa í elementin, jörð,
loft, eld og vatn, sem áfram vísar til
ákveðinna eiginleika í manneskjunni.
Til dæmis stendur jarðtengingin fyrir
vinnuna, líkamann og heilsuna, á
meðan loftið stendur fyrir hugsanir,
hugmyndir og drauma. Örlagaspilin
bættust seinna inn í Tarotspilastokk-
inn, þegar fólk fór að nota spilin til að
rannsaka lífið, þroska sinn og
reynslu. Tarotspil eru eitt af mörgum
tækjum sem við höfum til að skoða og
skilja betur hvar við stöndum í tilver-
unni hverju sinni, hvaðan við komum
og líka hvað er fram undan. Þetta gef-
ur okkur öryggi og huggar okkur.
Þegar við viljum fá dýpri skilning á
því hvar við stöndum, þá er gott að
geta dregið spil. Ég gæti ekki hugsað
mér lífið án Tarotspilanna.“
Býr á Seyðisfirði í sumar
Tinna er nýlega búin að kíkja í
spilin fyrir bróður sinn sem er í fjár-
festingum.
„Hann er að velta fyrir sér
möguleikum og við skoðum þetta allt
í gegnum Tarotspilin. Ég fæ mikið af
fólki til mín sem kemur úr veraldlega
geiranum, er í krefjandi vinnu og hef-
ur áhuga á að rannsaka ákvarðanir
sem það stendur frammi fyrir eða
verkefni. Fólk getur líka sótt sér
andagift í Tarotspilin, með því að
skoða hverjir möguleikarnir eru,
þetta getur verið mjög hvetjandi,“
segir Tinna sem ætlar sjálf að prófa
að búa á Seyðisfirði í sumar ásamt
fjölskyldu sinni. „Þar ætlum við að
opna litla POP UP-verslun í fallegu
húsi sem er byggt árið 1907. Húsið
heitir Steinholt og verslunin okkar
mun heita Steinholt & Co. Hug-
myndin er að samskapa fallega versl-
un og þjónusta Seyðfirðinga í bland
við ferðamenn og við ætlum að bjóða
upp á vandaða íslenska vöru í bland
við hitt og þetta skemmtilegt sam-
starf listamanna og íbúa á Seyðis-
firði.“
Næsta námskeið Guðrúnar
Tinnu, Allt um TAROTspilin, hefst
11. maí. Á námskeiðinu fær fólk upp-
lýsingar um allt sem það þarf að vita
til að lesa í TAROTspilin. Fundir eru
á Zoom fjóra miðvikudaga í röð og
fólk lærir: um þroskasögu sálarinnar
gegnum Örlagaspilin og bestu ráðin
og aðferðirnar til að túlka daglega líf-
ið. Skemmtilega talnaspeki sem teng-
ist spilunum og gefur hugmynd um
þroska og lærdóm ársins. Eitt og
annað um ýmis tákn, verur, liti og
myndir sem birtast í TAROTspil-
unum. Ýmsar lagnir og hvernig á að
spyrja spilin. Námskeiðið veitir að-
gang að lokuðum hópi á Facebook,
þar sem er samfélag sem tengist
áfram við að þróa lestur spilanna.
Skráning á e-mail: gtthorlacius-
@gmail.com eða í S: 8943108.
Þetta er samtal við innsæið okkar
„Mér finnst gaman að skoða með spilunum hvar við
stöndum í verkefnum, samskiptum og öllu því sem við
erum að fást við í lífinu,“ segir Guðrún Tinna
Thorlacius sem býður upp á Tarotnámskeið á netinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tinna Hún hefur spáð og spekúlerað í Tarotspil í þrjá áratugi, allt frá því hún var á unglingsaldri.
Fallegt Crowley Thoth-Tarotspil Tinnu eru litrík og rúnirnar líka fagrar.