Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 Toyota Kauptúni Kauptúni 6 570-5070 www.toyotakauptuni.is Betri notaðir bílar LEXUS RX 450H EXE HYBRID • Nýskráður 3/2021 • Akstur 10 þ.km. • Hybrid 3,5l 307 hö. • Sjálfskipting • Ábyrgð umboðs gildir til 16.3.2028 eða 200.000 km. • Raðnúmer 996619 12.990.000 kr. Kauptún Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Almenningur, fyrirtæki og hjálpar- samtök hér í landi hafa tekið höndum saman við móttöku flóttamanna frá Úkraínu undanfarnar vikur. Margir hafa lagt hönd á plóg við að útvega þeim sem hingað hafa komið allslausir allar helstu nauðsynjar. Góði hirðirinn hefur sem dæmi út- vegað flóttafólkinu innbú. Nytja- markaðurinn hefur í svolítinn tíma verið í samstarfi við sveitarfélögin um að útvega flóttafólki innbú og er að- stoðin við Úkraínumenn hluti af því verkefni. „Við gefum húsgögn, eldhúsáhöld, borðbúnað, leikföng og allt það helsta sem vantar,“ segir Sigrún Guðný Markúsdóttir, verkefnastjóri versl- ana Góða hirðisins. „Á morgnana koma flóttamenn ásamt aðila frá við- komandi sveitarfélagi og fá að velja sér innbú. Það koma fjölskyldur á hverjum morgni fjóra daga vik- unnar.“ Hún segir að margir hafi haft sam- band og viljað koma beint til þeirra með hluti. Þau beini öllum í nytja- gáma Góða hirðisins á endurvinnslu- stöðvunum. Þeir séu tæmdir á hverj- um morgni og það sem í þeim er fari inn í verslunina í Fellsmúla þangað sem flóttafólkið kemur. „Það leggjast allir á eitt og það eru allir af vilja gerðir. Við tökum ekki við fatnaði, hvítvöru, rúmum eða stærri raftækjum en allt annað sem er heil- legt nýtist.“ Sjaldan jafn mikil viðbrögð Rauði krossinn á Íslandi hefur staðið fyrir fatasöfnun fyrir flótta- menn auk þess að safna fjármagni í neyðarsöfnun, bæði fyrir starf sam- takanna í Úkraínu og fyrir það flótta- fólk sem hingað er komið. „Við höfum sjaldan eða aldrei feng- ið jafn mikil viðbrögð. Við erum búin að safna um 145 milljónum. Mörg fyrirtæki eru búin að koma inn í þetta sem og almenningur, hlaupahópar og golfmót og hvaðeina. Það hefur aðeins hægst á þessu en það er samt óvenju- legt að svona átak endist svona lengi,“ segir Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafullrúi Rauða krossins. „Við söfnum fötum allan ársins hring en við fundum fyrir því að fólk vildi leggja þessu málefni sérstaklega lið og við höfðum líka þörf fyrir til dæmis hlýjan fatnað. Svo við ákváðum að setja upp sérstaka gáma fyrir Úkraínu og það hefur gengið al- veg ótrúlega vel. Það er gríðarlegt magn að koma til okkar, bæði í venju- legu gámana sem og þessa sérstöku gáma. Við höfum líka fengið fyrirspurnir um það hvort fólk geti gefið okkur einhverja hluti en það er erfitt í fram- kvæmd. Þótt það sé góður hugur sem fylgir því þá er það þannig að pen- ingar eru það sem nýtist langbest.“ Raftæki í 37 íbúðir Raftækjaverslunin ELKO hefur séð stórum hópi flóttamanna fyrir raf- tækjum. „Þegar þessir skelfilegu atburðir komu upp og við fréttum að það væri að koma mikill fjöldi af flóttafólki til Íslands þá vorum við ákveðin í því að reyna að hjálpa með einhverju móti. Við náðum sambandi við góðgerðar- félag sem var að koma upp íbúðum fyrir flóttafólk og það vantaði raftæki í þær allar,“ segir Óttar Örn Sigur- bergsson, framkvæmdastjóri ELKO. „Við útveguðum þvottavélar, sjón- vörp og lítil heimilistæki í 37 íbúðir ásamt spjaldtölvum þar sem mikil- vægt er að það séu samskiptatól á staðnum ásamt spilum og annarri af- þreyingu fyrir yngsta hópinn. Það er erfitt að hugsa til þess hvernig að- stæðurnar eru hjá fólkinu sem kemur frá Úkraínu og við erum því glöð að geta aðstoðað á þennan máta.“ Hann segir fyrirtækið hafa fengið fyrirspurnir frá fjölmörgum aðilum sem eru að styðja við flóttafólk með einhverjum hætti. „Við skoðum hvert tilvik fyrir sig en síðastliðin misseri höfum við lagt mikla áherslu á að bæta aðstöðu flóttafólks sem er að koma til landsins í formi raftækja.“ Þá hefur ELKO, eins og fleiri verslanir, boðið almenningi að styðja Rauða krossinn þegar verslað er hjá fyrirtækinu og þá hefur ELKO lagt fram sömu upphæð á móti. „Það leggjast allir á eitt“ - Almenningur og fyrirtæki hafa hjálpast að við að útvega úkraínskum flóttamönnum nauðsynjar - Góði hirðirinn og Rauði krossinn sinna sínu starfi - Elko og Íslandshótel gáfu veglegar gjafir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Úrval Í Góða hirðinn koma fjölskyldur sem flúið hafa frá Úkraínu og fá að velja sér þá muni sem þær þurfa. Samstarf „Það leggjast allir á eitt og það eru allir af vilja gerðir,“ segir Sigrún, verkefnastjóri hjá Góða hirðinum, um aðstoðina við flóttamenn. Íslandshótel hafa gefið rúm í íbúðir handa flóttamönnum. „Við vorum að endurnýja öll rúm í turninum og þá datt mér í hug hvort það væri ekki hægt að bjóða þau,“ segir Salvör Lilja Brandsdóttir, hótelstjóri Grand Hótel. „Þetta eru auðvitað ágæt rúm þótt við viljum hafa þau enn betri hér. Þau rúm sem líta flekklaus út fara til flótta- manna. Þetta eru rúm af 200 herbergjum svo þetta er mikið magn.“ Hún segir að þau hjá hótel- keðjunni séu ánægð að geta lagt eitthvað af mörkum. „Við erum líka að skoða hvort það sé til borðbúnaður eða annað sem gæti komið sér vel fyrir aðra.“ Rúm af 200 herbergjum ÍSLANDSHÓTEL GÁFU RÚM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.