Morgunblaðið - 05.05.2022, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 05.05.2022, Qupperneq 20
20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 ég fer bara í þetta“ og þetta var alveg frábær tími, frábært fólk sem ég kynntist þarna,“ segir Hlín sem lauk BA-prófi 1997 og nam eftir það hag- nýta fjölmiðlun við HÍ, nám sem nú er búið að leysa upp og gera að MA- námi í blaða- og fréttamennsku. „Ég fór nú samt ekki strax í hag- nýtu, ég fór fyrst að vinna hjá Fróða og var þar í útkeyrslu, keyrði út [bók- ina] Íslensk fyrirtæki og komst þá að því að fleiri fyrirtæki en Íslendingar eru á Íslandi,“ segir Hlín og hlær dátt við tilhugsunina. „Svo fór ég bara að keyra út Séð og heyrt í sjopp- ur og eitthvað en öðlaðist svo gríð- arlega reynslu í skjalahaldi í starfi hjá Lloyd’s Register & Shipping sem er svona skipaskoðunar- og vott- unarfélag,“ heldur hún áfram, en nú verðum við eiginlega bara að fara að tala um kvikmyndir, plássið af skorn- um skammti og tæpar átta mínútur af upptöku eftir af nær endalausum starfsferli Hlínar sem augljóslega er kona með reynslu. Beint í djúpu laugina „Já, það hófst þannig að ég sótti um hálfa stöðu á skrifstofu hjá upp- rennandi kvikmyndafyrirtæki eins og stóð í auglýsingunni,“ rifjar Hlín upp og á við Zik Zak kvikmyndagerð þar sem innsti koppur í búri var eng- inn annar en Þórir Snær Sigurjóns- son Sighvatssonar, skólabróðir þess sem hér skrifar í garðbæsku grunn- skólakerfi fyrir löngu og þekktur vandræðagemsi í augum margra kennara þar. Úr Þóri rættist þó held- ur betur með tímanum, enda gull af manni. Hinn eigandi Zik Zak var Skúli Fr. Malmquist. „Svo reyndist þetta nú bara 150 prósent vinna, maður var kominn beint í djúpu laugina, þarna voru tveir ungir menn sem höfðu komið ár sinni fyrir borð meðal annars með því að gera kvikmyndina Fíaskó með Ragnari Bragasyni. Ég byrjaði bara að raða og flokka og átta mig á hlut- unum og svo unnum við saman í rúm- an áratug,“ segir Hlín af starfinu hjá Zik Zak. „Þórir Snær reyndist mér mjög vel og það er mikill akkur í því fyrir okkur íslenska kvikmyndagerð- armenn að hafa menn eins og hann innanborðs, Þórir er núna yfir Scan- box sem er öflugt og glæsilegt dreif- ingarfyrirtæki á norrænan mæli- kvarða og hefur einnig verið að framleiða frábærar myndir,“ heldur hún áfram. Ætlaði ekki að daga uppi Zik Zak framleiddi meðal annars myndina Nóa albínóa sem margir lesendur minnast ef til vill. „Þetta var mjög erfitt tímabil, óvissuástand og erfitt peningalega og ég man að ég hugsaði með mér að ég ætlaði ekkert að daga uppi hjá einhverju fyrirtæki sem væri að fara á hausinn, nýbúin með háskólanám og svona. Ég komst svo upp í fjöll í Dóminíska lýðveldinu gegnum Pétur Guðjónsson hjá Húm- anistahreyfingu Íslands til að láta gott af mér leiða, en kynntist þar líka mjög undarlegum hollenskum náunga sem seldi kaffi, kakó, romm, vindla og kerti í túristabúðir og ég fór að vinna fyrir hann norður í landi þarna í Dóminíska og var þar þangað til í maí 2003. Þá fór ég aftur til Zik Zak og var þar heillengi, hætti þar 2011 eða ’12, ég kom að kvikmyndunum Eldfjall og Svartur á leik sem voru gerðar á þessum tíma,“ segir Hlín sem gekk í kjölfarið til samstarfs við Birgittu Björnsdóttur. „Við framleiddum nokkrar myndir saman og er þar lík- lega þekktust Svanurinn sem kom út 2017. Frá 2013 var ég deildarstjóri við Kvikmyndaskóla Íslands og kennari og hef tengst þeim skóla síð- an þá. En ég ætlaði samt árið 2017 að hætta að vinna í bíó og hóf meistara- nám um norðurslóðamál. En það var flókið, kennslan var á Akureyri og auk þess var ég farin að fá fyrir- spurnir um að framleiða bíómyndir, átti líka tvö börn og heimili í Reykja- vík og komin með hund svo þetta datt bara upp fyrir,“ segir Hlín og hlær glettnislega. Meira komst einfaldlega ekki fyrir í dagskrá konu sem, er þarna var komið sögu, var auk framangreinds búin að stofna norðurslóðavefinn jonaa.org, eða Journal of the North Atlantic and Arctic, ásamt Vilborgu Einarsdóttur, ritstjóra og framleið- anda, en þær tvær framleiddu sam- norræna verkefnið Menningar- viðburð Norðurlandanna 2014 fyrir Norræna menningarsjóðinn og eru framleiðendur Dansandi línu, heim- ildarmyndar sem Friðrik Þór Frið- riksson er að leikstýra. Þá hefur Hlín um árabil gegnt formannshlutverki í ÍKSA, Íslensku kvikmynda- og sjón- varpsakademíunni. En hvað gera þá þessir frægu framleiðendur, spurn- ing sem varpað var fram í upphafi viðtals. Nokkur ár af lífi þínu „Þeir eru í raun alfa og ómega hverrar myndar í þeim skilningi að gera hana að veruleika, við skulum bara hafa það á hreinu, enda vita það nú flestir sem vinna við þetta,“ segir Hlín og enn hljómar dillandi hlátur hennar. Ekkert verkefni sé án fram- leiðanda og það sé í raun hann sem færir áfram hugmyndina sem fyrst kviknar með handriti, jafnvel bók. „Við erum kannski með handritshöf- und sem er kominn eitthvað áleiðis og okkur líst vel á. En einnig verður „Svakalega ávanabindandi“ - Framleiðendur alfa og ómega hverrar myndar - Kynntist mjög undarlegum hollenskum náunga - Luku tökum á lokametrunum fyrir faraldur - Saga af ferðalagi með látna móður nýjasta stykkið Ljósmynd/Guðbjörg Sigurðardóttir Einvalalið „Þetta er á frumsýningu á Svaninum í Toronto árið 2017. Það er mjög jákvætt og gott að fá frumsýningu í Toronto sem er ein af aðalhátíðunum í heiminum,“ útskýrir Hlín sem hér er stödd á sviðinu í Kanada ásamt aðstandendum myndarinnar sem Ása Helga Hjörleifsdóttir leikstýrði. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir Framleiðandinn Ein af fáum ljósmyndum af Hlín við gerð Skjálfta. „Ég er virkilega og kirfilega mikið á bak við tjöldin í mínum verkefnum,“ segir hún. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir Settið Tómas Örn Tómasson, frammi á gangi Gunnhildur Helgadóttir og Egill Gestsson, Tinna Hrafnsdóttir og Aníta Briem við borðið. Skjálfti. VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Hvað áttu að titla mig? Ja, ég er kvikmyndaframleiðandi, búin að starfa við það svo lengi að ég veit ekki hvað annað ég ætti að kalla mig, er það nóg fyrir þig?“ spyr Hlín Jó- hannesdóttir, framleiðandi hjá Pega- sus, en Hlín hefur sannarlega marga fjöruna sopið við framleiðslu ís- lenskra kvikmynda, hún starfaði um árabil hjá framleiðslufyrirtækinu Zik Zak kvikmyndum en rekur auk þess eigið fyrirtæki, Ursus Parvus, og er framleiðandi kvikmyndarinnar Skjálfta þar sem rakin er harmsaga ungrar konu sem glímir við flogaveiki og minnisglöp. Morgunblaðinu lék forvitni á hvað þessir framleiðendur geri eiginlega, fólkið sem er nafngreint við upphaf og endi hverrar kvikmyndar en sést þó sjaldnar í fjölmiðlum baðandi sig í kampavíni og sveiflandi gylltum Ósk- arsstyttum einhvers staðar í útlönd- um. Sannarlega fólkið bak við tjöldin en þó yrðu engar kvikmyndir til án framleiðendanna, þessara burðarása iðnaðarins. Meira um það hér síðar í viðtalinu en hver er þessi Hlín eigin- lega? Heimspekisinnaður femínisti „Ég er nú bara fædd í Reykjavík 1973, er lengst af í grunnskóla í Öldu- selsskóla í Breiðholti en bjó nú samt tvö ár í Hveragerði þegar pabbi tók við lyfsölu í Ölfusi og var þar 1985 til ’87,“ segir Hlín sem er dóttir tveggja ísfirskra lyfjafræðinga, Jóhannesar Finns Skaftasonar heitins og Huldu Bjargar Sigurðardóttur sem auk þess að vera bara lyfjafræðingur er „heimspekisinnaður femínisti og lyfjafræðingur“ ef marka má yfirlýs- ingar á bloggsíðu hennar. „Við fluttum svo aftur í gamla hús- ið okkar í Breiðholti, pabbi tók við Reykjavíkurapóteki og rak það til loka síns starfsferils. Svo fór ég í MH sem var góður tími, kom þar meðal annars að rómaðri uppfærslu Rocky Horror [Picture Show] sem Páll Ósk- ar [Hjálmtýsson] leiddi svo glæsi- lega,“ heldur Hlín áfram og blaða- mann rámar sannarlega í það stórvirki innan um MORFÍS-keppnir og landabrúsa framhaldsskólalífsins um og eftir 1990. Hlín varð stúdent frá MH og fór svo í mannfræði við Háskóla Íslands. „Ég ætlaði alltaf í sálfræði en svo var bara fullt í sálfræðina þannig að ég fletti bara félagsvísindahlutanum í námskrá HÍ og þegar ég sá mann- fræðina hugsaði ég bara með mér „æ,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.