Morgunblaðið - 05.05.2022, Side 24

Morgunblaðið - 05.05.2022, Side 24
SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Skipstjórinn stendur í brúnni og er stoltur af sínu. „Dettifossinn nýi er besta skip sem ég hef nokkru sinni kynnst,“ segir Ríkharður Sverr- isson og í augum bregður fyrir bliki. Af Skansinum í Þórshöfn í Færeyjum má fylgjast með ferðum stórskipsins sem skríður ljúft með landi að bryggju. Á sundinu við Nólsey mætast keppinautar; Detti- foss Eimskipafélagsins og Helga- fellið að koma frá Danmörku og siglir til Runavikur, þar sem af- greiðsla Samskipa er. Eimskip er aftur á móti á sínum fasta pósti í Þórshöfn. Á öllum tímum hafa Fær- eyjar verið einn af lykilstöðunum í flutninganeti félagsins þangað sem skipin flytja aðföng og afurðir frá. Grænland er fyrst og síðan Evróputúr Þrjú skip sigla hina Rauðu leið Eimskips; það er Dettifoss, Brúar- foss og Tukjuma Arctica sem er í eigu grænlenska félagsins Royal Artic Line (RAL). Eimskip og Grænlendingarnir eru í samsigl- ingum um þessa áætlun, í samstarfi sem hefur gilt í um tvö ár. Þegar ný áhöfn kemur í skip í Reykjavík á þriðjudegi er Nuuk fyrst á dagskrá, en að sigla þangað og aftur heim tekur eina viku. Strax á eftir kemur tveggja vikna Evróputúr. Fyrsta stopp í túrnum langa er Reyðarfjörður. Svo er lagt á Atl- anthafið og fyrsta stoppið þá er Þórshöfn í Færeyjum þangað sem er komið síðdegis á föstudegi. Næsta koma Árósar í Danmörku, þá Álaborg og svo Helsingborg í Svíþjóð. Komið á föstum tíma í hverja höfn og stífri áætlun haldið. Frá Færeyjum er fiskur, svo sem eldislax, uppistaðan í fraktinni, en í viðkomu þar á heimleið til Íslands er almenn neysluvara fyrir eyja- skeggja í mörgum gámum. Einnig er sóttur kostur fyrir Grænlendinga í gegnum RAL, þótt mest af því sem skipin á rauðu leiðinni flytja fari auðvitað til Íslands. Skipin sem sigla Gulri leiði hjá Eimskip koma einnig við í Þórshöfn á leiðinni út. Koma þá fyrst við í Vestmanna- eyjum og svo Færeyjum, en halda halda síðan áfram til Evrópu með fyrsta stoppi í Immingham í Bret- landi. Gamli og nýi tíminn mætast í Þórshöfn „Mér finnst alltaf gott að koma hingað til Færeyja, Þórshöfn er fal- legur bær þar sem gamli og nýi tíminn mætast,“ sagði Ríkharður skipstjóri sem Morgunblaðið hitti þar ytra í síðustu viku. „Siglingin yfir hafið nú gekk eins og í sögu og því fylgir alltaf sérstök stemning að sjá eyjarnar rísa úr hafi. Komum þá fyrst að Fugley og Svíney, en nú förum við austan við eyjarnar og komum þá leið inn til Þórshafnar. Eftir að hafa siglt þessa áætlun í bráðum tuttugu ár verður hver ferð þó annarri lík. Frá því Covid skall á höfum við til dæmis tæpast farið frá borði í höfnum, en nú þegar veiran er í rénun verður breyting á því. Eins er gaman eins og nú að fá góð- an gest um borð,“ segir kapteinninn og beinir orðum sínum til blaða- manns. Óveður og ísjakar Dettifoss og Brúarfoss komu ný inn í skipastól Eimskips fyrir um tveimur árum. Skipin eru 26.169 brúttótonn; búin öllum bestu tækj- um og vel er fyrir öllu séð. Meðal annars er skipið sérstaklega styrkt til siglinga á Norður-Atlantshafi, á þungum rúmsjó þar sem margt þarf að hafa í huga. „Ég hef verið til sjós mjög lengi en man ekki eftir eins miklum sviptingum í veðri og verið hafa á síðustu mánuðum. Þetta er minn al- versti vetur til sjós. Núna í mars við Grænland lentum við í djúpri lægð suður af Hvarfi. Sú var 932 millibör og vindur fór í 50 metra á sekúndu. Þá hefur verið mikið um ís við Grænland í allan vetur, meðal annars borgarísjaka sem brotna frá jöklinum og rekur út. Um þetta má með almennum orðum segja að öfg- ar í veðráttu eru nú á allra síðustu árum mun meiri en áður var. Auð- vitað liggur beint við að segja þetta áhrif hnattrænnar hlýnunar í and- rúmsloftinu, þótt ég geti auðvitað ekkert fullyrt um slíkt.“ Siglingin heldur áfram Sem unglingur var Ríkharður Sverrisson sendill á Morgunblaðinu sumarlangt og minnist þess sem skemmtilegs tíma. Eins og hefðin í fjölskyldunni bauð fór okkar maður til sjós; var munstraður sem messi á einum Fossanna vorið 1973 og með því var teningunum kastað. Háseti, stýrimaður og nú síðast skipstjóri. Á Dettifossi tekur hann sem skipstjóri annan hvern túr á móti Kristjáni Ólafssyni. Ríkharður stígur ölduna, verður senn 65 ára og kemur í land eftir tvö ár. „Þótt skipin verði æ betri og tæknin meiri þá er farmennskan í sjálfu sér alltaf eins. Íslendingar eiga allt sitt undir sjóflutningum og verða að halda sínum hlut þar. Sigl- ingar ráða sjálfstæði þjóða. Sem skipstjóri hef ég reynt að vera sanngjarn við mína menn í áhöfn- inni, svo mórall sé í lagi og hlutir gangi vel. Siglingin heldur enda- laust áfram,“ segir skipstórinn á Dettifossi að síðustu. Rísa úr hafi - Dettifoss besta skipið - Alltaf stopp í Færeyjum - Veðrið áberandi vont í vetur - Ríkharður á rauðu leiðinni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skipstjóri Íslendingar eiga allt sitt undir sjóflutningum og verða að halda sínum hlut þar. Siglingar ráða sjálfstæði þjóða, segir Ríkharður Sverrisson skipstjóri. Hann hefur verið á Fossum Eimskipafélagsins allt frá árinu 1973. Sjór Bundinn er bátslaus maður, segir færeyskt máltæki. Flest þar í landi þarf að fara sjóleiðina. Á myndinni til vinstri er Dettfoss við bryggju í Þórshöfn, en ofar á myndinni til hægri er ferjan Smyrill sem siglir til Suðureyjar. 24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til og með 9. maí NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Í blaðinu verða kynntir margir möguleikar sem í boði eru fyrir þá sem vilja hafa fallegt í kringum sig, breyta og bæta heimilið. Skoðuð verða húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru. Heimili& hönnun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 13. maí Tíðarfar var hagstætt í nýliðnum apríl. Mánuðurinn var hægviðra- samur og hlýr um allt land. Ekki hefur verið jafn hægviðrasamt í apríl síðan árið 1989, eða í 33 ár. Þetta voru vissulega mikil umskipti frá hinum illviðrasama vetri. Í tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar kemur fram að meðalhiti í Reykja- vík var 5,1 stig. Það er 1,5 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 1,2 stigum yfir meðallagi und- anfarins áratugar. Raðast mán- uðurinn í 10. sæti af 152 mældum aprílmánuðum í Reykjavík. Með- alhitinn var 4,4 stig á Akureyri, eða 1,8 stigi yfir meðallagi tímabilsins 1991 til 2020 og 1,4 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykk- ishólmi var meðalhitinn 4,0 stig og á Höfn í Hornafirði var hann 4,6 stig. Heildarúrkoma mánaðarins í Reykjavík mældist 71,6 millimetr- ar, eða 21% yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist mánaðarúrkoman 13,9 mm sem er um helmingur af meðalmánaðar- úrkomu aprílmánaðar árin 1991 til 2020. Síðast mældist jafnlítil apríl- úrkoma á Akureyri árið 2008. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 33,8 mm í apríl. Aprílmánuður var þungbúinn í Reykjavík, en sólskinsstundir mældust 135,0 sem er 30,1 stund minna en í meðalaprílmánuði árin 1991 til 2020. Marsmánuður var einnig þungbúinn í höfuðborginni en sólskinsstundir mældust þá að- eins 68,5, sem var 41,8 stundum undir meðallagi. Sólskinsstundir voru álíka margar á Akureyri þennan mánuðinn, eða 134,7 stund- ir. Það er 7,2 stundum yfir meðal- lagi aprílmánaðar á Akureyri. sisi@mbl.is Apríl hægviðra- samur og hlýr - Enn var sólarlítið í höfuðborginni Morgunblaðið/Eggert Hlýindi Nýliðinn apríl var hlýr og og nýttu hann margir til útiveru.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.