Morgunblaðið - 05.05.2022, Síða 26
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
Sýningarsalur Draghálsi 4 -
Sími: 535 1300 -
verslun@verslun.is
T
A
K
T
IK
5
7
3
0
#
Húsgögn fyrir kaffihús,
bari og veitingastaði
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Unnið er að því að rífa gamla frysti-
húsið miðsvæðis á Eskifirði, sem í
eina tíð var stór vinnustaður og eitt
af kennileitum bæjarins í áratugi.
Unnið er að skipulagi fyrir svæðið,
samkvæmt upplýsingum frá Fjarða-
byggð. Þar er einnig tekið tillit til
ofanflóðavarna í Grjótá, en unnið er
að hönnun slíkra mannvirkja á veg-
um Ofanflóðasjóðs.
Stoðir undir atvinnulífið
Hraðfrystihús Eskifjarðar, sem
ber nú nafnið Eskja, var stofnað 8.
maí 1944, eða fyrir tæpum 80 árum.
Tilgangurinn með stofnun félagsins
var að skjóta stoðum undir atvinnu-
líf bæjarins. Fljótlega eftir stofnun
var hafist handa við byggingu
frystihúss og hófst vinnsla þar 1947.
Undir lok árs 2007 var vinnslu og
frystingu á bolfiski hætt í frystihús-
inu við Strandgötu. Eskja hefur síð-
ustu ár lagt megináherslu á veiðar
og vinnslu á uppsjávartegundum og
rekur m.a. fullkomið uppsjávar-
frystihús innar í bænum.
Fyrir þremur árum gerðu Eskja
og sveitarfélagið Fjarðabyggð
samning, sem meðal annars fól í sér
niðurrif á fasteignum við Strand-
götu 38, 38A, 40 og 42 á Eskifirði.
Sveitarfélagið eignaðist lóðirnar en
Eskja annast niðurrif. Búið er að
rífa verbúð og frystiklefa og nú er
verið að rífa sjálft frystihúsið. Páll
Snorrason, framkvæmdastjóri hjá
Eskju, gerir sér vonir um að nið-
urrifi ljúki í þesum mánuði og þá
verði lóðirnar afhentar bænum.
Ýmsar hugmyndir hafa komið
fram um nýtingu svæðisins við
Strandgötu, sem auk fyrrnefndra
lóða neðan Strandgötu tekur til
Eskjutúnsins svokallaða, og fleiri
lóða ofan Strandgötu.
Saga Eskifjarðar
Freska eftir Baltasar Samper var
á stafni frystisgeymslunnar. Um er
að ræða 50 fermetra listaverk, sem
sett var upp 1990. Verkið var tekið
niður áður en frystiklefinn var rif-
inn og sett í geymslu innanhúss.
Páll segir að listaverkið þarfnist
lagfæringar, en óskastaðan sé að
setja verkið upp annars staðar á
Eskifirði. Ekkert hafi enn verið
ákveðið í þeim efnum.
Verkið var afhjúpað 17. júní 1990,
en þremur dögum áður var m.a.
haft eftir Aðalsteini Jónssyni, for-
stjóra Hraðfrystihússins, í Morg-
unblaðinu að verkið lýsti sögu Eski-
fjarðar og yrði stolt bæjarins.
Baltasar sagði að þetta væru 15
myndir sem mynduðu eina heild og
greindu frá fortíð og nútíð Eski-
fjarðar
Kennileiti hverfur á Eskifirði
- Unnið að niðurrifi á gamla frystihúsinu í miðbænum - Freska Baltasars komin í geymslu
Ljósmynd/Gungör Tamzok
Eskifjörður Unnið er að skipulagsmálum í hjarta bæjarins og hafa ýmsir möguleikar verið nefndir eftir að frystihúsið á hafnarbakkanum hverfur.
Ljósmynd/Gungör Tamzok
Niðurrif Áætlað er að lokið verði við að rífa frystihúsið í maímánuði.
Listaverk Freska Baltasars er nú í geymslu og þarfnast viðgerðar
Heilsu- og hvatningarátakið hjólað
í vinnuna var sett formlega af stað í
gærmorgun við Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn í Reykjavík. Þetta er
tuttugasta skiptið sem átakið fer
fram en því er ætlað að vekja at-
hygli á virkum ferðamáta sem
heilsusamlegum, umhverfisvænum
og hagkvæmum samgöngumáta.
Mættu þau Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra, Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri, Sigrún
Ágústsdóttir, forstjóri Umhverf-
isstofnunar, Jón Gunnar Jónsson,
forstjóri Samgöngustofu, Ingvar
Ómarsson hjólreiðakappi og Andri
Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ,
á opnunina og tóku svo stuttan
hjólatúr.
Vinnustaðakeppni
Íþrótta- og ólympíusamband Ís-
lands (ÍSÍ) stendur fyrir verkefninu
sem tekur þrjár vikur eða til 24.
maí og á þeim tíma eru landsmenn
hvattir til að hreyfa sig og hjóla,
ganga eða nota annan virkan ferða-
máta.
Samhliða almennu átaki er einn-
ig í gangi vinnustaðakeppni, en þar
er fyrst og fremst keppt um flesta
þátttökudaga hlutfallslega miðað
við fjölda starfsmanna á vinnu-
staðnum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hljólað Átakið hjólað í vinnuna var sett í gærmorgun.
Hjólað í vinnuna
í tuttugasta skipti
- Heilsuátakið stendur yfir í þrjár vikur