Morgunblaðið - 05.05.2022, Page 29

Morgunblaðið - 05.05.2022, Page 29
29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 Sandvíkur Suðurey Álsey Brandur Bjarnarey Faxasker Smáeyjar Heima- klettur Herjólfs- dalur Elliðaey Eldfell Helgafell Stórhöfði HEIMAEY Vestmannaeyjar Staðsetning, helstu staðreyndir og kosningaúrslit Úrslit í síðustu sveitarstjórnarkosningum* Kosið var 26. maí 2018 Kjörskrá: Atkvæði: Kjörsókn: 3.164 2.630 83% ÍBÚAR 4.414 AFGANGUR* 236 m.kr. HEILDARSKULDIR 2022 5,3 ma.kr. SKULDAHLUTFALL** 2022: 80% 2025: 73% KYNJASKIPTING ALDURSSKIPTING ÍBÚAR 18 ÁRA & ELDRI 3.482 FLATARMÁL 16 km² 53% Karlar Konur 47% Fyrir Heimaey og Eyjalistinn mynda meirihluta Bæjarstjóri: Íris Róbertsdóttir (H) Formaður bæjarráðs: Njáll Ragnarsson (E) *Áætlanir um A- og B-hluta 2022 **Áætlanir um A- og B hluta. 0 200 400 600 800 1000 1200 > 7051-7031-5018-30< 18 ■ D Sjálfstæðisflokkur 45,4% 3 ■ E Eyjalistinn 20,4% 1 ■ H Fyrir Heimaey 34,2% 3 Saga Vestmannaeyja nær til landnáms, þar er elsta samfellda þéttbýli Íslands og verslunar- staður síðan á 15. öld. Kaupstaðarréttindi fengust fyrst 1786 og Eyjar verið ein helsta verstöð landsins frá því vélbátaöld hófst. Kaflaskil urðu í eldgosinu 1973, en íbúar hafi aldrei orðið jafnmargir síðan. Sjávarútvegur, ferðaþjónusta og þjónusta eru helstu atvinnugreinar. Eyjasund Stakkabót Þórarinshraun Flatahraun H E Þorlákshöfn La nd eyj ah öfn DAGMÁL Andrés Magnússon Stefán E. Stefánsson Þrjú framboð bjóða fram í Vest- mannaeyjum að þessu sinni, þau hin sömu og státað hafa af bæjar- fulltrúum á liðnu kjörtímabili. Töldu margir að gríðarfjölmennt prófkjör Sjálfstæðisflokksins, þar sem Eyþór Harðarson varð hlutskarpastur í baráttunni um fyrsta sætið, yrði til þess að lægja öldurnar sem leikið hafa um Sjálfstæðisflokkinn á síð- ustu árum. Má ölduganginn rekja til sérframboðs Írisar Róbertsdóttur, núverandi bæjarstjóra, sem felldi sig ekki við uppstillingu á lista Sjálf- stæðisflokksins fyrir síðustu kosn- ingar. Náði listi hennar, H-listi, Fyr- ir Heimaey, þremur mönnum í sveitarstjórn og myndaði í kjölfarið meirihluta með Eyjalistanum sem fékk einn mann kjörinn. Þegar Dagmálateymi Morgun- blaðsins sótti Eyjar heim fyrr í vik- unni kom hins vegar í ljós að veru- lega kraumar enn undir vegna klofningsins. Virðist það ekki hafa dregið úr spennunni að Páll Magn- ússon, fyrrverandi oddviti Sjálfstæð- isflokksins í Suðurkjördæmi, gekk formlega til liðs við H-lista og gerð- ist oddviti framboðsins. Hann var lengi talinn hallur undir framboð Ír- isar fyrir fjórum árum en hefur nú stigið fram og gengið hressilega fram í gagnrýni á Bjarna Benedikts- son, formann Sjálfstæðisflokksins. Gefur Eyþór beinlínis til kynna að stuðningur Páls við framboð Írisar hafi kostað Sjálfstæðisflokkinn meirihlutann sem hann hafði farið með fram að því. Aðeins munaði fjórum atkvæðum á fjórða manni D- og H-lista í kosningunum. Ljóst er að stimpingar milli fyrrver- andi og núverandi sjálfstæðismanna fara ekki vel í alla í Eyjum. Njáll Ragn- arsson, oddviti E-listans, segir mik- ilvægt að bæjarbúar beini sjónum að verkefnunum fram undan en festist ekki í umræðu um innanflokksátök í Sjálfstæðisflokknum. Taka Íris og Ey- þór raunar undir það þótt umræðan á vettvangi Dagmála, sem nálgast má í upptöku á mbl.is og á helstu hlaðvarps- veitum, gefi sterkt til kynna að erfitt sé að skilja umræðu núverandi kosninga frá þeim hjaðningavígum sem áttu sér stað árið 2018. Þegar Eyþór er spurður út í hvaða áherslur Sjálfstæðisflokk- urinn beri á borð fyrir kjósendur að liðnum fjórum árum undir meiri- hluta E- og H-lista, segir hann að hann hefði viljað sjá meirihlutann ráðstafa fjármunum bæjarfélagsins með ábyrgari hætti en raun var á. Þannig hafi tækifæri til að sameina starfsemi sveitarfélagsins undir einu þaki runnið út í sandinn og eins hafi verið rangt af bæjaryfirvöldum að segja upp þjónustusamningi um rekstur hjúkrunarheimilis í bænum. Íris tekur ekki allskostar undir þessa gagnrýni og bendir á að bæjarfélagið hafi verið rekið með af- gangi síðustu ár og að auk þess hafi minnihluti Sjálfstæðisflokks sam- þykkt fjárhagsáætlun bæjarins í tvö skipti en setið hjá í eitt. Talsverð kergja birtist í ummæl- um Írisar um núverandi dómsmála- ráðherra og kvartar hún undan því að ekkert samtal hafi átt sér stað milli ráðuneytis hans og sveit- arstjórnar og um framtíðarskipulag sýslumannsembættisins í Eyjum. Eyþór bendir á að Jón Gunnarsson, ráðherra málaflokksins, hafi skýrt að þótt stefnt væri að stofnun eins sýslumannsembættis fyrir allt land- ið þá yrði tryggt að umsvif embætt- isins í Eyjum myndu haldast og að þau yrðu jafnvel efld með tilflutningi verkefna til þess. Njáll lýsti óánægju með að slíkar hugmyndir væru viðr- aðar á flokksfundum innan Sjálf- stæðisflokksins. Er ekki ofsögum sagt að kapp- ræður oddvitanna í Eyjum séu einar hinar hressilegustu á hringferð Dag- mála þetta árið. Flest bendir til þess að ef E- og H-listi hljóta stuðning til, verði meirihlutasamstarf milli þeirra endurnýjað og að Sjálfstæðisflokkur þurfi hreinan meirihluta til að ná völdum. Íris ítrekar þegar hún er spurð að hún sé bæjarstjóraefni H- lista. Njáll segist reiðubúinn til að taka að sér starf bæjarstjóra en Ey- þór vill fá utanaðkomandi mann til verksins. Íris segir ekki koma til greina að Páll Magnússon taki við starfi bæjarstjóra á kjörtímabilinu. Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Hlaðvarp Oddvitar í Vestmannaeyjum 2022: Njáll Ragnarsson (E), Eyþór Harðarson (D) og Íris Róbertsdóttir (H). Ekki enn gróið um heilt í Eyjum frá 2018 - Gneistar milli oddvita Sjálfstæðisflokks og bæjarstjóra Vestmannaeyja - Prófkjör fyrir fjórum árum situr enn í fólki - Deilt um hjúkrunarheimili og sýslumannsembætti Hestöfl: 462 | Hámarkstog: 700 Nm | Hröðun: 5.0 sek. 0-100 km klst. Rafmagnað sumarævintýri. Porsche Cayenne E-Hybrid (Plug-In). Nú fylgir Platinum Edition aukahlutapakki í takmarkaðan tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.