Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
Hægðu á þér!
Umferðarskilti af öllum stærðum
og gerðum.
Bannmerki
Viðvörunarmerki
Bílastæðamerki
Einkastæði ATHUGIÐ!
Bílastæði eingöngu ætluð
starfsmönnum og gestum
skólanna frá 07:30 - 17:00
Óviðkomandi bílar verða fjarlægðir
Skilti
BSV S:5514000
Boðmerki
Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 555 65 00 | xprent@xprent.is
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Fyrir nokkrum árum sáum við
fram á að geta ekki annað aukinni
eftirspurn. Þessi stækkun er því
búin að vera í undirbúningi síðan
2018,“ segir Andri Þór Guðmunds-
son, forstjóri Ölgerðarinnar.
Ölgerðin tók á dögunum í notk-
un nýtt 1.650 fermetra fram-
leiðsluhús á lóð fyrirtækisins við
Grjótháls í Reykjavík. Í nýja hús-
inu er hátækniframleiðslulína fyrir
dósir sem gjörbyltir starfseminni
að sögn forstjórans. „Hún fram-
leiðir 12 dósir á sekúndu. Þetta
verður alger bylting,“ segir Andri.
Húsið byggt á níu mánuðum
Fyrsta skóflustungan að nýja
húsinu, sem Arkís hannaði, var
tekin í apríl á síðasta ári og verk-
smiðjan var gangsett í janúar síð-
astliðnum. Ótrúlegt má telja að
framkvæmd sem þessi hafi verið
kláruð á aðeins níu mánuðum. „Að
baki er langur undirbúningur hjá
starfsfólki Ölgerðarinnar, mikil
skipulagning og svo eiga þýskir
samstarfsmenn okkar hrós skilið,“
segir Andri.
Samið var við þýska fyrirtækið
Krones um uppsetningu fram-
leiðslulínunnar en Andri lýsir því
fyrirtæki sem „Marel drykkjar-
vörubransans“. „Starfsmenn þess
bera ábyrgð á því að öll línan virki
hjá okkur, jafnvel þótt tækin komi
víðar að. Hér voru um 45 tækni-
menn frá Þýskalandi þegar mest
lét frá október og fram að jólum.
Þeir komu svo aftur í janúar til að
gangsetja. Nú eru fjórir Þjóð-
verjar hér til að fínstilla fram-
leiðsluna og við fáum svo línuna
formlega afhenta á næstu vikum.“
2,5 milljarða fjárfesting
Þegar nýja framleiðslulínan er
komin í fulla notkun verður hægt
að ráðast í endurnýjun á eldri
verksmiðju sem byggð var 1986.
„Þetta er verkefni upp á 2,5 millj-
arða króna og þegar þessari end-
urnýjun er lokið hefur Ölgerðin
fjórfaldað framleiðslugetu sína á
dósum og getur þannig komið enn
betur til móts við aukna eftirspurn
og óskir viðskiptavina sem hafa
tekið vel á móti vörum okkar,“
segir Andri.
80 milljónir eininga í fyrra
Forstjórinn segir að 46% af
starfsemi Ölgerðarinnar sé fram-
leiðsla á eigin vörumerkjum, svo
sem Appelsíni, Kristal, Egils Gulli
og Collab. „Það eru verðmætustu
gæði fyrirtækisins,“ segir hann.
Um 17% af starfseminni er fram-
leiðsla á sérleyfisdrykkjum á borð
við Pepsi og Pepsi Max, Tuborg,
Carlsberg og fleiri slíka. Þá
standa eftir 37% sem eru innflutn-
ingur á alls kyns mat- og sérvöru.
„Það er gott jafnvægi í þessu. Það
kom skýrt fram á Covid-tímanum
að þegar ákveðnir þættir falla,
rísa aðrir upp.“
Ölgerðin framleiddi rúmlega 80
milljónir eininga af drykkjarvöru
á síðasta ári. „Áherslan hefur
smám saman verið að færast yfir í
minni einingar sem neytendur
vilja og aukningin hjá okkur hefur
verið langhröðust í 33 cl dósum. Á
sama tíma er minni sala á tveggja
lítra plastflöskum. Neytendur
tengja betur við smærri einingar í
áli,“ segir Andri.
Aukin áhersla á útflutning
Hann segir að aukin afkastageta
losi um vaxtarhömlur hjá fyrir-
tækinu. Nú sé hægt að svara auk-
inni spurn neytenda eftir
drykkjum í áldósum en jafnframt
sé hægt að leggja aukna áherslu á
útflutning og vöruþróun.
„Við getum núna byrjað með til-
raunaútflutning á Collab. Það er
mikill áhugi á þeirri vöru. Um leið
getum við haldið áfram með frek-
ari vöruþróun. Eitt mikilvægasta
markmið okkar er að nýjar vörur
séu að minnsta kosti 5% af okkar
veltu hverju sinni og nú getum við
lagt aukna áherslu á drykki í dós-
um.“
Húsnæðið umhverfisvottað
Meðal breytinga sem neytendur
verða varir við er að allir gos-
drykkir Ölgerðarinnar, hvort sem
þeir heita Pepsi Max, Collab,
Kristall eða hvaðeina, verða brátt
fáanlegir í mjóum 33 cl dósum.
Ekki stendur til að bjór verði
færður yfir í slíkar umbúðir þótt
það kunni að vera prófað.
„Það er reyndar gaman að geta
þess að við fáum ekki bara hraðari
framleiðslu heldur líka enn betri
vöru úr nýju línunni. Í þessum
vélum er hitameðhöndlunin betri
en í þeim eldri. Við fáum því enn
betri vökva, bjórinn verður til að
mynda betri.“
Hann segir að út frá umhverf-
issjónarmiðum sé augljóslega
betra að framleiða drykkina á Ís-
landi, öfugt við samkeppnisaðila
Ölgerðarinnar sem flytji þá inn.
„En svo er nýja húsnæðið líka
byggt með sjálfbærni að leiðarljósi
og við bíðum þess nú að það verði
umhverfisvottað. Þá er fram-
leiðslulínan líka plastlaus og ytri
pakkningar úr léttari pappa en áð-
ur.“
Framleiða 12 dósir á sekúndu
- Ölgerðin er að taka í gagnið nýtt framleiðsluhús sem byggt var á níu mánuðum - Framleiðslugeta
fyrirtækisins á dósum fjórfaldast - Neytendur vilja drykki í litlum dósum - Geta aukið útflutning
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vöxtur Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir að nýja framleiðslulínan bylti starfseminni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dósir Egils Gull var í framleiðslu þegar Morgunblaðið skoðaði nýju fram-
leiðslulínuna í gær. Skynjarar fylgjast með hverju skrefi framleiðslunnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umbúðir Framleiðslulínan er plastlaus og öllum dósum verður hér eftir pakk-
að í léttan pappa. Framleiðsluhúsið er byggt með sjálfbærni að leiðarljósi.