Morgunblaðið - 05.05.2022, Side 34

Morgunblaðið - 05.05.2022, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 Áður 64.900 kr. (Afsláttur 16.000 kr.) 48.900 kr. Mjög öflug háþrýstidæla Dual Tech sem er með tveimur mótorum sem gefur tvöfalt vatnsflæði og gerir þrifin enn fljótlegri. Dælan er 160 bör með 14 L/mín vatnsflæði. 2,7KW mótor. Kemur með 8 metra barka, kvoðubrúsa, stillanlegum spíss og túrbospíss. Áður 39.900 kr. (Afsláttur 10.000 kr.) 29.900 kr. Öflug háþrýstidæla sem hentar vel til þess að þrífa bílinn og í kringum heimilið. Dælan er 160 bör með 7,6 L/mín vatnsflæði. 2,2 KW mótor. Kemur með 6 metra barka, kvoðubrúsa, stillanlegum spíss og túrbospíss. SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Einn og hálfur mánuður er liðinn af gráslepputímabilinu, að einu veiði- svæði undanskildu, og hefur á þess- um tíma tekist að landa rúmlega 2.618 tonnum samkvæmt tölum Fiskistofu. Ráðlagður hámarksafli veiðanna er 6.972 tonn og hafa grá- sleppubátarnir náð 37,5% af þeim afla. Á Faxaflóa, Vestfjörðum, Húna- flóa, Norðurlandi, Austurlandi og Suðurlandi er veiðitímabilið í ár frá og með 20. mars til og með 30. júní. Gert er ráð fyrir að veiðar verði stöðvaðar á þessum svæðum ef afli fer yfir 78% af ráðlögðum hámarks- afla og er það í verkahring Fiski- stofu að fylgjast með veiðum og grípa til viðeigandi aðgerða. Alls eru 22% af aflanum ætluð Breiðafirði en þar hefst veiðitímabilið ekki fyrr en 20. maí og stendur til og með 12. ágúst. Fjórðungi fleiri á rúmri viku Mun betra verð hefur fengist á vertíðinni en búist var við, bæði á mörkuðum og hjá stærri kaupend- um. Fréttir af hagstæðu verði virð- ast hafa hvatt margan grásleppu- sjómanninn af stað og hefur aðsókn í veiðarnar aukist nokkuð en í byrjun síðustu viku höfðu 105 bátar landað grásleppu, en þeim hefur fjölgað um tæpan fjórðung og var þetta orðinn 131 bátur 3. maí. Veður hefur einnig þótt henta vel til veiða og var með- afli á bát fyrir tíu dögum 14,8 tonn en var 3. maí orðinn rétt tæp 20 tonn þrátt fyrir töluverða fjölgun báta. Töluverður fjöldi báta, eða 83, hefur lokið veiðum en veiðidögum var fækkað í 25 úr 35 á grásleppu- vertíðinni í fyrra. 61 bátur var 3. maí með virk leyfi og er það nokkur fjölgun frá byrjun síðustu viku þeg- ar þeir voru 53. Enginn bátur hefur enn náð 50 tonnum enn sem komið er, en afla- mesti báturinn það sem af er grá- sleppuvertíð er Hlökk ST-66 með 48,7 tonn. Næst á eftir er Norðurljós NS-40 með 46,5 tonn og síðan Elín ÞH-82 með 44,4 tonn. Töluvert hefur verið fjallað um brottkast á vertíðinni en ekki er ljóst hver niðurstaða þeirra mála verður, en fjöldi grásleppusjómanna hefur dregið í efa lögmæti drónaeft- irlits Fiskistofu. Staða grásleppuvertíðarinnar 3. maí 2022 0% Heimild: Fiskistofa Lokið veiðum Virk leyfi Alls A. Faxaflói 9 6 15 B. Breiðafjörður 1 5 6 C.Vestfirði 6 5 11 D. Húnaflói 17 12 29 E. Norðurland 32 18 50 F.Austurland 15 10 25 G. Suðurland 3 5 8 Fjöldi leyfa 83 61 144 Þátttaka á vertíðinni Aflastaða á tímabilinu 20. mars til 3. maí30 aflamestu grásleppubátarnir 2.619 tonn er heildarafli vertíðarinnar 131 bátur hefur hafið veiðar 20 tonn er meðalafli báta Afli, tonn Hlökk ST 66 48,7 Norðurljós NS 40 46,5 Elín ÞH 82 44,4 Simma ST 7 43,7 Rán SH 307 43,1 Kóngsey ST 4 42,5 Benni ST 5 42,1 Sæfari BA 110 41,7 Skúli ST 75 41,3 Sæfugl ST 81 38,4 Fönix BA 123 37,4 Tóti NS 36 36,8 Sigrún Hrönn ÞH 36 35,8 Sigurey ST 22 35,8 Ísak AK 67 35,4 Helga Sæm ÞH 70 34,7 Afli, tonn Bergur Sterki HU 17 34,5 Natalia NS 90 34,0 Fíi ÞH 11 33,6 Gísli ÍS 22 33,3 Herja ST 166 32,2 Gunnþór ÞH 75 32,1 Gunnar KG ÞH 34 31,8 Glettingur NS 100 31,0 Júlía SI 62 30,8 Björn EA 220 30,4 Ás NS 78 29,8 Garpur RE 148 29,8 Ásdís ÞH 136 29,0 Kristinn ÞH 163 28,8 Hinir 101 bátarnir 1.530 Heildarafli 2.619 Alls hafa 83 grásleppu- bátar lokið veiðum - Virkum leyfum fjölgað á undanförnum tíu dögum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Við hjá ScaleAQ erum stolt af því að afhenda Fiskeldi Austfjarða/ Löxum fyrsta steypta fóðurpramm- ann sem tekinn er í notkun á Ís- landi,“ segir Höskuldur Steinarsson, framkvæmdastjóri Scale AQ á Ís- landi. Fóðurpramminn sem um ræð- ir hefur fengið nafnið Sandey og verður til sýnis við höfnina á Fá- skrúðsfirði um helgina, nánar til tek- ið laugardag milli tíu og tvö. Sandey er ekkert smáræði og get- ur tekið allt að 600 tonnum af fóðri í fóðursíló. Auk þess sem 100 tonn af fóðri komast fyrir í geymslulest sem er 20 sinnum 40 metrar að stærð og rúmar allt að 130 rúmmetra af meltu. Höskuldur segir prammann búinn öllum helstu tækninýjungum hvað fóðurkerfi varðar, en bæði kerfið fyrir fóðrun og pramminn sjálfur eru að öllu leyti fjarstýrð. Steyptur fóðurprammi er talinn mjög stöðugur í sjó og hefur hátt ölduþol sem gerir að verkum að hann hentar vel fyrir þær krefjandi aðstæður sem geta skapast við Ís- landsstrendur, útskýrir Höskuldur. „Þá hefur steyptur prammi þann ótvíræða kost að hann þarf ekki að taka úr sjó reglulega til viðhalds, hreinsunar og málunar. Hann hefur því langan og órofinn starfstíma.“ Minni olíunotkun Hann fullyrðir að Sandey þurfi 60% minna af olíu þar sem pramm- inn er gengur fyrri tengiltvinnkerfi sem hefur þá kosti að draga úr losun og stuðli að lengri endingu vélabún- aðar. „Sandey er öflug viðbót við þann góða búnað sem fyrir er hjá Fiskeldi Austfjarða/Löxum og mun styrkja fyrirtækið enn frekar til að takast á við þann vöxt sem fram undan er í fiskeldinu á Aust- fjörðum,“ segir Höskuldur. Ljósmynd/ScaleAQ Stöðugur Steyptur fóðurprammi er sagður hafa mikla kosti fram yfir fljót- andi. Meðal annars hefur hann hátt ölduþol og þarf minna viðhald. Fyrsti steypti pramminn - Tekur fleiri hundruð tonn af fóðri Afurðaverð á markaði 3.maí 2022,meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 406,38 Þorskur, slægður 533,95 Ýsa, óslægð 467,86 Ýsa, slægð 406,99 Ufsi, óslægður 182,07 Ufsi, slægður 239,16 Gullkarfi 284,62 Blálanga, slægð 72,00 Langa, óslægð 241,93 Langa, slægð 239,18 Keila, óslægð 77,99 Keila, slægð 74,76 Steinbítur, óslægður 156,27 Steinbítur, slægður 239,12 Skötuselur, slægður 1.057,85 Skarkoli, óslægður 10,00 Skarkoli, slægður 362,79 Þykkvalúra, slægð 507,35 Langlúra, óslægð 258,70 Sandkoli, óslægður 165,13 Gellur 1.251,50 Grásleppa, óslægð 10,59 Hlýri, slægður 329,79 Hrogn/þorskur 51,00 Lúða, slægð 628,87 Lýr, óslægður 16,86 Lýsa, óslægð 26,91 Lýsa, slægð 71,79 Rauðmagi, óslægður 60,00 Sandhverfa, slægð 1.297,00 Skata, óslægð 76,00 Skata, slægð 45,58 Undirmálsýsa, óslægð 20,71 Undirmálsýsa, slægð 30,00 Undirmálsþorskur, óslægður 10,00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.