Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
RAFVÖRUR ehf
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Hitakútar
rafvorur.is
Amerísk gæðaframleiðsla
Sorpkvarnir
í vaska
Kokkarnir á Hnossi með Fanneyju
Dóru Sigurjónsdóttur í broddi fylk-
ingar munu bjóða upp á alíslenskt
borðhald þar sem öll hráefnin koma
beint frá býli. Rammagerðin býr til
boðrhald þar sem hver hlutur er
sérhannaður fyrir þennan tiltekna
viðburð. Áhugafólki um íslenska
hönnun er boðið að setjast að borð-
um og upplifa hönnunina og mat-
argerðina á þann hátt sem ekki hef-
ur verið kynntur fyrr hér á landi.
Á matseðlinum kennir ýmissa
grasa á borð við saltfisk með tómat
og rófum, blálöngu og blóðbergs-
búðing svo fátt eitt sé upptalið og
hægt er að fá kampavínspörun
með.
Borðbúnaðurinn kemur allur frá
Aldísi Einarsdóttur en hún hefur
þróað þá vöru með Rammagerðinni.
Munnblásin glerglös frá Carissa
Baktay sem framleidd eru á Kjal-
arnesi, nánar tiltekið á gamla gler-
verkstæði Glervíkur. Kerti eftir
Þórunni Árnadóttur verða kynnt en
Þórunn hóf þróun á kertalínu
Rammagerðarinnar í lok síðasta
árs. Kertin hafa verið þróuð með
Kertasmiðjunni og við sjáum hluta
afrakstursins á viðburðinum.
Hnífapörin ættu svo að vekja
verðskuldaða athygli því þau eru
gerð úr afskornum marmara.
Fyrirtækið Arkitypa hefur tekið að
sér að hefja þróun á hnífapörum
þar sem sköftin eru úr afskornum
marmara sem annars hefði farið í
landfyllingu. Á viðburðinum verða
fyrstu hnífapörin frumsýnd.
Að auki verður Fischer með
óvenjulega aðkomu að kvöldverð-
inum en þau þróuðu sérstaka
desertlykt sem gestum verður boð-
ið að ilma af í byrjun kvölds og má
segja að borðhaldið byrji á öfugum
enda. Síðast en ekki síst mun ker-
amikerinn Bjarni Viðar skreyta
borðið með sínum fallegu munum.
Í boði er að panta borð klukkan
18 og 20 til 8. maí.
Þar sem íslensk hönnun
og matreiðsla mætast
HönnunarMars er formlega hafinn og af því tilefni hafa veitingastaðurinn
Hnoss og Rammagerðin stillt saman strengi sína til að sýna fram á allt það
besta í íslenskri hönnun og matargerðarlist.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hnoss og Rammagerðin Fanney Dóra
og hennar teymi munu galdra fram ís-
lenska matarveislu af bestu gerð.
Það hefur sjálfsagt ekki farið fram
hjá neinum að Danskir dagar standa
sem hæst í verslunum Hagkaups.
Eitt af því sem vakið hefur athygli
eru kornhænuegg en þau þykja mik-
ið fágæti og einstaklega fögur.
Kornhænueggin eru minni en hefð-
bundin hænuegg og ákaflega falleg
sem býður upp á skemmtilegar
framsetningar á mat og því ætti eng-
inn metnaðarfullur matarljósmynd-
ari eða áhrifavaldur að láta eggin
fram hjá sér fara.
Einnig eru í boði lífræn egg frá
danska framleiðandanum DAVA en
mikil áhersla er lögð á velferð dýr-
anna og fær hver hæna aðgang að
góðu úti- og innisvæði, náttúruleg
lýsing er á innisvæði, lífrænt fóður,
aðgangur að hreiðrum, auk þess sem
regluleg úttekt fer fram á starfsem-
inni af hálfu yfirvalda.
Kornhænuegg fáanleg
í takmarkaðan tíma
Fágæti Það er ekki
oft sem íslenskum
neytendum býðst
að kaupa fersk
kornhænuegg.