Morgunblaðið - 05.05.2022, Síða 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
J
ohnny Depp er hættur í
kvikmyndaseríunni Stór-
kostlegar skepnur en ferill
fyrrverandi kærustu hans
Amber Heard virðist ekki hafa orð-
ið fyrir svipuðum skaða þrátt fyrir
að svo virðist sem Heard hafi
hugsanlega beitt Depp ofbeldi í
sambandi þeirra. Fyrrum karakter
Johnny Depp, Gellert Grindelwald,
verður öflugri en nokkru sinni fyrr
enda enginn annar en Mads Mikk-
elsen sem tók við hlutverkinu en
þessi leikaraskipti eru ekki útskýrð
í myndinni frekar en svo margt
annað. Það er þó ekki slæmt að fá
kyntáknið Mikkelsen í seríuna en
hann er mun hryllilegri en hinn
fjölskylduvæni og teiknimyndalegi
Depp. Sú tegund af Grindelwald
var einum of lík illmenninu Jack
Frost úr The Santa Clause 3: The
Escape Clause sem er ekkert sér-
lega ógnvekjandi.
Líkt og svo margt skemmtiefni
nú til dags byggir Stórkostlegar
skepnur: Leyndarmál Dumbledore
á pólitískum grunni sem gerir
áhorfendum erfiðara að flýja veru-
leika sinn í fantasíunni. Sagan ger-
ist í Berlín árið 1932, á svipuðum
tíma og Hitler nær völdum, þar sem
verið er að velja næsta leiðtoga
galdraheimsins. Grindelwald, Hit-
ler galdraheimsins, vill markvisst
drepa alla mugga en hann lítur ekki
á þá sem manneskjur heldur dýr.
Til þess verður hann að sigra í
kosningunum sem hann reynir að
gera með óheiðarlegum brögðum.
Það er undir Dumbledore (Jude
Law), Newt (Eddie Redmayne) og
vinum þeirra komið að koma í veg
fyrir að það gerist.
Þessi fafla nægði hins vegar ekki
handritshöfundunum J.K. Rowling
og Steve Kloves heldur þurftu þau
að auka flækjustigið í myndinni.
Fjölskyldu- og ástarerjur Dumble-
dore koma upp á yfirborðið um leið
og hópurinn er að reyna að koma í
veg fyrir heimsstyrjöld. Dumble-
dore er greinilega hrifinn af slæm-
um strákum en Grindelwald er
fyrrverandi kærasti hans. Báðir
bera þeir gamalt blóðeiðshálsmen
sem gerir það að verkum að þeir
geta ekki barist gegn hvor öðrum.
Þessu mætti líkja við það að fá sér
tattú af kærasta sínum eða nafni
hans sem er oft ekki góð hugmynd
eins og sýnir sig í Stórkostlegar
skepnur: Leyndarmál Dumbledore,
þar sem fyrrverandi kærastinn
reynist vera bandbrjálaður fasisti.
Þrátt fyrir að Jude Law og Mad
Mikkilsen séu báðir mjög sjarm-
erandi og frábærir leikarar er eng-
inn neisti á milli þeirra og erfitt að
ímynda sér að karakterarnir hafi
átt í rómantísku sambandi.
Dumbledore er þó ekki einungis
óheppinn í ástum heldur kemur
honum ekkert sérlega vel saman
við bróður sinn (Richard Coyle) eða
nýuppgötvaðan frænda sinn, Cre-
dence Barebone (Ezra Miller). Cre-
dence leikur stórt hlutverk í mynd-
inni en hann er ungur maður í
tilvistarkreppu sem getur ekki
ákveðið hvort hann tilheyri hinu illa
eða því góða. Það að Ezra Miller
leiki hlutverkið er truflandi í ljósi
nýlegra frétta en hán hefur ítrekað
verið handtekið fyrir ofbeldisfulla
hegðun.
Líkt og fyrri Stórkostlegar
skepnur-myndirnar er sögufram-
vindan ekki nógu spennandi en það
sem fyrri myndirnar tvær hafa
fram yfir Leyndarmál Dumbledore
eru nægir töfrar og krúttlegar
skepnur til að skemmta áhorf-
endum. Stórkostlegu skepnurnar
sem skapaðar eru með tölvubrellum
Christian Manz og hans teymi er
eitt af fáum einkennum sem gera
Stórkostlegar skepnur-myndirnar
sérstakar. Besta atriðið í Leynd-
armál Dumbledore er einmitt dæmi
þar sem slíkar skepnur leika stórt
hlutverk. Það er þegar Newt þarf
að bjarga bróður sínum, Theseus
(Callum Turner), úr fangelsi.
Hræðilegar skepnur, álíkar humr-
um, herja á fangelsið en til þess að
komast lifandi út úr því þurfa þeir
að dansa kjánalegan dans og þann-
ig dáleiða verurnar. Um er að ræða
mjög fyndið atriði þar sem bræð-
urnir þrykkja mjöðmunum fram og
til baka og skepnurnar herma eftir
þeim.
Stórkostlegar skepnur: Leynd-
armál Dumbledore er stórkostlegt
sjónarspil en sagan er illa sögð. Það
er líkt og án þríeykisins Harry Pot-
ter, Hermoine og Ron viti handrits-
höfundarnir og leikstjórinn, David
Yates, ekki hvert þeir eigi að
stefna. J.K. Rowling skrifaði fyrstu
tvö handritin að Stórkostlegar
skepnur-myndunum en Leyndar-
mál Dumbledore skrifaði hún með
Steve Kloves sem skrifaði nánast
allar Harry Potter-myndirnar.
Þessi kvikmynd tekst hins vegar
á við sama vandamál og þær fyrri.
Allt of mikið á sér stað í þeim og
áhorfendum er gefið lítið tækifæri
til þess að anda eða kynnast sögu-
persónum. J.K. Rowling virðist
vera of föst í bókmenntaformúlunni
og því eflaust ekki besti handrits-
höfundurinn. Hún er frábær bók-
arhöfundur en hvorki eins frábær
handritshöfundur né aðgerðasinni
eins og þegar hún sagði að trans-
konur væru ekki alvörukonur.
Veikur fyrir slæmum strákum
Illa sögð „Stórkostlegt sjónarspil en sagan er illa sögð,“ skrifar rýnir um kvikmyndina Stórkostlegar skepnur:
Leyndarmál Dumbledore. Hér má sjá nokkra af helstu leikurum myndarinnar, Jude Law í broddi fylkingar.
Smárabíó og Háskólabíó
Fantastic Beasts: The Secrets of
Dumbledore/Stórkostlegar skepnur:
Leyndarmál Dumbledore bbmnn
Leikstjórn: David Yates. Handrit: J.K.
Rowling og Steve Kloves. Aðalleikarar:
Eddie Redmayne, Jude Law, Ezra Miller,
Dan Fogler, Alison Sudol, William Nady-
lam, Callum Turner, Jessica Williams,
Victoria Yeates, Poppy Corby-Tuech,
Fiona Glascott, Katherine Waterston,
Maria Fernanda, Cândido, Richard
Coyle, Oliver Masucci, Aleksandr Kuz-
netsov og Mads Mikkelsen. Bretland og
Bandaríkin, 2022. 142 mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Kristveig Hall-
dórsdóttir opn-
aði sýningu í sal
SÍM í gær sem
ber titilinn Líf-
rænar arkir.
Segir í texta
listakonunnar að
trefjarnar í
handgerða papp-
írnum myndi
autt blað, eins
konar tóm sem sé undanfari þess
sem geti orðið. „En í tóminu leynist
iðandi líf allra möguleika ef vel er
að gáð. Pappírinn er lifandi, líf-
rænn og sjálfum sér nógur,“ segir
m.a. í texta Kristveigar og að af
virðingu við efniviðinn lesi hún í
innihaldið og leitist við að vera hon-
um trú. Sumar arkirnar styrki hún
með náttúrulegum efnum á borð
við trjákvoðu og bývax og saman
styrki þau viðkvæman pappírinn og
geri hann meðfærilegri. Útsaumur,
spor, línur og litir verði að óræðum
sögum þar sem lesa megi milli lín-
anna. Salur SÍM er að Hafnarstræti
16 í Reykjavík og lýkur sýningunni
30. maí.
Í tóminu leynist líf
Kristveig
Halldórsdóttir
Hafnarborg verð-
ur opin í kvöld kl.
18-20 í tengslum
við Hönnunar-
Mars. Verður
opnun sýningar
Fléttu og Krist-
ínar Sigurðar-
dóttur, Efnis-
heimur steinull-
ar, fagnað með
formlegum hætti en henni lýkur 15.
maí. „Efnisheimur steinullar er sam-
starfsverkefni Fléttu og Kristínar
Sigurðardóttur þar sem leikið er
með ólíkar leiðir til að umbreyta
steinull í nýtt efni,“ segir í tilkynn-
ingu. Kristín er vöruhönnuður og er
rannsóknarverkefni Fléttu og Krist-
ínar, Efnisheimur steinullar, beint
framhald af útskriftarverkefni
hennar frá Listaháskóla Íslands þar
sem hún vann með umbreytingu
steinullar í svart glerjað efni. Hönn-
uðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir og
Hrefna Sigurðardóttir stofnuðu
Fléttu 2018 en hafa unnið saman að
verkefnum tengdum endurvinnslu
og uppvinnslu hráefna síðan 2014.
Opnun fagnað
Umbreytt steinull
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER.
U S A TO D AY
89%
92%
Total Film
Radio Times
Colin Firth – Matthew Macfadyen – Kelly Macdonald
THE LEGACY CONTINUES
72%
BENEDICT
CUMBERBATCH
ELIZABETH
OLSEN
chiwetel
ejiofor
BENEDICT
WONG
xochitl
gomez
MICHAEL
STÜHLBARG
RACHEL
MCadams