Morgunblaðið - 05.05.2022, Síða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Sólrún Freyja Sen er verkefna-
stjóri Reykjavík Feminist Film
Festival og segir hún að fólk megi
eiga von á góðum stundum. „Það
átti upphaflega að halda hátíðina í
janúar en þurfti að fresta vegna
samkomutakmarkana. Það er því
mikill léttir að geta loks haldið
hana en þetta er búin að vera mikil
vinna og heilmikill undirbúningur
sem liggur að baki hátíðinni. Það er
ánægjulegt að þurfa ekki að halda
þetta í samkomubanni, það hefði
vissulega verið hægt en mun leið-
inlegra. Nú komast fleiri og við
fáum í staðinn meira partí,“ segir
Sólrún.
Þurfa að hafa meira
fyrir kvikmyndunum
Markmið hátíðarinnar er að
vekja athygli á þeim konum sem
eru að miklu leyti ósýnilegar í kvik-
myndaiðnaðinum. „Þetta eru konur
sem tilheyra minnihlutahópum og
undirokuðum hópum eins og til
dæmis hinsegin konur eða konur af
öðrum kynþætti en hvítum. Við vilj-
um búa til vettvang þar sem þeirra
rödd heyrist og hvernig þær upplifa
veruleikann.“
Sólrún segir þau hafa getað valið
úr mörgum mjög góðum myndum.
„Grunur minn og margra er að
konur þurfi almennt að sanna sig
meira og hafa meira fyrir kvik-
myndunum sínum en það er til
dæmis erfiðara fyrir þær að fá fjár-
magn. Þannig að þótt það séu
kannski ekki margar myndir sem
eru eftir konur sem tilheyra
ákveðnum hópum þá eru þær flest-
ar af mjög miklum gæðum. Það er
mikið lagt í þær auk þess sem þær
hafa eitthvað alveg nýtt fram að
færa,“ segir Sólrún.
Myndin bönnuð í heimalandinu
Sólrún segir margar flottar
myndir á hátíðinni sem fólk ætti
ekki að láta fram hjá sér fara.
„Ég mæli eindregið með að fólk
sjái opnunarmyndina, RAFIKI, en
hún er eftir Wanuri Kahiu frá Ke-
níu og fjallar um vinkonur sem
verða ástfangnar. Myndin var
bönnuð í heimalandinu enda sam-
kynhneigð ólögleg í Keníu. Þá mæli
ég einnig með myndinni Precious
Ivie eftir Söruh Blasskiewitz. Hún
fjallar um Ivie og hvernig hún upp-
lifir í daglegu lífi allt það öráreiti
sem fylgir fordómum samfélagsins.
Einnig verða margar íslenskar
stuttmyndir á boðstólum sem og
myndir á borð við Sóleyju eftir
Rósku og Song Called Hate þar
sem ferð Hatara á Eurovision-
keppnina í Ísrael er í forgrunni.“
Gestir geta styrkt góð málefni
Athygli vekur að RVK FFF legg-
ur líka töluverða áherslu á að
leggja góðum málefnum lið. Á dag-
skrá hátíðarinnar er gestum gefið
tækifæri til þess að styrkja málefni
sem tengjast Úkraínu og svo
Urðarbrunn. „Urðarbrunnur er
skaðaminnkandi úrræði fyrir
heimilislausar óléttar konur eða
óléttar konur sem eiga við mikinn
vímuefnavanda að stríða. Elísabet
Ósk Vigfúsdóttir hefur barist hart
fyrir úrræði sem þessu á Íslandi.
Hún er búin að fá öll tilskilin leyfi
en ekkert fjármagn. Við viljum því
leggja okkar af mörkum og bjóða
gestum hátíðarinnar að styrkja
Urðarbrunn og um leið fræðast um
hvernig styrkurinn verði nýttur og
starfseminni háttað.“
Allt unnið í sjálfboðavinnu
Sólrún finnur fyrir mikilli velvild
í garð hátíðarinnar. „Mörgum
finnst þetta mikilvægt málefni og
vilja leggja okkur lið. Það er dýr-
mætt að finna fyrir meðbyr enda er
þetta allt unnið í sjálfboðavinnu.
Það er sífellt háværari krafa um að
konur fái stærri vettvang innan
kvikmyndagerðarinnar og aðstoð
við að fjármagna verkefni sín. Þetta
er liður í því að vekja athygli á því
sem konur eru að gera,“ segir
Sólrún en nánari upplýsingar um
hátíðina má finna á heimasíðunni
rvkfemfilmfest.is.
Stýrir Sólrún Freyja Sen er verkefnastjóri Reykjavík Feminist Film Festival. Fordómar Úr kvikmyndinni Precious Ivie sem fjallar um fordóma.
RAFIKI Keníska kvikmyndin sem er bönnuð í heimalandinu.
Konur á jaðrinum fái rödd
- Konur verða í forgrunni RVK Feminist Film Festival sem hefst í dag og lýkur á sunnudag, 8. maí
- Á hátíðinni kennir ýmissa grasa og margir skemmtilegir viðburðir haldnir á vegum hennar
Morgunblaðið/Eggert
Sýningarnar Pétur Pan eftir J.M.
Barry í leikstjórn Gretu Clough hjá
Leikflokki Húnaþings vestra og
Fyrsti kossinn eftir Brynju Ýri Júl-
íusdóttur og Guðlaug Ómar Guð-
mundsson í leikstjórn Karls Ágústs
Úlfssonar hjá Leikfélagi Keflavíkur
hafa verið valdar athyglisverðustu
áhugaleiksýningar leikársins. Sýn-
ingarnar verða sýndar í Kassanum í
Þjóðleikhúsinu í júní, Fyrsti kossinn
9. og 10. júní og Pétur Pan 12. júní.
„Val Þjóðleikhússins á athyglis-
verðustu áhugaleiksýningu leikárs-
ins hefur nú farið fram í 27. sinn.
Vegna Covid-faraldursins náðu
færri leikfélög að setja á svið sýn-
ingar en venjubundið er. Þar sem
valið féll niður tvö leikár í röð vegna
faraldursins var að þessu sinni tekin
sú ákvörðun að velja tvær leiksýn-
ingar, eina barnasýningu og aðra
ætlaða fullorðnum, og vekja þannig
um leið sérstaka athygli á hinu
kraftmikla starfi sem unnið er í
áhugaleikfélögum um land allt, þrátt
fyrir oft og tíðum afar krefjandi að-
stæður,“ segir í tilkynningu frá leik-
húsinu. Formaður dómnefndar var
Björn Ingi Hilmarsson, leikari, leik-
stjóri og verkefnastjóri barna- og
fræðslustarfs í Þjóðleikhúsinu, en
aðrir í nefndinni voru Sváfnir Sig-
urðarson tónlistarmaður og kynn-
ingarfulltrúi Þjóðleikhússins og
Kjartan Darri Kristjánsson leikari.
Athyglisverðasta
áhugaleiksýning ársins
Gleðistund Björn Ingi Hilmarsson frá Þjóðleikhúsinu, Brynja Ýr
Júlíusdóttir og Guðlaugur Ómar Guðmundsson frá Leikfélagi Keflavíkur og
Arnar Hrólfsson frá Leikflokki Húnaþings vestra voru að vonum kát.
Djúsý
kjúklingasalatKringlan ... alltaf næg bílastæði
Borðabókanir á
www.finnssonbistro.is eða
info@finnssonbistro.is
Frábær kostur í hádeginu
Þín upplifun skiptir okkur máli