Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 14

Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 14
U ppáhaldsförðunarvaran mín er Estée Lauder Double Wear Foundation en sá farði hefur reynst mér vel í starfi og í daglega lífinu. Farðinn er þekjandi, með fallegri áferð og endist allan daginn.“ elinros@mbl.is „Estée Lauder Double Wear Foundation“ Ljósmynd/Þóra Margrét Friðriksdóttir Farðinn frá Estée Lauder, Double Wear, er þekjandi með fallegri áferð að mati Katrínar Erlu. Katrín Erla Friðriksdóttir, förðunarfræð- ingur og flugfreyja, er með fallega húð þannig að eftir er tekið. Hún notar farða sem er sá allra besti að hennar mati. Katrín Erla prófaði sig töluvert áfram þegar kom að farða og fann þann besta fyrir sig sem er frá Estée Lauder. 14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 segir alltaf satt. Er þá ógerlegt fyrir einhverfa að ljúga? „Við meinum vanalega það sem við segjum og tökum hlutina bókstaflega. Eins höldum við að annað fólk meini það sem það segir og við getum átt erfitt með að lesa á milli lína. Þegar ég sem dæmi er að segja það sem ég tel vera staðreyndir gætu sumir haldið að ég væri að ýja að einhverju, sem ég er ekki að gera. Þú getur því ímyndað þér hvað margt getur farið úrskeiðis í samtali á milli fólks sem er ein- hverft og þeirra sem eru það ekki. Einhverfir fatta líka stundum ekki að þeir virka dónalegir og getur brugðið mjög í brún við þau tilsvör sem þeir fá eftir einfalda útlist- un á sannleikanum. Ég er stundum með „resting bitch face“, þar sem ég er alvarleg og þung á brún. Það er meðal annars vegna þessa sem við einhverfir erum stundum talin hrokafull og ópersónuleg. „Einhverfir heilsa oft ekki, sérstaklega þeg- ar þeir eru þreyttir, sem telst vera ókurteisi í íslensku samfélagi. Eins geta einhverfir átt erfitt með að muna hluti, sem getur valdið árekstri og núningi í samskiptum. Á vinnustaðnum er algengt að einhverfir séu einstaklega góðir í faginu sínu, eigi gott með að umgangast viðskiptavinina, en erfiðara með samskipti við samstarfsfólk sitt. Ástæðan fyrir þessu er sú að allar óskrifaðar reglur eru erf- iðar og torskildar fyrir þá sem eru á rófinu.“ Fólk á skynseginrófi dregst stundum saman Þegar kemur að parasamböndum segir Guð- laug Svala að líkir sæki líkan heim, og að fólk á skynseginrófi, svo sem einhverfir eða fólk með athyglisbrest, dragist stundum saman. „Ég líki þessu stundum við að þefa uppi Ís- lending í útlöndum. Það er margt sem gerist í ástarsamböndum einhverfra. Mörg okkar sem hafa minni sýnilega einhverfu og erum góð í að setja upp grímu erum alltaf að leika hlutverk. Við erum ekki við sjálf þegar við erum að þóknast öðrum. Þegar við vitum ekki hver við erum, hvernig getur maki okkar vitað það heldur? Þetta er algengt vandamál í nánum parasamböndum þar sem annar eða báðir eru einhverfir.“ Það geta orðið árekstrar á heimili þar sem einhverfur einstaklingur býr, þegar fleiri á heimilinu eru á rófinu verður heimilislífið ósjálfrátt litríkt. „Einn getur átt erfitt með matarlykt, á með- an útvarpið fer í annan og sá þriðji er alltaf þreyttur og sofandi.“ Þau málefni sem Guðlaug Svala vill berjast fyrir er að fólk á einhverfurófi fái viðeigandi stuðning. uppi í langan tíma. Margir einhverfir eru með ranga greiningu og hafa náð viðmiðun um per- sónuleikaröskun þegar það á ekki við. Sumir hafa jafnvel verið greindir með geðklofa, með- ferðin við geðklofa virkar að sjálfsögðu ekki, ekki frekar en það virkar að gefa lýsispillur við ilsigi.“ Af hverju ákvaðst þú að stíga fram og leggja málefnum einhverfra lið? „Ég vildi nota mína rödd, því ég upplifði ákveðið frelsi við greininguna. Eins vildi ég sýna fólki að við erum alls konar. Lífslíkur ein- hverfra eru 15-20 árum minni en þeirra sem eru það ekki. Vegna þess að við leitum síður til lækna og einöngrum okkur. Við lendum oft utangátta, erum þunglynd með kvíða og svo eru sum okkar með sjálfskaðandi hegðun sem getur einnig haft alvarleg áhrif,“ segir hún og útskýrir að sá hópur sem er oft í sjálfskaða sé þeir sem hafa setið lengi bak við grímuna og það reyni á orkubirgðirnar. „Það reynir á að passa ekki inn og skilja ekki hvers vegna.“ Þurfti virkilega að muna að þakka fyrir fundinn Hún segir þá sem fá hugrekki til að fara í greiningu og þiggja aðstoð við því sem þeir eru að fást við hverju sinni geta byrjað að njóta sín á eigin forsendum. „Það er fátt sem brýtur sjálfsmyndina meira niður en að vera í stöðugum ágreiningi við samfélag sitt.“ Geturðu gefið okkur dæmi úr eigin lífi hvernig er að vera með einhverfu? „Ég hef oft fengið spurninguna „af hverju ertu að tala svona við mig?“ þegar ég er bara að tala á almennu nótunum um eitthvað sem mér finnst vera staðreynd. Eins þegar ég var formaður Bandalags háskólamanna, BHM, þá átti ég oft fundi með ráðherrum. Þá þurfti ég virkilega að minna mig á að heilsa fallega í upphafi funda og segja „takk fyrir þennan fund“. Mér fannst það algjör tímaeyðsla og óþarfi, enda vorum við hvort sem er ekki öll að flýta okkur?“ spyr hún snögg upp á lagið og brosir út að eyrum. Hún segir lífið gott í dag, þótt það sé ennþá fullt af verkefnum. „Nú þekki ég mig betur og veit hvað ég stend fyrir. Ég get skilið fólk betur og við- brögð þess við mér. Eins finnst mér stundum bara gott að láta fólk vita hver ég er áður en það byrjar að tala við mig. Það skiptir mig máli að vera í góðum samskiptum við fólk því við einhverfir erum jú með allar sömu þarfir og aðrir. Við skjótum bara beint í mark í stað þess að fara fjallabaksleiðina að markinu.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon „Við meinum vanalega það sem við segjum og tökum hlutina bókstaflega. Eins höldum við að annað fólk meini það sem það segir og við getum átt erfitt með að lesa á milli lína.“ Guðlaug Svala var formaður Bandalag háskólamanna, BHM. Í því starfi þurfti hún að minna sig á að þakka fyrir fundi með ráðherrum, en slíkt finnst henni algjör óþarfi. Enda allir að flýta sér og nóg að gera hjá hinu opinbera og félagasamtökum. an stuðning, takmarkaðan skilning á álagi, set- ur upp grímu og fer svo í þrot með allt saman. Það er mikil vakning í gangi í samfélaginu okk- ar þessu tengt og hefur myndast fallegt sam- félag á Facebook sem dæmi fyrir skynsegin fólk.“ Hún segir hinsegin skynjun þannig að nú erfi fólk þetta frá börnum sínum, sem er svip- að því ferli sem hún fór í gegnum. „Það er ekki hægt að ímynda sér hversu mikill léttir fer í gegnum huga fólks þegar það hættir að vera latt, lélegt og dónalegt og fær að vera einhverft. Það gefur bæði þeim ein- hverfu og aðstandendum þeirra fleiri tæki- færi.“ Eru þá allir einhverfir með félagsfælni? „Nei ekki í grunninn, en það getur þróast þannig. Því í fjölmenni er hávaði, lykt af fólki og það getur verið erfitt að sitja með grímuna „Þetta er eins og að vera nærsýnn með eng- in gleraugu. Þú yrðir fljótt þreytt í augunum og gætir ekki lesið.“ Einhverfukulnun er ekkert grín Nú til dags er ekki talað um væga eða mikla einhverfu, dæmigerða eða ódæmi- gerða, því það er svo mörgum gildum hlaðið. Reynslan er svipuð fyrir fólk með einhverfu, þótt einkennin komi mismunandi út hjá fólki. Guðlaug Svala er dæmi um einstakling sem myndi greinast með frekar væg ein- hverfueinkenni. Hún lenti í alvarlegri ein- hverfukulnun árið 2018 þar sem hún upplifði mikið færnitap og hætti sem dæmi að geta lesið í upp undir ár. „Einhverfukulnun getur orðið af mörgu, en fyrst og fremst vegna of mikils álags og of mikilla krafna. Fólk er þá með lítinn sem eng-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.