Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 14
U
ppáhaldsförðunarvaran mín er Estée
Lauder Double Wear Foundation en sá
farði hefur reynst mér vel í starfi og í
daglega lífinu. Farðinn er þekjandi,
með fallegri áferð og endist allan daginn.“
elinros@mbl.is
„Estée Lauder
Double Wear
Foundation“
Ljósmynd/Þóra Margrét Friðriksdóttir
Farðinn frá Estée Lauder, Double
Wear, er þekjandi með fallegri
áferð að mati Katrínar Erlu.
Katrín Erla Friðriksdóttir, förðunarfræð-
ingur og flugfreyja, er með fallega húð
þannig að eftir er tekið. Hún notar farða
sem er sá allra besti að hennar mati.
Katrín Erla prófaði sig töluvert
áfram þegar kom að farða og
fann þann besta fyrir sig sem
er frá Estée Lauder.
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022
segir alltaf satt. Er þá ógerlegt fyrir einhverfa
að ljúga?
„Við meinum vanalega það sem við segjum
og tökum hlutina bókstaflega. Eins höldum við
að annað fólk meini það sem það segir og við
getum átt erfitt með að lesa á milli lína. Þegar
ég sem dæmi er að segja það sem ég tel vera
staðreyndir gætu sumir haldið að ég væri að
ýja að einhverju, sem ég er ekki að gera. Þú
getur því ímyndað þér hvað margt getur farið
úrskeiðis í samtali á milli fólks sem er ein-
hverft og þeirra sem eru það ekki.
Einhverfir fatta líka stundum ekki að þeir
virka dónalegir og getur brugðið mjög í brún
við þau tilsvör sem þeir fá eftir einfalda útlist-
un á sannleikanum.
Ég er stundum með „resting bitch face“, þar
sem ég er alvarleg og þung á brún. Það er
meðal annars vegna þessa sem við einhverfir
erum stundum talin hrokafull og ópersónuleg.
„Einhverfir heilsa oft ekki, sérstaklega þeg-
ar þeir eru þreyttir, sem telst vera ókurteisi í
íslensku samfélagi. Eins geta einhverfir átt
erfitt með að muna hluti, sem getur valdið
árekstri og núningi í samskiptum.
Á vinnustaðnum er algengt að einhverfir séu
einstaklega góðir í faginu sínu, eigi gott með
að umgangast viðskiptavinina, en erfiðara með
samskipti við samstarfsfólk sitt. Ástæðan fyrir
þessu er sú að allar óskrifaðar reglur eru erf-
iðar og torskildar fyrir þá sem eru á rófinu.“
Fólk á skynseginrófi dregst stundum saman
Þegar kemur að parasamböndum segir Guð-
laug Svala að líkir sæki líkan heim, og að fólk á
skynseginrófi, svo sem einhverfir eða fólk með
athyglisbrest, dragist stundum saman.
„Ég líki þessu stundum við að þefa uppi Ís-
lending í útlöndum. Það er margt sem gerist í
ástarsamböndum einhverfra. Mörg okkar sem
hafa minni sýnilega einhverfu og erum góð í að
setja upp grímu erum alltaf að leika hlutverk.
Við erum ekki við sjálf þegar við erum að
þóknast öðrum. Þegar við vitum ekki hver við
erum, hvernig getur maki okkar vitað það
heldur? Þetta er algengt vandamál í nánum
parasamböndum þar sem annar eða báðir eru
einhverfir.“
Það geta orðið árekstrar á heimili þar sem
einhverfur einstaklingur býr, þegar fleiri á
heimilinu eru á rófinu verður heimilislífið
ósjálfrátt litríkt.
„Einn getur átt erfitt með matarlykt, á með-
an útvarpið fer í annan og sá þriðji er alltaf
þreyttur og sofandi.“
Þau málefni sem Guðlaug Svala vill berjast
fyrir er að fólk á einhverfurófi fái viðeigandi
stuðning.
uppi í langan tíma. Margir einhverfir eru með
ranga greiningu og hafa náð viðmiðun um per-
sónuleikaröskun þegar það á ekki við. Sumir
hafa jafnvel verið greindir með geðklofa, með-
ferðin við geðklofa virkar að sjálfsögðu ekki,
ekki frekar en það virkar að gefa lýsispillur við
ilsigi.“
Af hverju ákvaðst þú að stíga fram og leggja
málefnum einhverfra lið?
„Ég vildi nota mína rödd, því ég upplifði
ákveðið frelsi við greininguna. Eins vildi ég
sýna fólki að við erum alls konar. Lífslíkur ein-
hverfra eru 15-20 árum minni en þeirra sem
eru það ekki. Vegna þess að við leitum síður til
lækna og einöngrum okkur. Við lendum oft
utangátta, erum þunglynd með kvíða og svo
eru sum okkar með sjálfskaðandi hegðun sem
getur einnig haft alvarleg áhrif,“ segir hún og
útskýrir að sá hópur sem er oft í sjálfskaða sé
þeir sem hafa setið lengi bak við grímuna og
það reyni á orkubirgðirnar.
„Það reynir á að passa ekki inn og skilja
ekki hvers vegna.“
Þurfti virkilega að muna að
þakka fyrir fundinn
Hún segir þá sem fá hugrekki til að fara í
greiningu og þiggja aðstoð við því sem þeir eru
að fást við hverju sinni geta byrjað að njóta sín
á eigin forsendum.
„Það er fátt sem brýtur sjálfsmyndina meira
niður en að vera í stöðugum ágreiningi við
samfélag sitt.“
Geturðu gefið okkur dæmi úr eigin lífi
hvernig er að vera með einhverfu?
„Ég hef oft fengið spurninguna „af hverju
ertu að tala svona við mig?“ þegar ég er bara
að tala á almennu nótunum um eitthvað sem
mér finnst vera staðreynd. Eins þegar ég var
formaður Bandalags háskólamanna, BHM, þá
átti ég oft fundi með ráðherrum. Þá þurfti ég
virkilega að minna mig á að heilsa fallega í
upphafi funda og segja „takk fyrir þennan
fund“. Mér fannst það algjör tímaeyðsla og
óþarfi, enda vorum við hvort sem er ekki öll að
flýta okkur?“ spyr hún snögg upp á lagið og
brosir út að eyrum.
Hún segir lífið gott í dag, þótt það sé ennþá
fullt af verkefnum.
„Nú þekki ég mig betur og veit hvað ég
stend fyrir. Ég get skilið fólk betur og við-
brögð þess við mér. Eins finnst mér stundum
bara gott að láta fólk vita hver ég er áður en
það byrjar að tala við mig. Það skiptir mig máli
að vera í góðum samskiptum við fólk því við
einhverfir erum jú með allar sömu þarfir og
aðrir. Við skjótum bara beint í mark í stað þess
að fara fjallabaksleiðina að markinu.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Við meinum vanalega það sem við segjum og
tökum hlutina bókstaflega. Eins höldum við
að annað fólk meini það sem það segir og við
getum átt erfitt með að lesa á milli lína.“
Guðlaug Svala var formaður
Bandalag háskólamanna, BHM.
Í því starfi þurfti hún að minna
sig á að þakka fyrir fundi með
ráðherrum, en slíkt finnst henni
algjör óþarfi. Enda allir að flýta
sér og nóg að gera hjá hinu
opinbera og félagasamtökum.
an stuðning, takmarkaðan skilning á álagi, set-
ur upp grímu og fer svo í þrot með allt saman.
Það er mikil vakning í gangi í samfélaginu okk-
ar þessu tengt og hefur myndast fallegt sam-
félag á Facebook sem dæmi fyrir skynsegin
fólk.“
Hún segir hinsegin skynjun þannig að nú
erfi fólk þetta frá börnum sínum, sem er svip-
að því ferli sem hún fór í gegnum.
„Það er ekki hægt að ímynda sér hversu
mikill léttir fer í gegnum huga fólks þegar það
hættir að vera latt, lélegt og dónalegt og fær
að vera einhverft. Það gefur bæði þeim ein-
hverfu og aðstandendum þeirra fleiri tæki-
færi.“
Eru þá allir einhverfir með félagsfælni?
„Nei ekki í grunninn, en það getur þróast
þannig. Því í fjölmenni er hávaði, lykt af fólki
og það getur verið erfitt að sitja með grímuna
„Þetta er eins og að vera nærsýnn með eng-
in gleraugu. Þú yrðir fljótt þreytt í augunum
og gætir ekki lesið.“
Einhverfukulnun er ekkert grín
Nú til dags er ekki talað um væga eða
mikla einhverfu, dæmigerða eða ódæmi-
gerða, því það er svo mörgum gildum hlaðið.
Reynslan er svipuð fyrir fólk með einhverfu,
þótt einkennin komi mismunandi út hjá fólki.
Guðlaug Svala er dæmi um einstakling sem
myndi greinast með frekar væg ein-
hverfueinkenni. Hún lenti í alvarlegri ein-
hverfukulnun árið 2018 þar sem hún upplifði
mikið færnitap og hætti sem dæmi að geta
lesið í upp undir ár.
„Einhverfukulnun getur orðið af mörgu, en
fyrst og fremst vegna of mikils álags og of
mikilla krafna. Fólk er þá með lítinn sem eng-