Morgunblaðið - 14.07.2022, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
AÐVENTUFERÐIR2022 S. 552 2018
info@tasport.is
tasport.is
Upplifðu aðventuna í borg lista
og menningar og skoðaðu allt
það besta sem þessi spænska
perla hefur uppá að bjóða!
Flogið er beint til Madridmeð
Play á föstudegi og aftur heim á
mánudegi.
Njóttu þess að versla jólagjaf-
irnar og komdu þér í jólaskap í
leiðinni á þýskum jólamörkuðum
í Berlín yfir aðventuna!
Flogið er beint til Berlínarmeð
Play áfimmtudegi og aftur heim
á sunnudegi.
Madrid Berlín2.-5. desember 1.-4. desember
Innifalið: Flug, innritaður farangur báðar leiðir og 4* hótelgistingmeð
morgunmat. Hótelið er vel staðsett í Madrid og stutt er í allt það besta
semborgin hefur uppá að bjóða.
Innifalið: Flug, innritaður farangur báðar leiðir og 4* eða 5* hótelgisting
meðmorgunmat. Bæði hótelin eru staðsett á góðum stað í Berlín stutt
frá öllum helstu verslunumog veitingastöðum.
Verð frá98.800 kr.
á mann m.v. 2 fullorðna saman
Verð frá98.800 kr.
á mann m.v. 2 fullorðna saman
„Hornstandir eru engu lík-
ar,“ segir Salóme Jórunn
Bernharðsdóttir jarðeðl-
isfræðingur á Veðurstofu
Íslands. „Nú í júlí var ég
þar með góðu fólki þar sem
við nutum okkur vel. Gist-
um í nokkrar nætur í Horn-
bjargsvita sem er við
Látravík, en þangað eru
siglingar samkvæmt áætlun úr Norðurfirði í
Árneshreppi. Þá daga sem við vorum á Horn-
ströndum var frábært veður alla dagana, sem
er sennilega fátítt. Blíðviðrið var bónus.“
Salómet Jórunn segist vel geta hugsað sér
að dveljast við tækifæri nokkra daga í Norð-
urfirði. „Náttúran á Ströndum stórbrotin en
alveg óendanleg falleg svo minnt gæti á lista-
safn. Reykjaneshyrna setur sterkan svip á
Norðurfjörð og þar í nágrenninu er Kross-
neslaug, sem stendur niður í flæðarmáli. Sund-
laug á óvenjulegum stað, þar sem við Horn-
strandafararnir náðum að koma við á leiðinni
heim. Starfsins vegna finnst mér líka áhuga-
vert að koma á staði eins og á Ströndum, það-
an sem við fáum send veðurskeyti frá bænum
Litlu-Ávík. Að þekkja til staðhátta og að-
stæðna út um land kemur sér vel.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Árneshreppur Sérstæðir berggangar í flæðarmáli og í baksýn formfögur Reykjaneshyrna.
Góðar stundir á Ströndum
„Ég er Reykvíkingur í húð
og hár og lifi og hrærist í
borgarpólitíkinni. Samt líð-
ur mér hvergi betur en úti á
landi og sæki þangað mikið,
sérstaklega nú yfir sum-
artímann. Þar er Þjórs-
árdalur alveg í sérflokki frá
mínum bæjardyrum séð,“
segir Geir Finnsson
menntaskólakennari við Keili. „Ég á rætur að
rekja að bænum Ásum í Gnúpverjahreppi. Þar
í sveit er Þjórsárdalur þar sem byggð lagðist
af í Heklugosi árið 1104. Fjöldi bæja fór í eyði,
en þegar komið var fram á 20. öldina voru
nokkrir grafnir upp. Af því eru til ýmsar
skemmtilegar sögur eins og að víða í dalnum
megi finna forminjar; sverð, spjót og fleira
merkilegt. Yfir þessu öllu er í talsverður æv-
intýrablær. Náttúra þarna í dalnum er líka
mjög falleg, til dæmis Gjáin þar sem rennandi
vatn vellur fram úr lindum í grónu gili. Innst í
dalnum er Háifoss, sem þar fellur fram af há-
lendisbrúninni og er 122 metra hár. Framar í
dalnum Hjálparfoss; tvískiptur og sérstakur
að sjá. Dagsferð í Þjórsárdalinn getur aldrei
mistekist og ég stefni á að skreppa austur inn-
an tíðar.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þjórsárdalur Hjálparfoss í Sandá vekur athygli sakir svips síns með smekklega skipt í miðju.
Fornminjar í ævintýradalnum
„Umhverfi og náttúru á
Vestfjörðum fylgja sterk
áhrif á sálina. Tíminn er í
öðrum takti en maður á að
venjast og við slíkar að-
stæður kemur núvitund
nánast af sjálfu sér,“ segir
Halla Karen Kristjánsdóttir,
íþróttafræðingur og bæjar-
fulltrúi í Mosfellsbæ.
„Fjölskyldan er nýkomin að vestan þar sem
við meðal annars gerðum út í nokkra daga frá
Tálknafirði. Fórum þá til dæmis á Rauðasand;
þar sem náttúran er stórbrotin og alltumlykj-
andi. Að ganga eftir fjörunum og í mjúkum
sandinum, heyra í fuglum, hlusta á nið öld-
unnar og horfa á tignarlegt Látrabjarg. Hér
fer margt saman svo útkoman er alveg stór-
kostlegur staður. Sömuleiðis hafði sterk áhrif
á mig að koma út að Látrabjargi, þangað sem
er langur akstur um grýttan veg og brattar
brekkur. Í Vestfjarðaferðum í tímans rás og
raunar víðar á landinu hef ég annars stundum
verið á reiðhjóli og í gönguferðum. Þar finnst
mér eftirtektarvert hvað maður nýtur náttúru
og umhverfis alltaf betur þannig en akandi. Að
gefa sér tíma til að njóta er jafnan stóri gald-
urinn í lífinu.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Rauðisandur Löng og víðáttumikil fjara og svo Látrabjarg sem girðir sveitina af í vestri.
Áhrifin sterk á Vestfjörðum
„Suðurhálendið er minn
heimavöllur. Einstakt
svæði þar sem ég hef verið
á ferð síðan ég var barn,“
segir Narfi Hrafn Þorbergs-
son, fjallabílstjóri á Hellu.
„Torfajökulssvæðið stendur
upp úr, en þar eru í meng-
inu Landmannalaugar,
Jökulgil, Hrafntinnusker
og fleiri staðir. Á heimsvísu á þetta svæði sér
sennilega engar hliðstæður. Víða er kraum-
andi jarðhiti og svipbrigði og línur í landslagi
óvenjulegar. Jarðfræðin er líka einstök, því
þarna er líparítið áberandi og kolsvört hrafn-
tinna. Ég hef oft farið um þessar slóðir með er-
lenda ferðamenn sem eru í raun alveg gagn-
teknir af fegurðinni. Fleiri staðir á suður-
öræfum landsins eru áhugaverðir og þar er
nærtækt að nefna til dæmis Langasjó.“
Narfi Hrafn kveðst ungur hafa lært að meta
landið okkar góða, og alla töfra þess. Hesta-
ferðir með foreldrum sínum upp um fjöll og
firnindi lifi í minnningum. „Sjálfum finnst mér
afar notalegt að skreppa upp á fjöll með veiði-
stöngina. Í Löðmundarvatni á Landmanna-
afrétti er allt krökkt af fiski og þangað er för
heitið fljótlega.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Landmannalaugar Fallegt að Fjallabaki, jafnvel þótt þar rigni svo göngufólk verður gegndrepa.
Hálendið einstakt á heimsvísu
Stemning á Ströndum er gjarnan sagt. Að komast úr þyt þéttbýlis þykir eftirsóknarvert; vera í takmörkuðu sambandi við umheiminn.
Aðeins njóta þess sem náttúran býður. Svipað segir fólk sem flækist um firði og annes. Svo koma öræfin alltaf sterk inn, enda er hálendið
heillandi heimur. Landmannalaugar og Torfajökulssvæðið freista margra og Þjórsárdalur er sem heill heimur út af fyrir sig.