Morgunblaðið - 14.07.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.07.2022, Blaðsíða 26
er mikil búbót; þeir eru orðnir lang- fjölmennastir í komum til Íslands og stærstir í gjaldeyrisöflun okkar í ferðaþjónustu,“ segir Jón Bjarki. Það flæki málið að flest hrávöruvið- skipti í heiminum séu gerð upp í bandaríkjadal. Því sé mikilvægt að fylgjast með gengi hans og hrávöru- verði. „Ef við tökum sem dæmi eldsneyt- isverð, þá er það vissulega jákvætt fyrir okkur að heimsmarkaðsverð eldsneytis í bandaríkjadal hefur farið talsvert lækkandi en það vegur þá á móti að dollarinn hefur hækkað gagnvart krónunni, eins og gagnvart flestum öðrum myntum. Það verður líka að hafa það í huga að íslensku olíufélögin þurfa að reiða fram fleiri krónur fyrir hvern dollar þótt þau séu að kaupa eldsneyti á færri doll- ara en fyrir þremur-fjórum vikum.“ Minni áhrif vestanhafs Inntur eftir því hvað sé að valda þessari styrkingu bandaríkjadals svarar Jón Bjarki því að viðbrögð seðlabanka Bandaríkjanna hafi spil- að þar inn í. Hann hóf brattar vaxta- hækkanir á fyrri hluta ársins en seðlabanki Evrópu og seðlabanki Bretlands hafa verið tregari við það að hækka vexti. Einnig sé verðbólg- an í Bandaríkjunum í meiri mæli drifin af eftirspurn, ólíkt því sem sést á evrusvæðinu þar sem verðbólgan er aðallega drifin af framboðsskorti og hækkun orkuverðs vegna innrás- ar Rússa sem leikur svæðið grátt. „Það er líka ein ástæðan fyrir að bandaríski seðlabankinn er heldur ásæknari í vaxtahækkun en hann hefur ekki eins miklar áhyggjur af komandi neyslusamdrætti í Banda- ríkjunum þótt það sé hugsanlegt. Þá er útlitið ekki eins dökkt varðandi áhrif orkuverðsins og á sama tíma er verðbólgan almennari og vaxta- hækkanir bíta betur á eftirspurnar- verðbólguna,“ segir Jón Bjarki. Erlendar skuldir í evrum Aðspurður segir Jón Bjarki ís- lenska efnahagskerfið eiga fleira sammerkt með bandarísku verðbólg- unni en þeirri sem sést á evrusvæð- inu. „Verðbólgan er vissulega að töluverðu leyti innflutt en hluti af henni endurspeglar líka batnandi hagkerfi, vaxandi eftirspurn og líf- legan íbúðamarkað. Þetta liggur svo- lítið þarna á milli en hún er líklega skyldari bandarísku verðbólgunni að þessu leyti.“ Styrking krónunnar gagnvart evru hefur einnig haft jákvæð áhrif á erlendar skuldir ríkissjóðs í krónum talið því þær eru alfarið í evrum, að sögn Jóns Bjarka. Hann bætir því við að ólíklegt sé að krónan styrkist að ráði gagnvart bandaríkjadal þar til að gjaldeyrisflæði í utanríkisvið- skiptum verði jákvætt. „Við erum enn með verulegan vöruskiptahalla og þjónustujöfnuð- urinn er að batna með auknum ferða- mannastraumi en við erum ekki kom- in með mikið hreint gjaldeyris- innflæði frá utanríkisviðskiptum. Við eigum von á því að gengið styrkist eitthvað frekar á seinni hluta ársins þegar við verðum væntanlega komin með gjaldeyrisinnflæði frá ut- anríkisviðskiptunum í heild,“ segir Jón Bjarki. Vendingar á gjaldeyrismarkaði AFP Peningar Gengi evrunnar og bandaríkjadals náði pari í vikunni. Þessi þróun hefur ýmis áhrif á Íslandi. Gjaldeyrisviðskipti » Evran hefur lækkað um 11% gagnvart dollar á árinu. » Dollarinn búinn að styrkjast um 5% gagnvart krónu á árinu. » Japanskt jen lækkað um 16% gagnvart dollar á árinu. » Krónan búin að styrkjast um tæp 7% gagnvart evru á árinu. » Breska pundið lækkað um tæp 12% gagnvart dollar á árinu. - Mismunandi viðbrögð seðlabanka spila inn í gengið - Sterkur dollar hefur áhrif á hrávöruverð - Gengi evru og dollars á pari - Hefur áhrif á útflutningsfyrirtæki - Vaxtahækkanir ýta undir dollar BAKSVIÐ Logi Sigurðarson logis@mbl.is Gengi evru og bandaríkjadals var í vikunni, í fyrsta skipti í tuttugu ár, á pari. Gengi evrunnar hefur lækkað í vikunni í kjölfar þess að Rússar skrúfuðu nýverið fyrir gasstreymi til Þýskalands. Innrás Rússa í Úkraínu og verðbólga valda fjárfestum einnig áhyggjum. Aftur á móti hefur banda- ríkjadalur styrkst gegn öllum helstu gjaldmiðlum frá áramótum. Jón Bjarki Bentsson, aðal- hagfræðingur Ís- landsbanka, segir þessa þróun geta haft áhrif á rekst- ur fyrirtækja sem notast við aðra hvora myntina. „Þetta hittir einstök fyrirtæki misjafnlega fyrir, eftir því hvernig samsetning þeirra er í útflutningstekjum og innflutn- ingskostnaði milli gjaldmiðla. Við getum sagt að á heildina litið sé þetta ekki að hafa stórkostleg áhrif ef við horfum til þess að evrusvæðið er okk- ar helsti mótaðili í utanríkisviðskipt- um og evran stærsti viðskiptagjald- miðillinn okkar,“ segir Jón Bjarki. Bandaríkjamenn stórtækir Önnur bein áhrif sem fylgi styrk- ingu dollars séu að Bandaríkjamenn streymi nú til landsins og eyði fúlgum fjár í leiðinni. „Kaupmáttur erlendra ferða- manna frá Bandaríkjunum er vax- andi, þrátt fyrir talsverða verðbólgu, vegna þess hve dollarinn hefur verið að styrkjast. Kortavelta frá Banda- ríkjamönnum var 38% af allri korta- veltu erlendra ferðamanna í júní. Það Jón Bjarki Bentsson 26 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022 LC02 Leður Verð frá 329.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. HÆGINDASTÓLL Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is 14. júlí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 138.52 Sterlingspund 163.99 Kanadadalur 106.23 Dönsk króna 18.694 Norsk króna 13.537 Sænsk króna 13.087 Svissn. franki 140.75 Japanskt jen 1.013 SDR 181.59 Evra 139.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.5822 Fimmtungshlutur í 199 fermetra lóð við Óðinsgötu í Reykjavík, sem nýtt hefur verið undir fimm bílastæði, seldist á 5,5 milljónir króna. Kaupandi var félagið Þingholt en það er í eigu Gríms Garðarssonar fjárfestis og eins af eigendum Best- seller á Íslandi. Meðal hluthafa í umræddri lóð er Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sem á 40% hlut, eða sem svarar tveimur bílastæðum, en Dagur og fjölskylda hans eiga þriggja hæða timburhús austan við lóðina. Þar er nú atvinnustarfsemi á jarðhæð. Athygli vakti þegar umræddur hlutur í lóð var auglýstur til sölu og veitir salan vísbendingu um hvernig markaðurinn verðmetur bílastæði ofanjarðar í miðborginni. Verktaki sem Morgunblaðið ræddi við sagði að jafnaði kosta um 5 milljónir á íbúð að byggja bílastæði í bílakjallara og um hálfa milljón á íbúð að malbika stæði ofanjarðar. Verðið væri þó misjafnt og færi eftir aðstæðum á framkvæmdastað, til dæmis hvort brjóta þyrfti klöpp. Framboð bílastæða í miðborginni hefur áhrif á verðmyndunina en stefna borgaryfirvalda er að stæði skuli vera víkjandi í götumyndinni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eftirsótt Bílastæði við Óðinsgötu 8C seldist á 5,5 milljónir króna. Bílastæði seldist á 5,5 milljónir - Bílastæði ofan- jarðar seldist sem hluti af eignarlóð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.