Morgunblaðið - 14.07.2022, Síða 33

Morgunblaðið - 14.07.2022, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022 Ásthildur Hannesdóttir asthildur@mbl.is Uppáhaldsstefnumótaþættir áhafn- arinnar eru úr bresku raunveru- leikaseríunni Love Island sem menn fylgjast með í gegnum sjónvarp Símans. Aðrar þáttaraðir af sama meiði fá þó líka áhorf um borð enda er það ástin sem er áhöfninni hug- leikin. „Við erum miklir ástarpungar og elskum ástina og þess vegna horfum við á alla svona þætti. Við söknum maka okkar alla daga á meðan við veltumst um höf og Love Island lætur okkur hlakka enn meira til að komast heim í faðm maka og fjöl- skyldu,“ segja peyjarnir á Bergi en það var Friðrik Þór Sigmarsson, annar stýrimaður um borð, sem smitaði strákana af Love Island- bakteríunni í upphafi. Mjúkir menn Segja má að áhöfnin eyði gömlum og úreltum hugmyndum um að sjó- mennskan sé táknmynd karl- mennskunnar. Staðalímynd sjó- manna hefur í háa herrans tíð verið lituð af eitraðri karlmennsku en peyjarnir á Bergi gefa lítið út á að vera álitnir mýkri menn vegna brenn- andi áhuga þeirra á ástinni. „Við hvetjum aðra sjó- menn til að prófa að horfa á einn þátt og vera opnir fyrir ástinni, fjölbreytileik- anum og nýjum hlutum. Ekki taka lífinu svona alvarlega. Þá fyrst verður lífið skemmti- legt,“ segja þeir. Hvað er það skemmti- legasta við Love Island? „Samverustundirnar hjá okkur peyjunum og spennan þegar það kemur einhver nýr inn í þáttinn og hristir upp í liðinu,“ segja peyjarnir sem eiga allir sam- eiginlegt að hrífast mest af Davide Sanclimenti, sem er einn þátttak- enda í Love Island. „Þú finnur ekki fallegri mann,“ sammælast þeir um. „Svo væri ekk- ert varið í þessa þáttaröð ef Ekin- Su væri ekki með. Hún býr til mesta dramað.“ Það eru skiptar skoðanir á meðal áhafnarinnar um það hvaða pör hún vonast eftir að endi saman. Til þess er leikurinn einmitt gerður en sumir eiga sér uppáhaldspar sem þeir hyggjast halda með allt til enda. „Þetta er svo fljótt að breytast og eiginlega ómögu- legt að segja til um það hvaða pör verða til. Sumir segja að Paige Thorne og Jacques O’Neill endi sem par, aðrir veðja á Gemmu Owen og Bish. Við sjáum bara hvað gerist.“ Hvaða ráð getið þið gefið þeim sem eru í leit að ást- inni? „Verið þið sjálf og ekki vera fávitar,“ segja sjóar- arnir síkátu að lokum. Sjómennirnir sjúk- ir í Ástareyjuna Áhöfnin á ísfisktogaranum Bergi VE 44 hefur mikla ástríðu fyrir samskiptum kynjanna. Segist hún gjarnan verja frítíma sínum í að horfa á stefnu- mótaþætti saman þegar það er stund milli stríða um borð eða lítið fiskerí. Ljósmynd/Aðsend Ljósmynd/Síldarvinnslan/Arnar Hjartahlýjir Peyjarnir á Bergi eru mjúkir sem smjör. Skjáskot/Facebook Heillandi Strákarnir eru hrifnastir af sjarminum Davide Sanclimenti. Aðdáendur Ástarpungarnir um borð í Bergi VE 44 eru miklir aðdáendur Love Island. Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking. VARANLEG Laser háreyðing •Öflug og áhrifarík háreyðing • Fjarlægir óæskilegan hárvöxt Kostir okkar háreyðingalaser umframönnur lasertæki: . Auðveldara er að losna við ljósari og fíngerðari hár. . Hægt er að losna við hár ámilli augabrúna og í kringumaugabrúnir. . Hægt er að losna við hár inni í eyrumog nefi Fjallakofinn-Ævintýraferðir | Hallarmúla 2 | 108 Reykjavík ferdir.fjallakofinn.is | ferdir@fjallakofinn.is | Sími 510 9500 Um dali vestur... 29. ágúst – 7. september Rafhjólaferð um fallegar slóðir í dölum Austur- og Suður Tíról, umluktum tignarlegum fjöllum Alpanna Góðir stígar – mjög fjölbreyttar dagleiðir Mikið innifalið í verði ferðarinnar hreyfing upplifun samvera Leikarinn og leikstjórinn Bradley Cooper og stjórnmálaráðgjafinn Huma Abedin eru að hittast. Anna Wintour ritstjóri Vouge er sögð hafa kynnt parið fyrir hvort öðru. Abedin var varaformaður kosn- ingabaráttu Hillary Clinton 2016 þegar hún bauð sig fram til emb- ættis forseta Bandaríkjanna. Hún starfaði áður sem staðgeng- ill starfsmannastjóra Clinton þegar hún var utanríkisráðherra Banda- ríkjanna. Cooper á eitt barn með fyrrver- andi kærustu sinni, fyrirsætunni Irinu Shayk, dótturina Leu de Seine. Abedin var áður gift fyrrverandi öldungadeildarþingmanninum Ant- hony Weiner frá 2010 til 2017. Þau eiga saman einn tíu ára gamlan son sem heitir Jordan Zain Weiner. Bradley Cooper genginn út Á föstu Bradley Cooper er kominn með nýja kærustu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.