Morgunblaðið - 14.07.2022, Síða 39

Morgunblaðið - 14.07.2022, Síða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022 ✝ Guðrún María Vigfúsdóttir fæddist 9. október 1935 í Hafnarfirði. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar 29. júní 2022 á hjúkr- unarheimilinu Eir. Foreldrar Guð- rúnar voru Epi- fania Ásbjörns- dóttir, f. 1902, d 1956, heimavinn- andi húsmóðir, og Vigfús Þór Jónsson, f. 1899, d 1965, sjó- maður og bræðslumaður. Systkini Guðrúnar, eða Gunnu eins og hún var gjarnan kölluð, voru átta: Vigfús Sól- berg, f. 1925, d. 2010, Hólm- fríður (Fríða) Ása, f. 1926, d. 2007, Erna Björg, f. 1929, d. 2019, Sigurborg (Sibba), f. 1930, d. 2015, Óskar, f. 1931, d. 2006, Leifur Eggert, f. 1934, d. 2001, Guðmundur, f. 1936, Ás- björn, f. 1939, d. 2018. Guðrún María ólst upp í Hafnarfirði og var alla tíð stolt- ur Hafnfirðingur. Hún var ein- ungis 21 árs gömul þegar hún missti móður sína, sem lést eft- ir að hafa verið sjúklingur til fjölda ára, en þær mæðgur voru voru nánar. Hún fór á Húsmæðraskólann á Laug- arvatni og eignaðist þar sínar bestu vinkonur sem voru henni samferða í gegnum lífið. Eftir húsmæðraskólann fluttist hún til Reykjavíkur. Til að byrja með vann hún í verksmiðju sem saumaði karlmannsskyrtur og eftir það hin ýmsu versl- unarstörf, m.a. í verslun Hjart- ar Nilsen. Guðrún giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Hjalta Páli Þor- varðarsyni, f. 25.8. 1935, 19. maí 1961. Þau bjuggu fyrst á Hringbrautinni í Vesturbænum og eignuðust synina Þorvarð, f. 1962, og Hjalta Vigfús, f. 1969. Lengst af bjuggu þau á Nesbala 74 en fluttu á efri árum í Breiðuvík í Grafarvogi. Barnabörnin eru orðin sjö. Börn Þorvarðar og Guð- rúnar eru Unnur María, f. 1983, gift Jóni Orra, f. 1983, og eru þeirra börn Erna Guðrún, 12 ára, Þorri Kristján, 8 ára og Óskar Dýri, 5 ára. Hjalti Páll, f. 1987, búsettur í Kaupmanna- höfn, trúlofaður Elsu Fanney, f. 1987 og eru dætur þeirra Fríða Rún 5 ára og Rósa Björk tæp- lega 1 árs. Tómas Þorri, f. 1997, hans kærasta er Þórunn Lúðviksdóttir. Börn Hjalta og Bryndísar Theodórsdóttur eru Hildur Sif, f. 1994, Hinrik, f. 1998, Theó- dóra, f. 1998, í sambúð með Andra Snæ Sigurvinssyni og Guðrún María, f. 2013, móðir Laufey Rúnarsdóttir. Árið 2017 var Guðrún orðin mjög veik af alzheimersjúk- dómnum og fór í kjölfarið á Hjúkrunarheimilið Eir og bjó þar til æviloka. Útför Guðrúnar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 14. júlí 2022, klukkan 15. Elsku vinkona og skólasyst- ir. Enn þá fækkar í hópnum okkar. Gunna Viff eins og við kölluðum hana lést 29. júní síð- astliðinn. Saumaklúbburinn okkar var stofnaður eftir að við útskrifuðumst frá Húsmæðra- skólanum á Laugarvatni 1959. Þannig að þetta eru orðin 63 ár. Það er nokkuð langur tími sem við höfum brallað saman. Fyrst var farið í innanlands- ferðir og svo fórum við að fara í utanlandsreisur. Sigldum upp Rín og Miðjarðarhafið og svo stóra ferðin okkar um Karíba- hafið, Asíuferð og fleira. Þetta voru góðar ferðir og yndislegar minningar. Gunna og Hjalti fóru seinni árin alltaf til Kanarí og nutu þess að vera í sólinni. Einnig nutu þau þess að fara um landið með hjólhýsið og hitta vini sína. Þá var Hjalti með nikkuna sína og allir að syngja og hafa gaman. Nú er þessum kafla lokið. Hjalti dvel- ur á Ísafold með nikkuna sína og saknar Gunnu sinnar. Við vottum honum og fjöl- skyldunni innilega samúð. Blessuð sé minning hennar. Fyrir hönd saumaklúbbsins, Inga Dóra Jóhannesdóttir. Guðrún María Vigfúsdóttir jólahátíðina. Foreldrar mínir og amma og afi héldu í þá hefð að skiptast á að halda jólin og voru kótilettur oftar en ekki á mat- seðlinum þegar röðin kom að ömmu og afa. Vorin voru annasamur tími hjá ömmu og afa þegar öll gróður- húsin voru full af tómötum, gúrk- um og kálplöntum. Hliðar áhuga- mál ömmu var að sá sumarblómum. Amma var yndisleg mann- eskja með gott hjartalag. Hún var afar áhugasöm um okkur systkinin og vildi að okkur farn- aðist vel og var dugleg að hvetja okkur áfram og hrósa. Í fáeinum orðum mætti lýsa ömmu á þann veg að hún var forvitin og vitur, raunsæ og jarðbundin, hafði góða nærveru og var mjög félagslynd. Amma var langlíf og bjó alla tíð við góða heilsu. Hún fór reglu- lega á rúntinn fram á Flúðum, niðri í gróðurhús eða heim að Hverabakka 2. Börnin mín, Ylfa Guðrún og Bergþór Atli, voru mjög hænd að langömmu sinni og komu reglu- lega til hennar í heimsókn. Við munum öll sakna ömmu Svövu og munum ávallt minnast hennar með hlýju. Blessuð sé minning hennar. Jóhannes og fjölskylda. Elsku besta amma mín. Erfitt er að trúa því að þú sért farin frá okkur. Þótt þú værir komin á tíræðisaldur varstu allt- af með allt á hreinu og spurðir mikið og vildir vita hvað væri um að vera hjá þínum nánustu. Þú varst svo stolt af öllum afkom- endum þínum. Ég var svo lánsöm að fá að dvelja hjá þér og afa mörg sumur á meðan ég vann við garð- yrkjuna. Þú og afi höfðuð þann einstaka hæfileika að láta öllum líða betur með sjálfan sig og var manni hrósað óspart. Mér hlýnar við hjartarætur að hugsa til baka þær yndislegu stundir sem ég átti í sveitinni á Hverabakka. Í seinni tíð eftir að börnin mín komu í heiminn komum við reglu- lega í heimsókn til þín. Alltaf voru góðu pönnukökurnar þínar á boðstólnum og ís í frystinum fyrir barnabarnabörnin. Þegar komið var að heimför voru börnin leyst út með vettlingum og ull- arsokkum sem þú hafðir prjónað. Börnin mín minnast þess hve langamma Svava var einstaklega góð og hjartahlý. Við erum svo þakklát fyrir að þú hafir komið í ferminguna hans Marinós Breka. Þú komst inn, hrósaðir og dásamaðir alla eins og þér einni var lagið, aðaldrottn- ingin sjálf. Mikið á ég eftir að sakna þín og samverustundanna okkar. Þú varst mér mikil fyrirmynd. Guð blessi þig elsku amma. Þín Helga. Ég var svo lánsamur að njóta margra, eftirminnilegra og ljúfra stunda með Svövu ömmu minni. Ungur að árum var ég farinn að eyða öllu sumrinu á Hverabakka hjá ömmu og afa við leik og störf. Fékk ég snemma að taka virkan þátt í garðyrkjunni, þar sem afi og amma unnu hlið við hlið. Það var ætíð gestkvæmt hjá þeim enda ávallt vel tekið á móti gest- um og gert vel við þá í mat og drykk. Það var því alltaf nóg að gerast í sveitinni hjá ömmu og afa. Við amma áttum margar góðar stundir saman á þessum tíma þegar við sátum tvö fyrir framan sjónvarpið og horfðum á nýjustu spennuseríurnar í línu- legri dagskrá í Ríkissjónvarpinu og þá var ekkert verið að tala heldur bara horft. Við amma átt- um ekki bara góðar stundir sam- an í þögninni fyrir framan sjón- varpið því að fáa þekki ég sem fylgdust eins vel með þjóðmálun- um og það allt fram á síðasta dag. Það var oft sem við amma rædd- um málin og hún spurði mig út í stöðuna á efnahagsmálum eða öðrum þjóðmálum sem voru í um- ræðunni á hverjum tíma. Ég held að fáir hafi hreinlega trúað því að hún hafi verið orðin 95 ára gömul og enn vel inn í ótrúlegustu mál- um. Amma sýndi líka öðru fólki og samferðamönnum sínum ein- lægan áhuga og kærleika, þannig að fólki leið vel í nærveru ömmu. Hún fylgdist vel með sínu fólki og gat spurt barnabarnabörnin út í áhugamál sín og daglegt líf. Okk- ur fjölskyldunni þótti alltaf vænt um að koma til ömmu á Hvera- bakka, kíkja í gróðurhúsið, fá blómkálssúpu og ekki hvað síst gott spjall. Síðasta heimsókn okkar fjölskyldunnar til ömmu á Hverabakka var vel lýsandi fyrir hana þar sem við vorum rétt komin inn úr dyrunum þegar hún var farin að bera á borð brauð og kökur og farin að baka pönnu- kökur. Eins og alltaf sátum við í góðu yfirlæti fjölskyldan og spjölluðum um daginn og veginn við ömmu. Elsku amma ég kveð þig nú með söknuði, en jafnframt þakk- læti fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Gunnar Smári Tryggvason. Nú er komið að kveðjustund okkar elskulegu ömmu Svövu. Það er skrítin tilhugsun að hún sé farin frá okkur en hún hefur allt- af verið hluti af okkar „heima“. Amma og afi bjuggu á Hvera- bakka eða betur þekktum sem Gamla Bakka sem fór illa í jarð- skjálftanum um aldamótin. Afi var staðráðinn í því að byggja nýtt hús skammt frá sem myndi henta ömmu vel í ellinni. Að hafa alist upp með ömmu Svövu í næsta húsi voru mikil forréttindi. Jafn ljúfa og hlýja manneskju eins og elsku ömmu var vart hægt að finna. Okkur þótti alltaf jafn notalegt að kíkja yfir í kaffi og spjall og iðulega var hún búin að galdra fram nýbakaðar pönnu- kökur eða annað góðgæti. Amma var glæsileg kona og lagði mikla áherslu á að vera snyrtileg og vel til höfð, alveg fram á síðasta dag. Hún velti því oft fyrir sér með okkur hvaða hálsmen passaði við hvaða blússu eða hvort þessir eða hinir litir pössuðu saman enda oft talin vera aðal skvísan í sveitinni jafn- vel þótt hún hafi jafnframt borið titilinn aldursforseti hreppsins undir það síðasta. Sumarið minnir mann óneitan- lega á ömmu þar sem hún var mikið sumarbarn í hjarta. Frá því við munum eftir henni þá lagði hún mikla stund á sumar- blómaræktun og hafði einstak- lega græna fingur. Við munum eftir því sem börn að hafa þvælst í kringum hana meðan hún sáði og kom upp sumarblómum í plasthúsinu og stóluðu margir á að geta keypt af henni sumar- blóm ár eftir ár. Einnig var garð- urinn hennar blómum prýddur og þurfi grasið alltaf að vera ný- slegið og snyrtilegt. Þar sem við fluttum að heiman ungar þá ferðuðumst við mikið á milli höfuðborgarinnar og sveit- arinnar og hafði amma oft miklar áhyggjur af þessu flakki okkar yfir heiðina. Hún bað fyrir okkur og minnti okkur á að passa okkur á asanum og traffíkinni í borg- inni. Lokaorð hennar til okkar beggja voru einmitt þau: „Pass- aðu þig á traffíkinni.“ Þótt það sé skrítin tilhugsun að amma sé farin þá getur maður ekki annað en verið þakklátur fyrir allar góðu stundirnar og minningarnar sem munu búa í hjarta okkar um ókomna tíð. Við munum sakna þín elsku amma, takk fyrir samfylgdina. Hildur Guðrún og Þórný Vaka. Nú er komið að kveðjustund. Þótt amma væri að verða 96 ára var hún ung í anda og bjó fram á þetta ár í húsi sínu á Hvera- bakka. Garðyrkjan átti hug ömmu og það var henni mikil vítamínsprauta að fara niður í gróðurhús til að fylgjast með gangi mála. Fólk fékk að heyra hve stolt ég var að eiga ömmu sem ræktaði sumarblóm og keyrði bílinn nánast fram á síð- asta dag. Með miklum söknuði rifja ég upp nýliðnar stundir þar sem við dönsuðum um stofugólfið og spjölluðum um lífið og til- veruna. Ég heyri rödd ömmu og hláturinn svo skýrt. Amma færði orðinu gestrisni nýja vídd. Í minningunni er gamli bærinn á Hverabakka, heimili hennar í nær hálfa öld, baðaður sól þegar keyrt er í gegnum gróð- ursæl trjágöng í átt að fagur- brúnu húsi sem hefði eins getað staðið í danskri sveit. Amma og afi bjuggu sér einstakt heimili með pálma í stofunni, sólstofu og heitum potti. Þar var iðulega gestkvæmt enda fólki tekið fagn- andi – ekki síður í nýja húsinu þar sem ömmu leið vel og ilm- urinn af pönnukökum tók á móti manni. Ég er þakklát fyrir að hafa sagt ömmu hve mikil fyrirmynd hún var. Að eiga jafn sjálfstæða, duglega og jákvæða ömmu hefur veitt mér ómælda hvatningu í líf- inu. Við vorum líka svo góðar vin- konur og mér fannst hún skilja mig svo vel. Ég minnist yndis- legra stunda á pallinum á Hvera- bakka eða í stofunni hjá mömmu. Ég hringdi stundum í ömmu á leið úr vinnunni í New York og henni þótti alltaf jafn gaman hve stutt var á milli heimsálfa. Amma var söngelsk og mér er minnis- stætt hvernig við sungum saman í síðasta skiptið sem við hittumst. Samband ömmu við móður mína og móðursystur var ein- staklega náið og stórfjölskyldan og vinafólk sótti í samveru henn- ar. Amma var nefnilega svo hlý og henni umhugað um fólk. Hún fylgdist vel með fréttum — bæði af fjölskyldunni og þjóðmálum – og sýndi fólki mikinn áhuga. Afmælisdagur ömmu, 19. júlí, var og verður ávallt hátíðisdagur. Síðasta sumar var haldið upp á 95 ára afmæli hennar með garð- veislu. Þar hélt amma stutta ræðu og sagði það mikið gæfu- spor í lífinu að hafa lent með svo góðu fólki. Elsku amma, ég kveð þig með hjartað fullt af þakklæti og dýr- mætum minningum sem munu lifa um ókomin ár. Guð blessi þig. Hallfríður Þóra Tryggvadóttir. Í dag fylgjum við Svövu móð- ursystur minni til sinnar hinstu hvílu. Hún fór í svefni, svo friðsæl og falleg en svona var Svava. Ég fór að koma á Hverabakka á unga aldri, eftir að mamma dó. Það var nóg pláss fyrir eina stúlku í viðbót við Önnu, Þóru og Sjöfn. Það var alltaf mikil spenna á vorin þegar pabbi keyrði mig austur, erum við ekki að vera komin. Það eru svo margar góðar minningar. Vinnan niður frá í garðyrkjunni og Landroverinn X917 sem þjónaði stóru og mik- ilvægu hlutverki fyrir heimilið. Svava eldaði góðan mat og var á undan sinni samtíð í salatgerð, reif niður gulrætur og kál í hand- snúna rifjárninu og bjó til dress- ingu til að setja út á með dassi af appelsínuþykkni. Brúnkakan góða var í uppáhaldi og var alltaf nóg til eða þar til Baddi mætti á svæðið. Svövu var margt til lista lagt, hún saumaði jakkaföt á okkur stelpurnar í öllum regnbogans litum og fyrstu gallabuxurnar mínar, útsniðnar úr denim. Við fórum með Svövu til Kö- ben og áttum pantað borð á fín- um restaurant, við vorum svolítið seinar fyrir og hlupum af stað til að halda borðinu, þá heyrist í elsku frænku; stelpur mínar, ég er nú orðin áttræð. Elsku Svava mín, það voru svo mikil forréttindi að fá að alast upp hjá þér Þú auðgaðir líf mitt með öllum þínum kærleik og gleði, fyrir það er ég ævinlega þakklát. Kærleiksknús, Margrét (Magga). Elsku Svava frænka, nú hefur þú hvatt okkur, síðust tólf systk- ina. Það var sólríkt vor, árið 1956 og ég rétt orðinn tíu ára, þegar þið Sigurður buðuð foreldrum mínum að hafa drenginn hjá ykk- ur sumarlangt að Hverabakka. Þau urðu alls níu sumrin sem ég átti mitt annað heimili hjá ykkur, þessum yndislegu hjónum og frá- bæru uppalendum. Mér er það minnisstætt að þegar við nálguðumst Hvera- bakkann blasti við nýreist fjós og hlaða og svo heimreið með birki- trjám á báða vegu. Þegar komið var í hlað rauk gufa upp úr lok- aðri þró sem síðar kom í ljós að var „hitaveita “ þess tíma með að- stöðu til að baka brauð o.fl. Þið Sigurður voruð úti að planta fyrsu öspunum vestan við húsið, en þær urðu mun fleiri þegar árin liðu ásamt öllum blómunum í og við húsið. Fyrstu sumrin mín hjá ykkur fóru að mestu í leik og aðlögun að nýju umhverfi og þið hjónin kennduð mér hvað bæri að var- ast, einkum varðandi hveri og sjóðandi heita gufuna. Þú treyst- ir mér samt, þó ungur væri, til að passa eldri dæturnar. Fyrst Önnu, sem eitt sinn fór heim þeg- ar ég gleymdi mér í leik með krökkunum á Grafarbakka. Þú með þína góðu lund bentir mér á að nú ætti ég að bera ábyrgð á því sem mér væri trúað fyrir. Annað sumarið var ég oft með Þóru, sem þá var komin í kerru. Fórum við Þóra stundum suður að Reykjabakka til frændfólks hennar, þar sem ég átti góðan vin. Þegar á leið kenndir þú mér að mjólka og þær urðu ófáar stund- irnar sem við áttum saman í fjós- inu, þótt kýrnar væru ekki marg- ar en enginn var vélbúnaðurinn. Að morgunmjöltum loknum var farið heim í kaffi og síðan niður á Eyri að sinna garðræktinni. Á meðan tekin var hvíld eftir há- degismatinn undirbjóst þú nestið með síðdegiskaffinu. Þótt kýrnar, heyskapurinn og garðyrkjan krefðust mikillar vinnu var samt alltaf gaman. Þið hjónin voruð svo samrýmd og glaðvær að vinnan varð að nokk- urs konar leik og áskorun um að gera betur. En lífið fólst í fleiru en vinnu. Alla sunnudaga sem messað var í Hrunakirkju var farið í betri föt- in og síðan til kirkju þar sem bróðir þinn Sveinbjörn messaði og þið Sigurður voruð í kirkju- kórnum. En það var líka oft sungið á Hverabakka, einkum þegar vinahjón ykkar frá Garði og Akurgerði komu í heimsókn, eða presthjónin frá Hruna. Þá kom Einar með gítarinn og Sig- urður settist við gamla orgelið og svo var sungið fram á rauða nótt. Þegar árin liðu og ég kom í heimsókn til ykkar að Hvera- bakka var oftar en ekki farið nið- ur á Eyri og sótt blómkál í hina rómuðu blómkálssúpu, sem eng- inn gerði betur en þú. Síðan var farið yfir hvað á dagana hefði drifið frá því við hittumst síðast og hvað væri nýtt að frétta úr hreppnum. Þú fylgdist vel með öllu og varst hafsjór af fróðleik. Elsku Svava ég get ekki kvatt án þess að þakka þér fyrir öll árin sem við áttum saman einkum eft- ir að Guðbjörg móðir mín lést og ég var aðeins þrettán ára gamall. Þú varst mér sem önnur móðir. Megið þið Sigurður, sem þú hef- ur nú hitt aftur, njóta þess að vera sameinuð á ný. Bjarni Þór Jónsson. - Fleiri minningargreinar um Svövu Sveinbjarnar- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Áskær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ALDA SIGRÚN OTTÓSDÓTTIR, Bollatanga 9, Mosfellsbæ, lést á Landakoti laugardaginn 25. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Halldór Bergmann Þorvaldsson Jóhann B. Halldórsson Svanhvít V. Sigurðardóttir Jenney Sigrún Halldórsdóttir Magnús Reynisson Halldór B. Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR FRIÐSEMDAR SIGURÐARDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks 2. hæðar E á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fyrir einstaka umönnun og alúð. Sigurbjörg Ágústsdóttir Vilberg Ágústsson Sigþór Kristinn Ágústsson Elín Ágústsdóttir Hrafn Ingimundarson Steindór Rúnar Ágústsson Halldór Jónas Ágústsson Ingunn Gísladóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.