Morgunblaðið - 14.07.2022, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 14.07.2022, Qupperneq 47
Í CREWE Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Það er allt undir hjá íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu þegar það mætir Ítalíu í öðrum leik sínum í D-riðli Evrópumótsins á akademíuvelli Manchester City í Manchester klukkan 16 að íslensk- um tíma í dag. Ísland gerði 1:1-jafntefli gegn Belgíu í fyrstu umferð riðlakeppn- innar þar sem liðið var óheppið að fara ekki með sigur af hólmi eins og áður hefur komið fram. Jafnteflið gerði það hins vegar að verkum að Ísland þarf á þremur stigum að halda gegn Ítalíu til þess að auka möguleika sína á sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins. Íslenska liðið er með eitt stig í þriðja sæti riðilsins, líkt og Belgía, Frakkland er með 3 stig í efsta sæt- inu og Ítalía er án stiga í neðsta sætinu. Ítalía tapaði illa fyrir Frakklandi í Rotherham í fyrstu umferðinni, 1:5, en Frakkar leiddu 5:0 í hálfleik þar sem ítalska liðið var afar ólíkt sjálfu sér. Ítalska liðið þarf því einnig á sigri að halda, ætli það sér upp úr riðl- inum, og því mikið undir hjá báðum liðum í Manchester í dag. Skipulagðar og agaðar „Ítalska liðið er mjög skipulagt og agað varnarlega,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska liðs- ins, á blaðamannafundi á akademíu- vellinum í Manchester í gær. „Leikur þeirra gegn Frökkum var mjög út úr karakter ef svo má segja. Ég held að það sé rétt hjá mér að í einhverjum tíu leikjum hef- ur liðið fengið á sig átta mörk, þar af fimm gegn Frökkunum á sunnu- daginn. Þetta er lið sem fær því lítið af mörkum á sig, undir eðlilegum kringumstæðum, en á sama tíma skora þær heldur ekki mikið af mörkum. Þær eru því mjög agaðar og gefa mótherjum sínum mjög lítið pláss á milli línanna til þess að vinna með. Við þurfum því að vera hug- myndarík sóknarlega og reyna að finna einhverjar leiðir til þess að opna þær. Þær eru líka góðar í skyndisóknum og við þurfum því að vera á tánum allan tímann,“ sagði Þorsteinn. Slys gegn Frökkum Eftir tapið gegn Frökkum á landsliðsþjálfarinn von á því að leik- menn ítalska liðsins mæti brjálaðir til leiks. „Tapið gegn Frakklandi hlýtur bara að hafa verið erfitt fyrir þær. Særð dýr bíta alltaf frá sér og ég geri fastlega ráð fyrir því að þær muni gera það gegn okkur á morg- un. Í þeirra augum var Frakkaleik- urinn slys og það er lítið sem ekkert sem þær geta tekið með sér úr fyrri hálfleiknum þar en síðari hálfleik- urinn hjá þeim er eitthvað sem þær líta jákvæðari augum á. Við þurfum því að vera tilbúnar að mæta þeim af mikilli hörku í leiknum. Þetta verður bardagi og læti gegn þeim og við þurfum að vera tilbúnar að fórna okkur í allar tæklingar,“ bætti Þorsteinn við. Klárar frá byrjun Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður West Ham og miðjumaður íslenska liðsins, sat einnig fundinn með landsliðsþjálfaranum. „Það er ekki svona mikill munur á þessum tveimur liðum,“ sagði Dagný þegar hún ræddi leik Frakk- lands og Ítalíu á sunnudaginn. „Steini og Ólafur Ingi Skúlason eru búnir að fara mjög vel yfir ítalska liðið og þessi úrslit voru al- gjörlega úr karakter eins og Steini er búinn að koma inn á. Þetta er al- gjörlega nýr leikur hjá báðum liðum en við erum meira en tilbúnar í slaginn. Endurheimtin eftir leikinn gegn Belgíu gekk mjög vel og æfingarnar hjá okkur hafa gengið vel líka. Við hlökkum allar mikið til að spila aft- ur í Manchester og það er mikil til- hlökkun innan hópsins að takast á við ítalska liðið. Mesti skrekkurinn er líka farinn úr liðinu eftir að hafa spilað fyrsta leikinn á mótinu og við verðum klár- ar strax frá fyrstu mínútu gegn ítalska liðinu,“ bætti Dagný við. Lítið um breytingar Leikurinn gegn Ítalíu er einn sá mikilvægasti sem íslenska liðið hef- ur spilað í langan tíma. Einhverjir hafa kallað eftir því að landsliðsþjálfarinn stilli upp sóknar- sinnaðra liði en hann gerði gegn Belgíu. Það bendir hins vegar allt til þess að Þorsteinn muni treysta á sína reynslumestu leikmenn gegn Ítalíu, líkt og hann gerði gegn Belgíu, og því er ólíklegt að þjálfarinn ráðist í stórtækar breytingar á byrjunarliði sínu. Þorsteinn beið lengi með skipt- ingarnar gegn Belgíu en Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á fyrir Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur á 74. mínútu áður en þjálfarinn gerði taktískar breytingar á 87. mínútu þegar Agla María Albertsdóttir kom inn á fyrir landsliðsfyrirliðann Söru Björk Gunnarsdóttur. Ef leikurinn gegn Ítalíu spilast ekki eins og hann á að gera fyrir ís- lenska liðið er hins vegar mjög lík- legt að þjálfarinn muni bregðast mun fyrr við í dag en hann gerði gegn Belgum. Margir möguleikar á bekknum Það eru mjög margir leikmenn á íslenska bekknum sem geta hrist vel upp í hlutunum, sérstaklega sóknarlega. Agla María Alberts- dóttir, Alexandra Jóhannsdóttir, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, El- ín Metta Jensen og Svava Rós Guð- mundsdóttir eru allar leikmenn sem er gott að hafa á bekknum þegar liðið þarf á marki að halda. Landsliðsþjálfarinn hefur því úr mörgum kostum að velja ef allt fer á versta veg en hann mun að öllum líkindum halda sig við sama byrj- unarlið í leiknum og byrjaði gegn Belgíu. Einn mikilvægasti leikur landsliðsins í lengri tíma - Ísland mætir Ítalíu í sínum öðrum leik á Evrópumótinu í Manchester í dag Morgunblaðið/Eggert Upphitun Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir voru báðar í byrjunarliði íslenska liðsins gegn Belgíu á sunnudaginn. Það bendir allt til þess að landsliðsþjálfarinn stilli upp sama liði í dag gegn Ítalíu. ÍÞRÓTTIR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022 Enn er sigurinn sæti gegn Hol- lendingum á Evrópumótinu í Sví- þjóð árið 2013 eini sigur Íslands í ellefu leikjum í lokakeppni Evr- ópumóts kvenna. Níu ár eru liðin frá þeim leik en þær sem sáu um sigurmarkið snyrtilega á þeim eftirminnilega degi eru enn í lykilhlutverkum í íslenska landsliðinu. Hallbera Guðný Gísladóttir átti eina af sínum mögnuðu fyrir- gjöfum frá vinstri kantinum og Dagný Brynjarsdóttir var einu sinni sem oftar á réttum stað í vítateignum og skoraði með óverjandi skalla. Formúlan var svipuð þegar Ísland komst yfir gegn Belgíu í fyrsta leiknum á EM á Englandi á sunnudaginn. Fyrirgjöf Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur og skalla- mark frá Berglindi Björgu Þor- valdsdóttur. Minnstu munaði að það yrði endurtekið í uppbótartím- anum þegar Alexandra Jóhanns- dóttir skallaði naumlega framhjá markinu eftir fyrirgjöf Öglu Mar- íu Albertsdóttur. Fyrsta mark Íslands á EM var meira að segja skorað á sama hátt. Hólmfríður Magnúsdóttir stangaði boltann í markið á 6. mínútu gegn Frökkum í Finnlandi árið 2009 eftir fyrirgjöf Mar- grétar Láru Viðarsdóttur. Í dag eru Ítalir mótherjar ís- lenska liðsins og stóra hindrunin í vegi þess í baráttunni um sæti í átta liða úrslitum. Þetta er leikurinn sem ræður nánast öllu um fram- haldið. Sigur, og Ísland er í góð- um málum. Jafntefli, og staðan verður mjög erfið. Tap, og ís- lenski hópurinn getur byrjað að pakka niður í töskurnar. Eitthvað segir mér að í Manchester á morgun ráðist úrslitin í uppbót- artímanum. Kannski á skalla- marki eftir fyrirgjöf frá vinstri? BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is EM U20 karla Leikið í Portúgal: Sæti 9-16, riðill 1: Ísland – Króatía.................................... 33:20 Ítalía – Svartfjallaland......................... 31:26 _ Lokastaðan: Ítalía 5, Ísland 4, Króatía 3, Svartfjallaland 0. Sæti 9-16, riðill 2: Færeyjar – Pólland .............................. 38:32 Slóvenía – Noregur .............................. 42:34 _ Lokastaðan: Slóvenía 6, Færeyjar 4, Pól- land 2, Noregur 0. _ Ísland mætir Slóveníu á morgun í keppni um níunda til tólfta sæti. 8-liða úrslit, riðill 1: Danmörk – Spánn................................. 34:40 Ungverjaland – Portúgal..................... 33:30 _ Lokastaðan: Portúgal 4, Spánn 4, Dan- mörk 2, Ungverjaland 2. 8-liða úrslit, riðill 2: Serbía – Frakkland .............................. 28:38 Þýskaland – Svíþjóð ............................. 25:29 _ Lokastaðan: Serbía 4, Svíþjóð 4, Þýska- land 2, Frakkland 2. .$0-!)49, C-RIÐILL: Svíþjóð – Sviss .......................................... 2:1 Holland – Portúgal ................................... 3:2 Staðan: Holland 2 1 1 0 4:3 4 Svíþjóð 2 1 1 0 3:2 4 Portúgal 2 0 1 1 4:5 1 Sviss 2 0 1 1 3:4 1 _ Svíþjóð og Portúgal mætast, sem og Hol- land og Sviss, í lokaumferðinni. Leikir í dag: D: Ítalía – Ísland........................................ 16 D: Frakkland – Belgía .............................. 19 EM KVENNA 2022 Ísland tryggði sér sæti í keppninni um níunda til tólfta sæti Evrópu- móts karla U20 ára í handbolta í Portúgal í gær með stórsigri á Kró- ötum, 33:20. Þetta var annar þrett- án marka sigur strákanna í röð á mótinu. Ísland mætir Slóveníu á morgun en sigur þar myndi tryggja liðinu sæti á næsta heimsmeistara- móti. Andri Már Rúnarsson skoraði sex mörk fyrir Ísland sem komst í 30:15 í leiknum. Báðir markverðir Íslands voru með 54 prósent mark- vörslu og Adam Thorstensen varði 14 skot. Unnu Króata með 13 mörkum Ljósmynd/Sigfús Gunnar 54% Adam Thorstensen varði frábærlega í marki Íslands. Telma Ívarsdóttir, einn markvarða íslenska kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu, meiddist á æfingu í Man- chester í gær og óvíst er með þátt- töku hennar í leiknum gegn Ítölum í dag. Ekki lá fyrir hve alvarleg meiðslin væru og þegar blaðið fór í prentun hafði ekkert verið gefið út um hvort nýr markvörður yrði kall- aður í hópinn. Cecilía Rán Rúnars- dóttir þurfti að draga sig út úr hópnum þegar hún fingurbrotnaði á æfingu fyrir fyrsta leikinn og því gæti mögulega þurft að kalla til fimmta markvörðinn. Telma meiddist á æfingu í gær Ljósmynd/Eggert Meiðsli Telma Ívarsdóttir meiddist á æfingu landsliðsins í gær. Frakkland 1 1 0 0 5:1 3 Belgía 1 0 1 0 1:1 1 Ísland 1 0 1 0 1:1 1 Ítalía 1 0 0 1 1:5 0 _ Í dag leika Ísland og Ítalía klukk- an 16 en Frakkland og Belgía kl. 19. _ Í lokaumferðinni á mánudag leikur Ísland við Frakkland og Belgía við Ítalíu, báðir leikir kl. 19. Staðan í D-riðli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.