Neytendablaðið - 01.05.2021, Side 3
Neytendablaðið // Maí 2021 3
Ferðatryggingasjóði
komið á fót
Í upphafi kórónuveirufaraldursins gagnrýndu Neytendasamtökin
áform stjórnvalda um lagabreytingar sem hefðu gert neytendum
að gerast lánveitendur fyrir ferðaskrifstofur. Ekki síst fyrir
baráttu samtakanna var fallið frá þeim áformum. Samhliða
baráttunni gagnrýndu samtökin tilhögun trygginga ferðaskrif-
stofa, meðal annars fyrir það hversu dýrar tryggingar væru vegna
samlegðarskorts. Stjórnvöld hafa nú brugðist við og sett á fót
sérstakan ferðatryggingasjóð. Sjóðurinn hefur það hlutverk að
tryggja hagsmuni ferðamanna sem keypt hafa pakkaferð sem
fellur niður vegna ógjaldfærni eða gjaldþrots seljanda. Ráðherra,
samtök fyrirtækja í ferðaþjónustu og Neytendasamtökin tilnefna
fulltrúa í stjórn sjóðsins. Neytendasamtökin fagna því hversu
fljótt og örugglega stjórnvöld hafa brugðist við.
Neytendablaðið
- tölublöðum fækkar en blöðin stækka
Neytendablaðið verður framvegis gefið út tvisvar á ári, vor
og haust, en að sama skapi fjölgar blaðsíðum í hverju blaði
úr 24 í 32. Þá hefst aftur birting á gæðakönnunum, sem eru
mörgum lesendum að góðu kunnar, en Neytendasamtökin hafa
verið aðilar að ICRT (International Consumer Research and
Testing) um áratugaskeið. Undanfarin ár hefur verið gert hlé
á aðild og var það m.a. liður í að koma rekstri samtakanna á
réttan kjöl. Gæðakannanir eru veigamikill hluti af starfi allra
neytendasamtaka enda veita þær neytendum mikilvægar og
óhlutlægar upplýsingar um gæði á vörum. Er það von okkar að
félagsmenn séu sáttir við þessa breytingu.
Stjórn NS og aðalfundur
Aðalfundur Neytendasamtakanna er haldinn í október
ár hvert. Á síðasta aðalfundi var ný stjórn kjörin en
í henni sitja: Auður Alfa Ólafsdóttir, Breki Karlsson,
Guðjón Sigurbjartsson, Guðmundur Gunnarsson,
Gunnar Alexander Ólafsson, Helga Margrét Marzellí-
usardóttir, Liselotte Widing, Páll Rafnar Þorsteinsson,
Pálmey Helga Gísladóttir, Sigurlína G.(?) Sigurðardóttir,
Snæbjörn Brynjarsson, Stefán Hrafn Jónsson og Þórey S.
Þórisdóttir. Ekki barst framboð til formanns og var Breki
Karlsson því endurkjörinn.
Næsti aðalfundur verður haldinn í lok október og verður
kosið um sex stjórnarsæti til tveggja ára. Framboð þurfa
að berast eigi síðar en 15. september. Allar upplýsingar
um aðalfund 2021 verður að finna á ns.is þegar nær
dregur.
Krefjast þess að fá fulltrúa
í Úrvinnslusjóð
Neytendasamtökin og Landvernd hafa sent sameiginlega
umsögn vegna frumvarps umhverfisráðherra um hringrásarhag-
kerfið (hollustu- og mengunarvarnir). Eru samtökin fylgjandi
frumvarpinu sem þau telja vera mikilvægt skref í rétta átt. Hins
vegar telja samtökin eðlilegt að þau eigi fulltrúa í Úrvinnslusjóði
en þar sitja nú fulltrúar sveitarfélaga og atvinnulífsins. Gera
samtökin kröfu um að fá einn fulltrúa hvor enda sé eðlilegt að
rödd neytenda og umhverfisverndar heyrist. Hefur umhverfis-
ráðherra einnig verið sent erindi sama efnis og hann hvattur til
að styðja tillögu samtakanna.