Neytendablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 9
Neytendablaðið // Maí 2021 9
Í máli sem fór fyrir Hæstarétt árið 2002 höfðuðu kaupendur mál
gegn bæði seljanda og fasteignasala og fóru fram á bætur vegna
gólfhalla. Engar upplýsingar um hallann voru tilgreindar á sölu-
yfirliti og jafnvel þótt seljandi hefði ekki upplýst fasteignasalann
um hallann fyrr en eftir samþykki kauptilboðs taldi Hæstiréttur
að fasteignasalanum hefði borið að framkvæma sjálfstæða
skoðun og tilgreina þá galla sem voru á eigninni í söluyfirliti.
Eins var talið að seljandi hefði ekki uppfyllt upplýsingaskyldu
sína. Bæði seljandi og fasteignasali báru því óskipta ábyrgð á
tjóni kaupenda.
Ertu að selja? Leitaðu tilboða!
Eftirspurn eftir fasteignum er mikil um þessar mundir.
Eignir seljast hratt og örugglega og því ætti samkeppni
milli fasteignasala jafnframt að vera mikil sem stendur.
Við hvetjum því seljendur til að semja við fasteignasölur
um söluþóknun því mörg dæmi eru um að hægt sé að ná
mun hagstæðari samningi en kemur fram í verðskrá.
Getur fasteignasali gætt hagsmuna beggja?
Fasteignasölum er gert að gæta hagsmuna bæði seljanda og
kaupanda þótt að það séu augljósir hagsmunir fasteignasala að
selja fasteign á sem hæstu verði og sem hraðast. Fasteignasali
hefur auk þess að jafnaði verið í mun meiri samskiptum við
seljendur en kaupendur. Án þess að draga heilindi eða hlutleysi
í efa getur þetta þýtt að kaupendur beri síður traust til þess að
úrlausn ágreinings sé á jöfnum grundvelli. Getur það í ákveðnum
tilfellum leitt til þess að kaupandi sjái ekki annan kost færan en
að leita liðsinnis lögmanns með tilheyrandi kostnaði. Til að jafna
stöðuna gæti hugsanleg lausn verið sú að tveir fasteignasalar
sæju um hverja sölu, annar á vegum kaupanda og hinn á vegum
seljanda líkt og tíðkast í Danmörku.
Umsýslugjaldið umdeilda
Í dag er það fremur regla en undantekning að kaupendum
fasteigna sé gert að greiða svo kallað umsýslugjald til fasteigna-
sala. Gjaldið er réttlætt þannig að fasteignasali sinni ákveðnum
verkefnum fyrir hönd kaupanda, svo sem þinglýsingu gagna,
hagsmunagæslu og eftir atvikum milligöngu við lánastofnanir.
Neytendasamtökin túlka lögin þannig að fasteignasalar geti ekki
þvingað kaupendur til að greiða umsýslugjald vegna þjónustu
sem kaupendur vilja sinna sjálfir, svo sem að koma gögnum í
þinglýsingu. Þarna gildi einfaldlega meginreglan um samn-
ingsfrelsi. Félag fasteignasala er á annarri skoðun og til þessa
hefur ekki hefur fengist úr því skorið fyrir dómstólum hvort
fasteignasölum sé stætt á að innheimta umsýslugjald.