Neytendablaðið - 01.05.2021, Side 15
Neytendablaðið // Maí 2021 15
með fyrirtæki sem sérhæfir sig í gagnagreiningu. Í því tilviki var
um að ræða smáforrit sem notað var til matarinnkaupa. Í einu
skjáskotinu sást póstnúmer viðkomandi, en hægt er að ímynda
sér hættuna ef önnur skjáskot upplýstu um notendanafn, lykilorð
eða jafnvel kreditkortaupplýsingar.
Clay Miller, yfirmaður hjá öryggisfyrirtækinu SyncDog, sem
sérhæfir sig í öryggi farsíma, segir að þrátt fyrir að sum smáforrit
séu hönnuð þannig að þau feli persónuupplýsingar frá öðrum
forritum þá geti stýrikerfi símans haft áhrif á þær stillingar.
Miller telur líklegustu skýringuna á því að auglýsingar birtist á
netinu stuttu eftir að neytendur hafa kynnt sér vöru ekki vera þá
að síminn hleri viðkomandi, heldur sé staðreyndin sú að mörg
smáforrit, t.d. frá Google, sameini upplýsingar um notanda
og búi til prófíl um hann. Prófíllinn er svo notaður til að birta
sérsniðnar auglýsingar út frá því sem notandinn hefur verið að
skoða. Sem dæmi; ef fólk leitar að sérstakri tegund af strigaskóm
á Google, notar Google Maps til að rata í skóvöruverslun eða
skráir sig á póstlista hjá skóverslun á Gmail-reikningi er mjög
líklegt að skóauglýsingar birtist í Google Chrome-vafranum
hjá viðkomandi. Þar sem Facebook er með hugbúnað sem leitar
að gögnum er líklegt að sömu auglýsingarnar birtist einnig á
Facebook-fréttaveitunni.
Hvað getur þú gert?
Ef þessi markaðssetning hugnast ekki neytendum geta þeir tak-
markað aðgang fyrirtækja að vefsögu sinni með því t.d. að nota
ekki sjálfvirkar innskráningarleiðir sem Google og Facebook
bjóða, auk þess að nota ekki Chrome-vafrann, segir Miller. Fólk
ætti að vera vakandi fyrir því hvaða aðgangsheimildir það hefur
veitt smáforritum í símanum. Ef að telur að t.d. leikjasmáforrit
þurfi ekki aðgang að myndavélinni eða hljóðnemanum á síman-
um ætti að afturkalla hann.
iPhone
Til þess að sjá nákvæmlega hvaða leyfi þú hefur veitt
tilteknu smáforriti á iPhone skaltu fara í Settings – Privacy
– og í Camera. Þar má sjá lista yfir þau smáforrit sem hafa
aðgang að myndavélinni í símanum ásamt hnapp til að
afturkalla þann aðgang. Slíkt hið sama á við um Micro–
phone (hljóðnema).
Android
Í Android-síma ferðu í Stillingar (settings) – Forrit (apps)
og flettir niður og velur eitthvað af þeim smáforritum sem
þar birtast. Eftir að þú velur smáforritið sérðu hvaða leyfi
þú hefur gefið því tiltekna smáforriti og þar er hægt að
afturkalla leyfið.
Þrátt fyrir að margir telji að stórtæk hlerun á snjallsímum eigi
sér stað hefur ekki tekist að sýna fram á slíkt með óyggjandi
hætti. Seljendur hafa enda mun auðveldari og ódýrari leiðir til að
skyggnast inn í hugarheim neytenda. Eins og rakið hefur verið í
greininni er það fyrst og fremst hegðun okkar á netinu sem gerir
seljendum kleift að beina til okkar sérsniðnum auglýsingum.
Eins er líklegt, ef áhugi á tiltekinni vöru eða þjónustu vaknar, að
við tökum betur eftir auglýsingum sem við hefðum annars ekki
veitt neina athygli. Og síðast en ekki síst skyldi ekki vanmeta
tilviljanir. En þótt síminn sé að öllum líkindum ekki að njósna
um okkur er ástæða til að gjalda varhug við þeirri stórfelldu
upplýsingasöfnun á netinu sem á sér stað og neytendur gera sér
oft ekki grein fyrir.
Heimild: Consumer Reports