Neytendablaðið - 01.05.2021, Side 17
Neytendablaðið // Maí 2021 17
Hvað var kannað?
Ýmsir þættir eru kannaðir sem samanlagt segja til um gæði sím-
ans. Hægt er að sjá einkunn í hverjum flokki fyrir sig og hvert
vægi hans er við útreikning á heildareinkunn. Við hvetjum þá
sem eru í farsímakaupahugleiðingum að skoða vel þá flokka sem
þeim finnst skipta máli, en ekki eingöngu heildareinkunnina.
Fyrir suma getur þannig skipt meira máli hver rafhlöðuendingin
er en gæði myndavélar en rafhlöðuending telur 15% af heildar-
einkunn á meðan myndavélin telur 25%.
Myndavél og myndbönd – 25%
Gæði á myndbandsupptöku (bæði hljóð og mynd) og mynda-
töku símans eru metin.
Í myndatökuprófinu var skýrleiki myndanna metinn; gæði á
myndum í dagsbirtu, innandyra og utandyra. Þá voru myndir í
lágum birtuskilyrðum metnar með og án flass. Einnig var mælt
hversu langan tíma það tekur að opna myndavélina og taka
mynd. Þar sem margir símar eru nú með myndavélar bæði að
framan og aftan voru allar myndavélar kannaðar.
Í myndbandsupptökuprófinu voru gæði myndbandsupptöku
skoðuð ásamt möguleika símans á að þysja inn. Einnig voru
eiginleikar myndbandsstöðuleikakerfis (Image Stabilizer) metnir,
sem og hljóðgæði myndabandsupptaka.
Rafhlaða – 15%
Í rafhlöðuprófinu var annars vegar kannað hversu löng raf-
hlöðuendingin var og hins vegar hversu langan tíma það tók að
hlaða rafhlöðuna. Rafhlöðuendingin var skoðuð út frá nokkrum
þáttum; biðtíma, netnotkun, myndatöku, GPS notkun og
taltíma. Hvert tæki var prófað tvisvar, fyrst með hæstu skjábirtu
og svo með skjábirtu stillta á 300 nits.
Skjár – 15%
Skjágæði voru metin út frá upplausn, skjástærð, birtustigi og
hversu auðvelt var að lesa af skjánum á hlið, innandyra við litla
birtu og utandyra í mikilli birtu.
Frammistaða – 10%
Álagspróf voru framkvæmd 5 til 10 sinnum með sérstöku
snjallforriti til að athuga hvort og þá hversu mikið sími myndi
hitna. Á meðan álagsprófið var í gangi var heitasti hluti símans
(skjár eða bakhlið) mældur með sérstökum innrauðum mæli.
Hljóð – 10%
Hljómgæði voru könnuð með hágæða heyrnartólum til að meta
hvort einhver aukahljóð heyrðust við spilun tónlistar. Einnig var
hljóðstyrkur tækisins metinn en sími var þá staðsettur einum
metra frá hljóðnema þar sem hátalarinn á símanum sneri að
hljóðnemanum og hljóðið mælt með sérstökum hugbúnaði.
Ending – 10%
Hér voru þrír þættir kannaðir, rispuþol á skjá, höggþol og
vatnsþol.
Í rispuprófinu var notaður sérstakur penni til að kanna hvort
skjár myndi rispast. Síminn fékk svo einkunn miðað við þann
hámarksþrýsting sem hann þoldi án þess að varanlegar rispur
mynduðust. Jafnframt var rispuþol myndavélar á símanum
kannað.
Í höggprófinu var kveikt á símunum og þeir settir í nokkurs
konar veltitæki til að líkja eftir falli úr 80 cm hæð. Símarnir voru
skoðaðir eftir 25 hringi og svo aftur eftir 50 hringi og skemmdir
metnar. Virkni símana eftir prófraunina var síðan metin.
Höggþol símanna var skoðað eftir að veltitækið hafði farið um þá
ómjúkum höndum.