Neytendablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 20
20 Neytendablaðið // Maí 2021
Títandíoxíð er hvítt litarefni sem er notað í ýmsar matvörur en
þó sérstaklega í sælgæti, bakkelsi, ís og tyggjó. Efnið er einnig
að finna í lyfjum og snyrtivörum. Vaxandi áhyggjur hafa verið
af öryggi litarefnisins og ákváðu Frakkar að banna títandíoxíð
í matvælum frá og með janúar 2021. Eru rökin þau að ekki
liggi fyrir næg gögn sem sýni fram á að títandíoxíð sé öruggt
til neyslu. Frakkar geta þó ekki bannað innflutning og sölu á
matvörum sem innihalda efnið en þeir hafa hins vegar bannað
notkun þess í matvælum framleiddum í Frakklandi. Slíkt bann
flokkast alla jafna sem viðskiptahindrun enda hindrar það frjálst
flæði vöru innan evrópska efnahagssvæðisins. Evrópusambandið
gæti því farið í mál til að fá banninu hnekkt en hefur til þessa
valið að gera það ekki.
Matvælaöryggisstofnun Evrópu hefur gefið út að efnið sé skað-
laust en á sama tíma viðurkennt að gögn skorti til að geta komist
að afgerandi niðurstöðu. Evrópusamtök neytenda (BEUC) hafa
kallað eftir því að títandíoxíð verði bannað í matvörum í öllum
löndum Evrópusambandsins og að varúðarreglan verði höfð að
leiðarljósi.
Áhyggjur af neyslu títandíoxíð snúa ekki síst að því að efnið inn-
heldur alla jafna nanóagnir. Nanótæknin hefur rutt sér til rúms
á undanförnum árum en notkun tækninnar í neytendavörur
hefur verið umdeild. Nýleg rannsókn sýndi að títandíoxíð getur
borist frá móður í ófætt barn og það er ekki síst þess vegna sem
frönsk stjórnvöld vilja hafa varann á auk þess sem ekki liggi fyrir
fullnægjandi sönnun þess að títandíoxíð sé öruggt aukaefni.
Mörgum brá í brún þegar fréttir bárust af því að Cocoa Puffs og Lucky
Charms yrði ekki lengur fáanlegt hér á landi. Að sögn framleiðandans Gener-
al & Mills er ástæðan sú að í breyttri uppskrift er að finna náttúrulegt litarefni
sem ekki er heimilt að nota á evrópska efnahagssvæðinu. Neytendasamtökin
fjölluðu á sínum tíma ítarlega um asó-litarefnin umdeildu og þekkja vel til
þessara mála og telja frekar að of skammt sé gengið en of langt. Samtökunum
lék því forvitni á að vita hvaða ólöglega náttúrulega litarefni væri eiginlega
um að ræða og kölluðu eftir frekari upplýsingum. Ekki fengust skýr svör og
einna helst lítur út fyrir að framleiðandi vilji ekki upplýsa frekar um málið. Í Cocoa Puffs er aðeins eitt litarefni; E 150d
(karamellubrúnt), sem er algengt í mat, ekki síst í gosdrykkjum. Hugsanlega er verið að auka magn efnisins í morgunkorninu
umfram leyfilegt hámark þótt það sé ekki í samræmi við skýringar framleiðanda.
En óháð öllum litarefnum má segja að það sé kannski engin harmafregn að framboð af dísætu morgunkorni minnki.
Sykurinnihald í mörgum morgunkornstegundum er svo hátt að nær væri að markaðssetja þessar vörur sem eftirrétt en ekki
morgunmat fyrir börn.
Þess má geta að sendinefnd ESB á Íslandi sá sig knúið til að gefa út yfirlýsingu um málið þar sem fram kom að fram-
leiðandinn hefði sjálfur ákveðið að breyta uppskriftinni þannig að hún stæðist ekki kröfur um heilbrigði sem gerðar eru á
evrópska efnahagssvæðinu.
Cocoa Puffs og Lucky
Charms horfið úr hillum
Algengt litarefni nú
bannað í Frakklandi
Litarefnið títandíoxíð (E171), sem
er algengt í matvælaframleiðslu,
hefur verið bannað í Frakklandi.