Neytendablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 27
Neytendablaðið // Maí 2021 27
væri breytt. Þegar ekki varð af því kom ekki til endurgreiðslu.
Öll samskipti við seljanda fóru í gegnum Messenger.
Í framhaldi af uppljóstrunum Which? hefur breska samkeppnis-
eftirlitið haft málið til skoðunar og fundið enn frekari sannanir
þess að verið sé að villa um fyrir neytendum. Eftir að hafa
ítrekað fyrri kröfur sínar herma nýjustu fréttir að Facebook og
Instagram hafi lofað að grípa til róttækari aðgerða. Í því felst
m.a. að setja bann á notendur sem ítrekað eru staðnir að verki og
að gera fólki erfiðara fyrir að nota leitarvél Facebook til að finna
falsumsagnahópa.
Hvernig á að varast falsumsagnir?
Það er í raun hægara sagt en gert því aðferðirnar eru til þess
fallnar að villa um fyrir neytendum. Which? lumar þó á
nokkrum ráðleggingum.
• Umsagnir eru betri vísbending en stjörnugjöfin ein og sér.
Því er gott ráð að lesa umsagnirnar en með gagnrýnum huga.
• Ef margar góðar umsagnir eru settar inn yfir stutt tímabil
er rétt að staldra við. Sérstaklega ef um er að ræða vörur sem
ekki hafa mikla útbreiðslu og vörumerkið er óþekkt.
• Ef í umsögn er talað um einhver fríðindi, endurgreiðslu eða
álíka, sem seljandi á að hafa lofað viðkomandi, ættu að vakna
grunsemdir.
• Ef umsögnum fylgja mjög margar myndir gæti það gefið til
kynna að brögð séu í tafli. Í einu tilfelli fann Which? 3.800
myndir af einni vöru; snjallúri sem hafði hlotið Amazon‘s
Choice merkið. Úrið hafði ekki verið lengi á markaði en samt
birtust af því 10 myndir að meðaltali á dag.
• Which? fann dæmi um umsagnir þar sem fólk sagði frá
því að seljandi hefði lofað endurgreiðslu eða ókeypis vöru ef
viðkomandi breytti neikvæðri umsögn í jákvæða. Í umsögnum
geta því komið fram mikilvægar upplýsingar um starfshætti
seljanda.
Gúgglað svindl
Which? hefur einnig afhjúpað svindl með stjörnugjafir og
umsagnir á Google. Svo virðist sem þar sé líflegur markaður
með stjörnugjöf því Which? fann ótal dæmi um notendur sem
dældu út fimm stjörnum til ólíkra fyrirtækja þvers og kruss um
Bretland. Þá vakti sérstakan grun að nokkrir notendur gáfu
nákvæmlega sömu fyrirtækjunum fimm stjörnur. Vandamálið er
því fjarri því að vera einskorðað við Amazon.
Ljóst er að neytendur reiða sig gjarnan á umsagnir enda vilja
flestir gera góð kaup og reynsla annarra notenda getur nýst vel.
Umfangsmikill falsumsagna-markaður er hins vegar til þess
fallinn að blekkja neytendur og bæta hag seljenda á kostnað
neytenda. Þá kemur svikastarfsemin niður á heiðvirðum fyr-
irtækjum og skekkir samkeppni. Ítrekaðar afhjúpanir Which?
hafa orðið til þess að breska samkeppniseftirlitið rannsakaði
málið og gripið hefur verið til aðgerða. Hvort þær duga er þó
óvíst. Allt þetta mál varpar þó ekki síst ljósi á þær ótal áskoranir
sem neytendur standa frammi fyrir í breyttum heimi þar sem
viðskipti hafa mikið til færst yfir á netið. Neytendavernd verður
að taka mið af því.
Eitt af frægari dæmunum er líklega
gerviveitingastaðurinn The Shed at Dulwich
sem var uppdiktaður af blaðamanni
tímaritsins Vice og varð um hríð „vinsælasti“
veitingastaðurinn í London samkvæmt
TripAdvisor áður en flett var ofan af
svindlinu og skráningin var tekin niður. En
með því lauk þó ekki gerviumsögnum.