Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.2021, Side 31

Neytendablaðið - 01.05.2021, Side 31
Neytendablaðið // Maí 2021 31 6,4 5,5 5,2 4,3 3,8 3,4 3,4 3,3 2,5 1,9 7,8 7,7 9,3 1,7 1,9 1,3 3,7 8,9 8,3 1,0 8,7 5,3 0,3 8,7 5,4 4,2 3,6 0,3 0,3 2,8 2,5 2,0 2,5 9,0 8,5 6,0 5,0 3,0 2,5 3,5 0,7 4,3 9,9 0,6 2,6 8,6 2,5 5,2 1,2 2,0 nei nei já nei nei nei nei já já nei Heildareinkunn Þrif - 40% Afkölkun - 30% Umbúðir - 20% Rennsli - 10% Inniheldur klór Svansmerkt Framleiðandi Tegund Einkunn er gefin frá 0-10 Myndir birtar með leyfi Råd och Rön og Forbrugerrådet Tænk. Könnunin er hluti af samnorrænu gæðakannanaverkefni sem styrkt er af Evrópusambandinu. Harpic Power Plus Max 10 original Closan Antikalk WC rens Domestos Ultra White Änglamark wc-rens og kalkerner Grøn Balance Toiletrens Ecover Toiletrens Duck Aktiv-Gel Marine Klorin WC gel ocean fresh Duck Foaming Bleach Harpic Eco Toilet Liquid Hvernig fer gæðakönnunin fram? Til að meta gæði klósetthreinsa eru þeir þættir kannaðir sem skipta mestu máli við klósettþrifin. Aðaláherslan er á það hversu auðveldlega efnið fjarlægir óhreinindi og kalk. Einnig er skoðað hversu hversu vel efnið dreifist eða rennur um skálina, hversu umhverfisvænar umbúðirnar eru og hversu auðvelt er að lesa innihaldslýsingu. Efnainnihald er einnig metið, svo sem hvort innihaldsefni séu skaðleg umhverfinu. Þrif 40% Skoðað er hversu vel efnið leysir upp gervióhreinindi sem líkja eftir þvagi. Efnið er látið liggja á postulínsplötu í 12 tíma og er síðan skolað af með vatni. Ekki er notaður klósettbursti heldur er metið hversu vel efnið eitt og sér leysir upp óhreinindi. Bestu efnin náðu að fjarlægja svo að segja öll óhreinindi á meðan ekki sá högg á vatni þegar lökustu efnin voru prófuð. Afkölkun 30% Hér er skoðað hversu vel efnið leysir upp kalkfellingar. Ef vatn inniheldur mikið kalk (kalsíum) er talað um að það sé hart og að sama skapi er vatn mjúkt ef magn kalks er lítið. Hér á landi er vatn almennt mjög mjúkt. Í þessari gæðakönnun vegur afkölkun 30%, sem er eins og í sænskri útgáfu könnunarinnar, á meðan afkölkun vegur 50% í danskri útgáfu þar danskt vatn er mjög hart. Hugsanlega er vægi afkölkunar fullhátt miðað við íslenska vatnið. Umbúðir 20% Hér er metið hversu auðvelt er að lesa á innihaldslýsingu en einnig hversu umhverfisvænar umbúðirnar eru. Er þá horft til þess úr hvaða efni umbúðirnar eru gerðar og hversu auðvelt er að endurvinna þær. Í þessum flokki fá Änglamark og Grøn Balance áberandi hæstu einkunn. Rennsli 10% Mælt er hversu hratt efnið rennur niður 40 cm og hversu vel það dreifist. Of mikið rennsli er ekki gott en rennslið má heldur ekki vera of hægt. Hér er því verið að leita að hinu fullkomna flæði. Klór í klósetthreinsi ekki æskilegur Innihaldi klósetthreinsir klór kemur það til frádráttar á heildar- einkunn. Tvær tegundir, Klorin og Domestor Ultra White, innihalda klór sem er öflugt en óæskilegt sótthreinsiefni út frá umhverfissjónarmiðum. Klór leysir ekki upp kalkfellingar en getur vissulega hvíttað eða bleikt þær. Báðar þessar tegundir fengu falleinkunn hvað varðar afkölkun. Ef klór blandast öðrum hreinsiefnum með háu sýrustigi geta myndast skaðlegar gufur. Ekkert mælir með því að nota kló- setthreinsi sem inniheldur klór til þrifa á heimilum og gott er að hafa í huga að öll efni sem við skolum niður, hvort sem er í sturtunni, handlauginni eða í klósettinu, enda í lífríkinu. Heimild: Röd och Rån og Tænk

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.