Skólavarðan - 2021, Qupperneq 8
8 SKÓLAVARÐAN HAUST 2021
KENNARASAMBANDIÐ / Fréttir
Skólamálaþing Kennarasam-
bands Íslands var að þessu sinni
með óhefðbundnu sniði. Í stað
þess að efna til staðfundar var
haldið fjölsótt, rafrænt málþing
á Alþjóðadegi kennara, fimmta
október. Ræðumenn voru Kári
Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, og María
Ellingsen leikkona. Yfirskrift
þingsins var Alltaf til staðar en
það er yfirskriftin sem valin var
af Alþjóðasamtökum kennara
(Education International) í
tilefni dagsins.
Árangur barna lífsspursmál
Erindin voru einkar fróðleg. Í
erindi sínu beindi Kári spjótum
sínum að tilvonandi ríkisstjórn
sem hann kvað verða að taka
skólamál mun fastari tökum.
Skólakerfið væri öflugasta
jöfnunartækið sem völ væri á
og að skólakerfið, sérstaklega
leik- og grunnskólar, fengist
við mikilvægustu verkefni
sam félagsins. Árangur barna í
skólum væri lífsspursmál.
Í lokin beindi Kári máli
sínu að kennurunum: „Framtíð
þjóðarinnar er að miklu leyti
undir skólakerfinu komin.
Framtíð fjölskyldna okkar allra
er háð því hvernig skólakerfið
hjálpar okkur við að koma börn-
um okkar til manns. Hvernig
þið, kennarar, hjálpið okkur að
koma þeim til manns. Og ég hvet
ykkur sem nú eruð á besta aldri
að muna að líkurnar á því að þið
getið notið kvöldsólarinnar og
rauðs bjarma hennar á himni
og hafi eru háðar því hvernig
skólakerfið, sem er kennarar,
hefur hlúð að börnunum. Þess
vegna eru hjörtu okkar full af
þakklæti til kennarastéttarinnar
á þessum alþjóðlega degi
kennara.“
Skólamálaþing á Alþjóðadegi kennara:
Hjörtu okkar full af þakk-
læti til kennarastéttarinnar
Efri mynd: Ragnar Þór Pétursson, María Ellingsen, Anna María
Gunnarsdóttir og Gerður Kristný. Kári Stefánsson er á neðri myndinni.
Félag náms- og starfsráðgjafa hélt nýverið
upp á 40 ára afmæli félagsins. Megin-
markmið náms- og starfsráðgjafar er að
efla vitund einstaklinga um hæfileika sína,
viðhorf og áhuga þannig að þeir geti notið sín í
námi og starfi. Ráðgjöfinni er ætlað að auðvelda
fólki, á hvaða aldri sem er og við hvaða aðstæður
sem er, að átta sig á styrkleikum sínum, færni og
áhuga til að eiga hægara með að ákveða stefnu í
námi og starfi. Náms- og starfsráðgjöf er lögbund-
in þjónusta og mikilvægt að tryggja aðgengi að
henni, hvar sem maður er staddur á sínum náms-
og starfsferli.
Fréttablaðið gerði félaginu vel skil á degi
náms- og starfsráðgjafar og þar var rætt við
Ásthildi G. Guðlaugsdóttur, náms- og starfs-
ráðgjafa í Kársnesskóla. „Í mínu starfi sem
grunnskólaráðgjafi, veiti ég nemendum meðal
annars ráðgjöf og stuðning vegna líðan þeirra,
ég aðstoða og ráðlegg nemendum varðandi
námstækni, veiti náms- og starfsfræðslu, og
aðstoða nemendur við að efla náms- og félagslegan
þroska sinn. Verkefnin hafa í raun ekki breyst
mikið frá því ég hóf störf en auðvitað eru sífellt að
bætast við ýmis tæki og tól sem við getum nýtt í
starfinu,“ segir Ásthildur.
Nýr vefur í loftið
Markmið vefsíðu Sérfræðingateymis
í samfélagi sem lærir (SÍSL) er að
valdefla foreldra og nemendur og styðja
við starfsþróun kennara svo fátt eitt sé
nefnt.
Í gegnum vefinn er hægt að nálgast
ókeypis rafræn námskeið í gagnreyndu
kennsluaðferðunum PALS og 6+1 vídd
ritunar ásamt öllum námsgögnum.
Þannig er hægt að taka námskeiðin
nánast hvar og hvenær sem er á eigin
hraða.
Rafrænu námskeiðin veita kennur-
um sem hafa setið námskeið í PALS
möguleika á að rifja upp það sem þeir
lærðu á námskeiðunum og þegar nýir
kennarar hefja störf við skóla þar sem
PALS er notað er hægt að þjálfa þá strax
í aðferðinni í gegnum SÍSL-vefinn.
Með vefnum fá foreldrar einnig
einstakt hjálpartæki upp í hendurnar
til að þjálfa börn sín í læsi, ritun og
stærðfræði. Þess má geta að K-PALS
hefur verið notað til þess að kenna
fullorðnum sem eru ólæsir á sínu
móðurmáli að lesa á íslensku.
Náms- og starfsráðgjöf 40 ára
www.sislvefur.is
Ertu með hugmynd?
Ritstjórn Skólavörðunnar er
alltaf á höttunum eftir góðu
umfjöllunarefni sem tengist
skóla- og menntamálum.
Endilega sendið okkur línu
ef þið lumið á hugmynd að
áhugaverðu efni sem við getum
gert skil í blaðinu. Netfangið er
utgafa@ki.is.