Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 43

Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 43
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 43 Jórunn Einarsdóttir / VIÐTAL kennslan auðvitað fyrst upp í hugann og sú staðreynd að hér er fjöldi fólks sem hefur ekki aðgang að íslensku og fullt af fólki úti um alla Evrópu og allan heim svo ég spurði mig hvers vegna ég færi þá ekki að sinna þessum stóra hópi,“ segir Jórunn frá vangaveltum sínum að meistaranáminu loknu. Hún játar að á þessum tíma hafi hún verið mjög upptekin af því að kennsla væri eitthvað sem aðeins væri hægt að framkvæma í kennslustofu, en nú er staðan hins vegar sú að kennsla Jórunnar fer nánast að öllu leyti fram gegnum skjá – og reyndar voru þeir kennsluhættir til komnir löngu fyrir tíma heimsfaraldursins sem loks er í rénun eftir langa mæðu. „Ég stofna Kötlu 2018 og því löngu farin að kenna gegnum skjá fyrir Covid, en svo sprakk þetta alveg út í Covid. Fólk fór þá að eiga mun auðveldara með að tileinka sér þessa tækni og hætta að líta á skjáinn sem einhvern flöskuháls eins og hann var í augum margra áður. Núna er þetta ekki lengur eitthvað sem fólk setur fyrir sig,“ segir Jórunn og viðurkennir í framhaldinu aðspurð að hún sé reyndar ekki mjög glúrin í markaðssetningu, viðskiptavinir hennar leiti mun fremur til hennar eftir að hafa heyrt af henni og þeirri kennslu sem hún starfrækir gegnum Kötlu. Líður vel í Danmörku „Ég nota nú bara mest samfélagsmiðla og fólk sendir mér fyrirspurnir. Mitt kennsluform hefur fram að þessu mest verið einkakennsla þar sem ég er bara með einn og einn nemanda í einu, en auk þess hef ég verið með námskeið í íslensku í Jónshúsi fyrir nemendur sem komast ekki á þeim tíma þegar íslenskuskólinn á vegum sveitarfélagsins er,“ útskýrir Jórunn. Starfsemi hennar teygir stafræna anga sína þó víðar, meðal annars til Íslands þar sem Jórunn vinnur nú að því í samstarfi við Öryggismiðstöðina að búa til íslenskunámskeið handa erlendu starfsfólki fyrirtækisins sem ætlað er að nýtast því við að ná betur utan um starfsemi vinnuveitandans og eigin starfsvettvang. Jórunn og Ágúst eru að hennar sögn ekki á þeim buxunum að flytjast búferl- um á næstunni. „Okkur líður rosalega vel hérna, kunnum vel við Danina og höfum bara komið okkur þannig fyrir að lífið er bara nokkuð ljúft,“ segir hún, en Ágúst starfar sem heimilislæknir í Kaupmannahöfn. „Þannig að við erum bara í góðum málum,“ eru lokaorð Jórunnar Einarsdóttur, íslenskukennara í Kaupmannahöfn sem áttaði sig á því að þegar maður er kennari þá er maður kennari þótt hefðbundin kennslustofa sé ekki alltaf vettvangurinn. Jórunn Einarsdóttir íslenskukennari segir að lífið í Danmörku sé „bara nokkuð ljúft“ og hún sé ekki á þeim buxunum að flytjast búferlum á næstunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.