Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 19

Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 19
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 19 Kennaramenntun / DANMÖRK N ý dönsk rannsókn sýnir að menntun danskra grunn- skólakennara stenst ekki samanburð við nágrannalöndin. Sömu sögu er að segja af viðbótar- og endurmenntun kennara. Rannsóknastofnunin Damvad Analytics (DA) gerði rannsóknina fyrir Danska menntunarráðið (Rådet for Børns Læring) sem er ráðgjafarnefnd danska menntamálaráðuneytisins. Í rannsókninni var menntun kennara í Danmörku borin saman við kennara- menntun í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Eistlandi, Hollandi, Skotlandi og þýska sambandsríkinu Hessen. Sérfræðingar frá viðkomandi löndum unnu að rannsókn- inni í samvinnu við DA. Styttri menntun og lakara skipulag endurmenntunar Á vefsíðu danska kennarablaðsins, Fol- keskolen.dk, hefur verið fjallað ítarlega um rannsóknina. Charlotte Rønhof, formaður Danska menntunarráðsins, dró þá ályktun eftir að hafa lesið skýrsluna sem DA skilaði að menntun danskra kennara jafnaðist engan veginn á við samanburðarlöndin og varðandi viðbótar- og endurmenntun kennara væri Danmörk enn aftar á merinni. „Við vissum fyrirfram að hér hjá okkur er kennaramenntunin styttri en í löndunum sem við berum okkur saman við. Ég hafði hins vegar ekki áttað mig á að við værum svona langt á eftir varðandi endurmenntun kennaranna.“ Í Danmörku er eingöngu boðið upp á kennaranám í starfsgreinaskólum (Pro- fessionshøjskoler) þar sem námið miðast við fjögur ár. Þetta er sama fyrirkomulag og í Hollandi og Skotlandi, en í Svíþjóð er grunnnám kennara fjögur ár og hálft ár til viðbótar fyrir sérgreinakennara. Í Hessen er námið mislangt, þrjú ár hið minnsta en lengst fimm ár og veitir mismikil réttindi til kennslu. Í Eistlandi, Finnlandi og Noregi tekur fimm ár að fá starfsréttindi sem kennari. Nefndin sem var lögð niður Í Danmörku hefur um árabil farið fram mikil umræða um kennaramenntunina, einkum hvort æskilegt væri að lengja hana í fimm ár sem lyki með kandi- datsprófi. Það myndi jafnframt opna leið til doktorsnáms. Í tíð ríkisstjórnar Lars Løkke Rasmussen (2015 – 2019) var skipuð nefnd sérfræðinga sem ætlað var að skoða þessa leið og meta kosti hennar og galla. Minna varð úr starfi nefndarinn- ar en til stóð því menntamálaráðherrann í núverandi ríkisstjórn lagði hana niður. Í staðinn var stofnaður vinnuhópur sem ráðherrann nefndi þróunarhóp. Þessum hópi, sem á að skila af sér síðar í haust, er ætlað að benda á leiðir til úrbóta, án þess að námið verði lengt umfram núverandi fjögur ár. Kennaraskólunum lokað Árið 2008 ákvað danska þingið, Folketinget, að öllum kennaraskólum landsins skyldi lokað og námið færi eftir- leiðis fram í nýstofnuðum sérgreinaskól- um. Þessar breytingar voru frá upphafi gagnrýndar og margir telja það mistök að kennaraskólunum hafi verið lokað. Meðal þeirra er Caroline Holdflod Nørgaard, formaður samtaka kennaranema. Í nýlegu viðtali við Folkeskolen.dk sagðist hún álíta að sérstaða kennara- námsins hafi horfið þegar það varð hluti sérgreinaskólanna. „Andrúmsloftið sem einkenndi kennaraskólana er ekki til staðar í starfsgreinaskólunum, kennaranámið er orðið að tannhjóli í stóru gangverki. Stjórnendur hafa í mörg horn að líta og kennaranámið skipar ekki þann sess sem því ber.“ Margir skólamenn hafa á síðustu árum lýst svipuðum sjónarmiðum. Caroline Holdflod Nørgaard sagðist, í áðurnefndu viðtali, ekki vera að kasta rýrð á sérgreinaskólana, þaðan hefðu margir góðir kennarar útskrifast. En það væri hægt að gera betur, til dæmis með því að taka upp aukna samvinnu við háskólana í landinu. „En það eru stjórnmálamennirn- ir sem ákveða.“ Í skýrslu DA er dregin upp dökk mynd af ástandinu varðandi viðbótar- og endurmenntun danskra kennara. Sam- kvæmt því sem fram kemur í skýrslunni fer ekki fram í Danmörku nein skipuleg viðbótar- og endurmenntun starfandi kennara. Í Svíþjóð, Skotlandi og Eistlandi er gerð krafa um að kennarar fái árlega viðbótar- og endurmenntun. Í Svíþjóð eiga kennarar rétt á 104 tímum á ári, í Skotlandi 65 tímum og í Eistlandi er kennurum gert að stunda 160 tíma faglegt nám á hverjum fimm árum í starfi. Milljarður árið 2014 Eftir miklar breytingar á kennslufyrir- komulagi grunnskólanna (folkeskoler- eformen) árið 2014 ákvað ríkisstjórn Helle Thorning-Schmidt að verja einum milljarði danskra króna (20 milljarðar íslenskir) til viðbótar- og endurmenntun- ar kennara. Jafnframt var sett fram markmiðslýsing þar sem fram kom að árið 2020 skyldu 95% allrar kennslu í dönskum grunnskólum vera í höndum kennara með sérþekkingu á viðkomandi sviði. Þetta markmið var langt frá því að nást og nú er miðað við árið 2025. Þegar Folkeskolen.dk leitaði skýringa á þessari seinkun hjá mennta- málaráðuneytinu var svarið að þegar langur tími væri til stefnu hætti fólki til að slá hlutunum á frest og eftir mikið átak árin 2014 og 2015 hafi áhugi kennara ekki verið sá sami. Þeim kennurum sem stundað hafa viðbótar- og endurmenntun hefur fækkað frá árinu 2016. Dorte Andreas, varaformaður samtaka skólastjórnenda í grunnskólum, sagði í viðtali við Folkeskolen.dk að hún gæti tekið undir það með ráðuneytinu að eftir breytingarnar í grunnskólunum árið 2014 hefði orðið ákveðin vakning, sem svo hefði smám saman fjarað út. En skýringarnar væru hugsanlega fleiri, „það er einfaldlega svo mikið að gera hjá kennurum, þeir hafa í sífellt fleiri horn að líta í starfinu og eiga nóg með það. Þótt það sé gott og gagnlegt að sækja sér viðbót- armenntun krefst það tíma og orku. Sem kennarar hafa ekki,“ segir Andreas. Í Eistlandi, Skotlandi og Hollandi fá allir kennarar sem eru að hefja störf sérstaka leið- sögn fyrsta árið í starfi. Ekkert slíkt er gert með skipulegum hætti í Danmörku þótt sumir skólar sinni slíkri aðstoð þegar nýir kennarar bætast í hópinn. Formaður danska menntunarráðsins sagði í viðtali við Folkeskolen.dk að þetta sýndi glögglega að Danir væru langt á eftir nágrannaþjóðunum í þessum efnum. Fimmti hver án menntunar Í maí síðastliðnum birti Danska kennara- sambandið niðurstöður könnunar sem unnin hafði verið fyrir það. Tölurnar sem þar birtust vöktu mikla athygli. Árið 2019 voru 18,1% þeirra sem starfaði við kennslu í dönskum grunnskólum án kennaramenntunar. Í sams konar könnun sem gerð var árið 2012 var talan 10,3%. Í viðtali á vefsíðu samtakanna sagði Gordon Ørskov, formaður dönsku kennarasamtakanna, þetta ískyggilegar tölur: „maður spyr sig hvað valdi, er það með ráðum gert að ráða ófaglært fólk til starfa, útskrifast of fáir kennarar, af hverju velja margir sem ljúka kennaranámi aðra vinnu? Hver sem skýringin kann að vera er þetta algjörlega óviðunandi“. Fjöldi réttindalausra kennara er mjög mismunandi eftir sveitarfélögum en í sumum þeirra voru rúmlega 30% kennaranna án kennsluréttinda árið 2019. Og 10,6% þeirra sem sinntu kennslu þetta ár höfðu einungis lokið grunn- eða menntaskólanámi. Gordon Ørskov segir rannsóknir hafa sýnt að kennarinn sé mikilvægasti þátturinn í öllu skólastarf- inu. „Kennsla er flókið viðfangsefni og til að sinna því þarf menntun.“ Við vissum fyrirfram að hér hjá okkur er kennaramenntunin styttri en í löndunum sem við berum okkur saman við. Charlotte Rønhof, formaður Danska menntunarráðsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.