Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 21

Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 21
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 21 Skyndihjálp / NEMANDINN N ýtt verkefni, FAST 112 hetjurn- ar, er alþjóð- legt verðlaunaátak sem fræðir nú fjölskyldur um einkenni slags (heilablóðfalls) og rétt viðbrögð við þeim. Þróað hefur verið kennsluefni sem er sniðið að þörfum 5-9 ára barna en í því kenna skemmtilegar ofurhetjur börnunum mikilvæga lífsleikni sem þau miðla svo til fjöl- skyldunnar. Nemendur læra að þekkja einkennin og hvernig eigi að hringja í Neyðarlínuna. Sláandi staðreyndir sýna að einn af hverjum fjórum fær slag á lífsleiðinni, sem þýðir að nánast allar fjölskyldur þekkja til þess. Það er því afar mik- ilvægt að börn læri að þekkja einkennin til að geta brugðist við og jafnvel bjargað mannslífum. Hið jákvæða er nefnilega það að það er hægt að meðhöndla slag ef fólk kemst á sjúkrahús í tæka tíð. Kennsluefni í boði Kennsluefnið um FAST 112 hetjurnar er þróað af mennta- vísindasviði Makedóníuháskóla í Grikklandi og hafa fjölmargir sérfræðingar komið að staðfæringu þess og yfirlestri. Innleiðingu hérlendis verður fylgt eftir með rannsóknum líkt og tíðkast erlendis. Tæplega 6.000 kennarar frá nærri 1.900 skólum víða um heim hafa þegar tekið þátt í verkefninu og frætt um 72.000 börn. Kannanir sýna að foreldrar og kennarar voru ánægðir með efnið og fannst það aðgengilegt í framkvæmd – og börnunum fannst það skemmtilegt og gripu boðskapinn á lofti. Kennslan er einföld og er skipt í fimm kennslustundir. Kennarar þurfa ekki mikinn undirbúning, aðeins að skrá bekkinn sinn á vefsíðunni fastheroes.com og lesa eina rafbók í hverri kennslustund. Rafbókin leiðir svo kennarann og börnin í gegnum kennslu- stundina. Hvert barn fær afhent veglega verkefnabók stútfulla af leikjum og skemmtilegu efni. Kennslan fer fram í gegnum skemmtilegar teiknimynda- persónur, Friðrik fyndna fés, Arnór arm og Soffíu söngkonu, sem eru ofurhetjur á efri árum, og barnabarn þeirra, Tómas tímanlega. Einnig eru leikir, verkefni og söngur þar sem þau læra m.a. að hringja í Neyðar- línuna. Börnin eru hvött til að miðla þekkingu sinni áfram, til að mynda með því að senda ömmu og afa falleg póstkort með gagnlegum upplýsingum. Þekking barnanna getur bjargað lífum Á alþjóðlegum árveknidegi um slag þann 29. október síðast- liðinn var athöfn í leikskólan- um Brákarborg, en hann er fyrsti skólinn til að innleiða kennsluefnið í starf sitt. Þar starfar Arnrún Magnúsdóttir leikskólakennari en hún hóf kennslu á verkefninu nú í haust og gekk umsvifalaust inn í FAST 112 hetjuteymið. Skólavarðan ræddi við Arnrúnu og byrjaði á að spyrja hana af hverju hún væri að taka þátt í verkefninu? „Ég brenn fyrir forvörnum fyrir börn frá fæðingu til 10 ára og hef mikla reynslu af því að eiga samtal við þau um forvarnir af ýmsu tagi. Ég tek þátt í verkefninu vegna þess að ég vil gefa af mér og veita þeim öryggi í lífi og námi. Ég finn hversu mikilvægt það er að geta útskýrt fyrir börnum, á einfaldan hátt, allt hvað forvarnir varðar, sama hvort um ræðir eitthvað í umferðinni, brunavarnir, tannhirðu eða of- beldi. Nýjasta verkefnið, FAST 112, er einstakt og það hefur reyndar mjög persónulega tengingu. Verkefnið gengur út á að kenna börnum að þekkja einkenni slags og töfranúmerið 1-1-2. Sjálf fékk ég slag árið 2016 sem hafði mjög mikil áhrif á heilsuna, en ég nánast lam- aðist vinstra megin og málið brenglaðist um tíma. Ég þurfti mikla endurhæfingu, m.a. að læra að ganga upp á nýtt. Þegar heilsu var náð fór ég að vinna í leikskólanum Brákarborg og það er besta BARNA-vítamín sem lífið hefur fært mér,” segir Arnrún og greinilegt er að hún brennur fyrir málefninu. Nú er þetta mál sem snertir mjög marga og oft erfitt að koma upplýsingum um rétt viðbrögð á framfæri. Börnin eru einstakir sendi- herrar Arnrún er ekki í vafa um mikilvægi barnanna í þessu samhengi: „Í átaki sem þessu eru börnin svo sannarlega einstakir sendiherrar. Þetta átak er skemmtilega framsett, einfalt, líflegt og útskýrir einkenni á þann hátt sem börnin skilja. Börnin hafa rödd í fjölskyldum sínum, rödd sem hljómar til dæmis í eyru ömmu og afa á annan hátt en nokkur annar getur náð til þeirra. Nemendur mínir eru spenntir fyrir næsta tíma og tala um persónurnar sem einkennin eru tengd við. Börn eru góðir boðberar og fljót að færa þessa fræðslu, sem og annars konar fræðslu, yfir í leik hjá sér.“ Hvaða skilaboðum viltu koma á framfæri við kennara sem lesa þessa umfjöllun? „Mín skilaboð eru áríðandi. Tíðni slags er ótrúlega há og hver sem er getur lent í því að fá slag. Mikilvægi þess að allir þekki einkenni er gríðarlegt og hver mínúta skiptir öllu máli. Við fræðum börn um mikilvægi þess að tannbursta sig, nota bílbelti og fikta ekki með eld, en þessi fræðsla er alls ekki síður mikilvæg. Þekking þeirra á þessum málaflokki gefur þeim yfirburði í sjálfstæði og samfé- lagsþátttöku. Sjálf þekki ég þá reynslu að hafa reynt að hunsa einkennin þegar þau komu hjá mér (andlitið seig niður vinstra megin og málið ruglaðist) en eiginmaður minn er mín FAST 112 hetja!“ Börn eru einstakir sendiherrar Ég tek þátt í verk efninu vegna þess að ég vil gefa af mér og veita þeim öryggi í lífi og námi. Hefur þú áhuga á FAST? Ef kennarar eða skólar hafa áhuga á að fræða nemendur um FAST 112 ofurhetjurnar er hægt að skrá sig til leiks á www.fastheroes.com. Efnið stendur öllum þeim sem koma að fræðslu barna á aldrinum 5-9 ára til boða endurgjaldslaust. Þekkir þú helstu einkenni slags? Slag, öðru nafni heilablóðfall, er önnur algengasta orsök dauðsfalla í heiminum og ein algengasta orsök þess að fullorðið fólk býr við færniskerðingu. Einn af hverjum fjórum má búast við því að fá slag á lífsleiðinni, ef miðað er við tölur frá Alþjóðlegu slagsamtökunum. Þekkir þú helstu einkenni slags? Til að meta einkennin fer eftirfarandi FAST skimun fram:  X F (face): Biðja einstakling að brosa - sígur munnur eða auga niður öðrum megin?  X A (arm): Biðja einstakling að halda höndum uppi – sígur annar handleggurinn niður eða lyftist ekki upp?  X S (speech): Biðja einstakling að fara með einfalda setningu – talar viðkomandi óskýrt og ekki hvað þú ert að segja?  X T (time): Tímabært að hringja strax í 112 ef eitt eða fleiri af þessum atriðum eiga við og þig grunar slag. is-is.fastheroes.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.