Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 14
14 SKÓLAVARÐAN HAUST 2021
VIÐTAL / Guðjón Hreinn Hauksson
Umhugað
um öflugan
framhalds-
skóla
Það hefur lengi
blasað við að draga
þarf úr vinnuálagi
kennara en í ljósi
þess að margar
aðrar starfsstéttir
í samfélaginu hafa
nú stytt vinnuvikuna
niður í 36 klukku-
stundir verður þessi
mismunur enn
ósanngjarnari.
G uðjón Hreinn
Hauksson
hefur gegnt for-
mennsku í Félagi
framhaldsskóla-
kennara síðan
2019. Hann hlaut afar góða kosningu
í september það ár en hafði áður verið
starfandi formaður félagsins um tveggja
mánaða skeið, eftir að Guðríður Arnar-
dóttir sagði af sér formennsku og tók við
starfi skólameistara í MK.
Ritstjórar Skólavörðunnar settust
niður með Guðjóni og spurðu út í for-
mannsstarfið, stöðu framhaldsskólans og
hvað væri efst á baugi í starfsemi Félags
framhaldsskólakennara (FF).
„Ég kann vel við starf formanns,
verkefnin eru áhugaverð og skemmti-
leg frá degi til dags en um leið afar
krefjandi. Það eru alltaf mörg verkefni
í gangi, margir fundir í hverri viku og
í mörg horn að líta. Skipulagning og
forgangsröðun verkefna er því snar
þáttur í vinnunni,“ segir Guðjón Hreinn.
Hann segist vera að komast æ betur inn í
starfið en það taki tíma að kynnast öllum
þáttum þess.
Hækka þarf launin svo um munar
Spurður hvað beri hæst á borði formanns
þessa daga segir Guðjón það vera nokkur
veigamikil mál. „Það sem ég legg mesta
áherslu á nú er að fylgja eftir síðustu
kjarasamningum við ríkið og einkaskól-
ana. Á samningstímanum þarf að vinna
mörg verkefni og eins gott að halda vel á
spilunum þótt samningur verði ekki laus
fyrr en í lok mars 2023. Mikilvægt er í
þessari vinnu að hugsa til framtíðar og
tryggja gæði framhaldsskólastigsins. Eitt
áhyggjuefni þar eru kennararnir sjálfir,
eða öllu heldur samsetning hópsins,“
segir Guðjón Hreinn.
„Við höfum séð hæga og stöðuga
þróun í kynjasamsetningu félagsmanna
frá aldamótum en þá var jafnvægi á milli
kvenna og karla í stéttinni. Nú er svo
komið að karlarnir eru um 38 prósent
framhaldsskólakennara. Annað ekki
síður alvarlegt er að aldur stéttarinnar
fer hækkandi; framhaldsskólakennarar
eldast hratt. Rétt tæpur þriðjungur karla
sem vinna við kennslu í ríkisskólunum er
kominn yfir sextugt. Ég hef sterkan grun
um að þarna séu í meirihluta karlar sem
sinna kennslu í iðngreinum og ef ekki
verður mikil í nýliðun innan stéttarinnar
þá horfum við fram á að missa stóran
hluta hennar á eftirlaun.“
Kennaranemum hefur fjölgað
síðustu misseri og segir Guðjón Hreinn
það jákvætt. „Við fögnum því auðvitað
að fleiri sæki í kennaranám, enda þarf
að fjölga kennurum svo um munar á
öllum skólastigum. Það breytir þó ekki
þeirri staðreynd að vandi er yfirvofandi M
yn
d:
A
nt
on
B
ri
nk