Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 39

Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 39
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 39 Hanna Margrét Einarsdóttir / VIÐTAL kennsluhættina; að nemendur séu að vinna á ólíkan hátt úr kannski sömu hugmyndinni. Mér finnst það mjög spennandi ferli.“ Virðisaukning nemandans Hanna Margrét kennir námskeiðið „Leiðtogar í skapandi skólasamfé- lagi“ hjá Menntafléttunni. „Ég var beðin að taka þátt í að kenna það námskeið og er að kenna þar með frábæru fólki, þeim Rósu Gunnarsdóttur og Ingimar Waage Ólafssyni. Mér finnst það hafa verið ótrúlega gefandi að taka þátt í þessu. Við erum að reyna að efla kennarann sem skapandi leiðtoga í skólanum og að fá fólk til að gera svolítið það sama og ég er að fá nemendur Víkurskóla til að gera; að skoða sig sem kennara og skoða umhverfið sem viðkom- andi starfar í. Hvar er skólinn staðsettur? Hvernig eru möguleik- arnir á því að vera skapandi? Hvað er í umhverfi skólans? Við erum til dæmis núna að vinna með kennurum að því að skoða hvað það er í umhverfi skólans sem þeir geta notað til að efla verkefni sín, svo sem hvort einhver fyrirtæki eru í grenndinni sem geti dýpkað eða stækkað verkefnin með þeim. Það sem skiptir líka miklu máli varðandi sköpunina er að skólakerfið er mjög einkunna- miðað og við hjá Menntafléttunni ræddum nýlega um hvað það er sem situr eftir þegar komið er úr skólakerfinu. Ég sagði að þegar ég var í frönsku í menntaskóla þá var það sem sat eftir það að ég hafði lært að elda franskan mat. Það jók áhuga minn á Frakklandi og dýpkaði áhuga minn á tungu- málinu og franskri tónlist. Það er þessi virðisaukning nemandans sem verður í skapandi greinum og skapandi námi; aukið sjálfstraust og aukin víðsýni. Það hefur verið ótrúlega skemmtilegt að fá tæki- færi til að taka þátt í því og það er svo mikilvægt að fólk geti komið saman og átt faglegt samtal. Það er gríðarlega mikilvægt og verðmætt. Það styrkir mann að öllu leyti.“ Listin er svo göfgandi Vinnustofa Hönnu Margrétar er töfraheimur þar sem allt getur gerst. Fyrirtækið hennar heitir MÓT (leitarorð mothonnun á Facebook og Instagram). „Ég nota mikið mót þegar ég er að gera hlutina mína. Fyrirtækið heitir í rauninni eftir börnunum mínum en ég á þrjú börn: Margréti Birtu, Ólaf og Teit. MÓT eru upphafs- stafir þeirra, meira að segja í réttri aldursröð. Ég er að gera alls kyns hluti; ég er mest að vinna diska, skálar, glös, vasa og aðra nytjahluti. Vinnustaðurinn minn er griða- staður, staðurinn þar sem ég næ að heila mig og orkan mín kemur mikið þaðan. Vinnan mín þar hefur mikil áhrif á kennsluna og kennslan kannski á listaverkin.“ Fyrir utan leirlistaverkin, nytjahlutina, hefur Hanna Margrét meðal annars verið að taka myndir og hefur hún haldið ljósmyndasýningar. „Ég var áhugaljósmyndari um tíma. Ég held að list og sköpun sé ekki eitthvað eitt heldur sé öll sköpun af sama meiði. Það að hlusta á tónlist eða elda mat vekur hugann upp í að hugsa aðeins út fyrir kassann og leyfa sér að prófa nýja hluti. Þá er til dæmis gott að hlusta á tónlist sem maður hefur aldrei hlustað á áður. Fólk er oft hrætt við orðið sköpun, að það sé verið að ætlast til svo mikils af því. En mín skoðun á því að vera skapandi er að vera alltaf með opinn huga, vera tilbúinn að prófa að breyta smá í einu, hlusta á að- eins öðruvísi tónlist, setja eitt nýtt krydd í uppskriftina eða taka út og þar fram eftir götunum. Ég hef alltaf tónlist á þegar ég er að vinna með krökkunum í Víkurskóla. Svo er ég svo heppin að það er píanó í kennnslustofunni af því að það er stundum kennd tónlist þar inni og ég er með nemendur sem eru að læra á píanó og finnst svo gaman þegar þau spila fyrir okkur. Listin er svo göfgandi. Hún þroskar okkur svo mikið. Þeir sem verða góðir listamenn eru þeir sem eru næmir fyrir umhverfi sínu og eru endalaust að skoða umhverfi sitt, horfa á fólk og landslag. Þannig að ég held að slíkt uppeldi sé mikil- vægt til að að verða þroskaður og sterkur einstaklingur.“ Það sem ég vil efla og ná fram með minni kennslu er að láta þau trúa að þau geti öll verið skapandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.