Skólavarðan - 2021, Qupperneq 45
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 45
Starfsþróun / KENNARINN
M enntafléttan er
samstarfs verk-
efni Mennta-
vísindasviðs
Háskóla Íslands,
Háskólans á
Akureyri og Kennarasambands Íslands.
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytið styrkir Menntafléttuna
um þróun og kennslu um
40 námskeiða sem eru
kennurum og starfs-
fólki í menntakerfinu
að kostnaðarlausu.
Viðfangsefni námskeiða
snerta fjölbreytt svið
náms, kennslu, sjálfbærr-
ar þróunar, vellíðunar,
frístundastarfs og forystu.
Menntafléttan er fyrir
kennara, starfsfólk og stjórn-
endur í leik-, grunn- og framhalds-
skólum, listaskólum og frístundastarfi.
Rauður þráður Menntafléttunnar er
að stuðla að þróun námssamfélaga.
Námskeiðin fléttast saman við daglegt
starf, innan þess svigrúms sem þátttak-
endur hafa til starfsþróunar.
Skólavarðan tók Oddnýju
Sturludóttur tali en hún er
verkefnastjóri Menntaflétt-
unnar.
Hvernig fer Menntaflétt-
an af stað og hvernig hafa
viðtökur verið?
Viðtökur hafa farið fram
úr okkar björtustu vonum,
en hátt í 1000 kennarar,
stjórnendur, stuðningsfulltrú-
ar, fagfólk skólabókasafna og
starfsfólk úr frístundastarfi
hafa skráð sig til leiks. Við
erum auðvitað himinlifandi
en að sama skapi meðvituð
um mikilvægi þess að standa
undir þessu trausti sem okkur
er sýnt. Það eiga rúmlega 60%
grunnskóla og rúmlega 40%
leikskóla á landinu fulltrúa í
Menntafléttunni og umgjörð
hennar byggir fyrst og fremst
á því að styðja við samtal um
starfshætti og vinnubrögð
í námssamfélagi jafningja í
öllum þessum skólum.
Hvernig gekk að sameina allar þessar
upplýsingar og alla aðila undir þessum hatti?
Samráð og samstarf milli aðila í mennta-
kerfinu hefur stóraukist hin síðari ár, en ekki
bara samstarf heldur samstaða um að taka
höndum saman um mikilvægar umbætur.
Í stýrihópi Menntafléttu sitja varaformaður
KÍ, Anna María Gunnarsdóttir, og Gunnar
Gíslason frá Háskólanum á Akureyri auk
Kolbrúnar Pálsdóttur, forseta Menntavís-
indasviðs, og Önnu Kristínar Sigurðardóttur
Hlutverk
Menntafléttunnar
X Efla námssamfélög í skóla- og
frístundastarfi um land allt
X Styðja við samstarf á öllum
sviðum menntunar
X Þróa námskeið sem fléttast
saman við daglegt starf
X Vinna með leiðtogum af vettvangi
við þróun og kennslu námskeiða
X Styðja við menntastefnu
2030 og Heims markmið Sam-
einuðu þjóðanna
Það eiga rúmlega
60% grunnskóla og
rúmlega 40% leik-
skóla á landinu full-
trúa í Menntaflétt-
unni og umgjörð
hennar byggir fyrst
og fremst á því að
styðja við samtal um
starfshætti og vinnu-
brögð í námssamfé-
lagi jafningja í öllum
þessum skólum.
prófessors. Verkefnastjórateymið er staðsett í
Reykjavík og á Akureyri og í kynningarfasanum
hélt þessi hópur rúmlega 70 kynningarfundi
um allt land, stóra og smáa. Alls staðar var
okkur tekið opnum örmum og fólk var bæði
forvitið en líka gagnrýnið sem hafði mikið að
segja um það hvernig verkefnið þróaðist.
Í fagteymum Menntafléttunnar sitja
um 80 manns, fólk af vettvangi,
stjórnendur, kennarar og fólk
af skólaskrifstofum auk
háskólafólks. Við höfum
lagt mikla áherslu á að
með Menntafléttunni
séum við ekki bara að
styðja við námssamfélög í
skólum og stofnunum um
land allt, heldur líka innan
verkefnisins sjálfs. Það hefur
haft heilmikið að segja um
hvernig gengið hefur að sameina
þennan stóra hóp fólks undir hatti
Menntafléttu. Ekkert af þessu hefði þó
komið til nema vegna þess að stjórnvöld
styrktu verkefnið myndarlega.
Er heitið Menntaflétta og verk-
efnið sjálft að síast inn hjá kennurum?
Við í verkefnastjórateym-
inu erum kannski ekki dóm-
bær á það á þessari stundu,
framtíðin mun leiða það í
ljós – og við vorum heillengi á
báðum áttum með þetta nafn!
En það hefur komið okkur
skemmtilega á óvart hvað
mörgum er orðið tamt að tala
um Menntafléttunámskeið.
Nafnið er glettilega lýsandi
því að námskeiðin hafa það
skýra markmið að eiga að
geta fléttast saman við dagleg
störf kennara og starfsfólks í
menntakerfinu. Leiðtoganám
af þessum toga er auðvitað
ekki nýtt af nálinni, en í
mörg ár hafa kennarar sótt
leiðtoganámskeið til dæmis
á vegum Byrjendalæsis.
Þetta form starfsþróunar er
því ekki uppfinning okkar í
Menntafléttunni, þó segja
megi að Menntafléttan sé
stærsta starfsþróunarverkefni
stjórnvalda og háskóla síðari
ára.
Hver er þín tilfinning fyrir framhaldinu,
mun eftirspurnin halda áfram að aukast?
Ég vona það enda byggir umgjörð
Menntafléttu á því sem rannsóknir frá síðustu
aldamótum hafa ítrekað leitt fram að sé
árangursríkast og farsælast fyrir starfsþróun
kennara og starfsfólks. Við höldum vonandi
áfram að fá góðar hugmyndir að námskeiðum
í samtali við vettvang og svo vonum við
auðvitað að stjórnvöld haldi áfram að veðja á
Menntafléttuna.
Oddný Sturludóttir,
verkefnastjóri
Menntafléttunnar.