Skólavarðan - 2021, Síða 47
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 47
Útinám / LEIKSKÓLINN
Skógarstígarnir liggja víða.
Drykkjarvatn er sótt í ána á hverjum degi.
Lummurnar voru hreint út sagt ljúf-
fengar.
B örnin dvelja löngum
stundum í skóginum
og þar er sannkölluð
ævintýraveröld,
endalaust hægt að finna
eitthvað skemmtilegt til
að fást við.
Skólavarðan slóst í för með Krumma-
kotskrökkum einn fallegan dag síðasta
sumar. Leikskólastjórinn, Erna Káradóttir,
tók á móti blaðamanni í skólahúsinu en þar
var ekki staldrað við lengi heldur gengið
áleiðis upp í Aldísarlund.
Að jafnaði eru börnin í Krummakoti á
bilinu 60 til 70, á aldrinum eins árs til fimm
ára. „Leikur er okkar nám,“ eru einkunnarorð
Krummakots og þess sér sannarlega merki
þegar fylgst með börnunum í skóginum.
Erna segir útivist mikilvægan þátt í upp-
eldisstarfi leikskólans. „Það er hollt og gott
fyrir krakka að njóta útiveru og þar gerum við
frjálsum leik hátt undir höfði,“ segir Erna.
Helstu áherslur í starfi Krummakots
fyrir utan útinámið eru jákvæður agi,
söguaðferðin, markviss málörvun, tónlist og
tjáning og hreyfing. Miðað er við tvo fulla
útidaga í mánuði fyrir elstu árgangana en
Erna segir dagana í skóginum miklu fleiri.
„Við förum miklu oftar upp eftir og í öllum
veðrum. Það er nefnilega svo veðursælt í
lundinum að þar er ekkert mál að vera þótt
vindar blási.“
Frelsið ríkir í lundinum
Erna segir börnin hafa frjálsar hendur í
skóginum. „Þau mega fara nánast hvert sem
þau vilja og gera það sem þau langar. Við
ræðum hlutina við þau en við viljum geta
treyst þeim. Þetta er ekki stórt svæði en það
er svo margt að finna innan þess. Hér eru
klettar og við heyrum í fossinum. Krakkarnir
vita að þau mega ekki fara án fylgdar að
fossinum en við förum gjarna að ánni til að
sækja drykkjarvatn,“ segir Erna.
Ilmur af lummum mætir okkur
þegar við stígum inn í lundinn. Erna segir
krakkana matast í skóginum í hádeginu en
morgunmatinn borða þau niðri í skóla; oft
er hitaður upp matur á borð við gúllas eða
eitthvað gott sett á grillið.
„Við erum hæstánægð með eldstæðið
en það voru foreldrar barnanna sem gáfu
okkur það. Svo erum við komin með skýli
þannig að það er auðveldara að geyma dót
hérna upp frá.“
Lummurnar bragðast afskaplega vel og
eru að sjálfsögðu bornar fram með sultu og
rjóma. Krakkarnir kunna greinilega vel að
meta þessar veitingar.
Inga Vala Gísladóttir náttúrufræðingur
starfar í leikskólanum. Hún kennir krökk-
unum að þekkja náttúruna, blómin, trén og
skordýrin. „Það ríkir svo mikið frelsi hérna í
skóginum og frábært að sjá hvað krakkarnir
eru fljótir að finna sér eitthvað að dunda við.
Það er oft svo mikið að gera hjá þeim í leik
og öðru að það gefst ekki tími til að sinna
öðrum verkefnum,“ segir Inga Vala.
Hitt og þetta
Teiknaðu þinn eigin tölvuleik!
Draw Your Game er forrit fyrir snjalltæki
sem virkar þannig að notandinn teiknar sinn
eigin tölvuleik. Svartar línur tákna gólf, loft og
veggi. Grænir hlutir eru fjaðrandi. Bláa hluti er
hægt að færa til. Rauðir hlutir eru hættulegir.
Með einföldum hætti geta börn og fullorðnir
teiknað furðu flókna leiki á ótrúlega stuttum
tíma.
Um leikinn sagði Birna Friðgeirsdóttir
(@birfri91) kennari og kennsluráðgjafi: „Vá
hvað @DrawYourgame er mikil snilld! Fór
ekki á vinnustofuna á #utis2021 en kynntist
leiknum hér á twitter! Virkilega einfalt í notkun
og vakti mikla lukku! #menntaspjall“
Eldurinn
Hjalti Halldórsson
kennari og rithöf-
undur hefur gefið
út nokkrar bækur
sem sækja efnivið
í Íslendinga-
sögurnar. Í ár varð
sjálf drottningin
fyrir valinu, Njála.
Bók Hjalta heitir
Eldurinn og fjallar
um unglinga sem
brjótast inn í
skólann sinn. Eins
og áður hefur
Hjalti birt kennsluefni sem hægt er að nota til
stuðnings lestrinum. Hægt er að nálgast það
hér: