Skólavarðan - 2021, Side 49
www.mms.is | www.fraedslugatt.is
LÍFSLEIKNI | YNGSTA STIG
LÁTTU MIG VERA! ÁHYGGJUPÚKAR
Bókin fjallar um Storm og kvíðann sem hann glímir við. Kvíði er
eðlileg tilfinning sem allir finna fyrir en gott er að kunna að takast
á við hann. Kennari getur leitt samverustund þar sem rætt er um
hvernig bregðast má við og vinna með áhyggjur og kvíða eða nem-
endur farið með bókina heim til að lesa með foreldrum. Aftast í
bókinni eru kennsluleiðbeiningar og verkefni.
NÁTTÚRUFRÆÐI | MIÐSTIG
NÁTTÚRULEGA 1
Nýtt kjarnaefni fyrir miðstig í náttúrugreinum.
Rafbókaútgáfan býr yfir nokkrum eiginleikum
sem prentaða útgáfan hefur ekki, s.s. stuttum
fræðsluþáttum, myndum í þrívídd og gagnvirkum
æfingum í lok hvers kafla.5903
Halló!
Hér má finna verkefnabókina Náttúrulega 1.
Í þessari verkefnabók á að teikna, lita, skrifa og fram-
kvæma tilraunir. Verkefnin í verkefnabókinni eru fjöl-
breytt. Sum vinna nemendur einir, sum í hópum, sum á
blaði, sum með aðstoð internetsins og önnur allt öðru-
vísi.
Þegar við vinnum verkefni, svörum spurningum og
gerum tilraunir verðum við sífellt fróðari í náttúru-
greinum. Það er mikilvægt að læra um náttúruna af því
að hún er allt í kringum okkur og við þurfum að læra að
lifa með henni.
Þessi verkefnabók er bæði til prentuð og rafræn.
Góða skemmtun!
Höfundar eru Halldóra Lind Guðlaugsdóttir,
Ragnheiður Alma Snæbjörnsdóttir
og Telma Ýr Birgisdóttir
Myndhöfundur er Krumla
NÁTTÚRULEGA
VERKEFNABÓK
1
DANS | ÖLL SKÓLASTIG
SKAPANDI DANS
Dans eflir sköpun og líkamlega tjáningu nemanda ásamt því að
hvetja hann til að hugsa um eigið heilbrigði. Handbókin hefur að
geyma ólíkar æfingar sem eiga að stuðla að því að nemendur
skapi út frá sér sjálfum. Hægt er að aðlaga sumar æfingarnar að
öðrum námsgreinum.
SAMFÉLAGSGREINAR, ÍSLENSKA O.FL. | MIÐ- OG UNGLINGASTIG
MYNDAMÁTTUR
Unnið er með fjölbreytt og skapandi ljósmyndaverkefni þar sem
áhersla er lögð á að efla gagnrýna hugsun með mynd- og rýmislæsi
nemenda. Hægt er að vinna verkefnin í ólíkum fögum, þvert á náms-
greinar og aldursstig og út frá mismunandi áhersluatriðum. Rauði
þráðurinn er að styrkja rödd ungs fólks og skapa þeim vettvang til að
miðla ólíkri reynslu og upplifunum.
ÍSLENSKA | YNGSTA STIG
DIMMI-MÓI | RISAEÐLA Á RÓLÓ | HUMLUR
Risaeðla á róló og Dimmi-mói hafa nú bæst í Smábókaflokkinn og
eru einkum ætlaðar börnum sem eru að læra að lesa.
Humlur er ný lestrarbók í flokknum Milli himins og jarðar. Í bókinni
eru fróðleikstextar og mikið lagt upp úr ljósmyndum og teikningum
sem styðja við textann og vekja áhuga og forvitni.
NÝTT NÁMSEFNI
DANSKA | ÖLL SKÓLASTIG
TEMPO | FJÖLBREYTTIR KENNSLUHÆTTIR Í DÖNSKU
Fjölbreytt verkefni eru á vefnum Tempo og töluverð áhersla er á
notkun snjalltækja við lausn þeirra.
Í handbókinni Fjölbreyttir kennsluhættir í dönsku eru margar hug-
myndir sem nýta má til að efla dönskukunnáttu. Meðal annars
hvernig vinna má með kvikmyndir, þáttaraðir, myndefni og tónlist.
Auk ýmissa verkefna sem tengjast t.d. orðaforða og framburði.