Skólavarðan - 2021, Side 52

Skólavarðan - 2021, Side 52
52 SKÓLAVARÐAN HAUST 2021 KENNARINN / Mælistikan Skólavarðan mælir með Kvár, kynlíf og kventónskáld Afþreying og stundargaman er mikilvægt að loknum löngum vinnudegi. Hér eru fáeinar hugmyndir um dund og almenna dægrastyttingu. Kventónskáld í karlaveldi Útvarpsþáttaröð + systurþættir á RÚV Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur hefur gert tíu afar áhugaverða þætti um kventónskáld sem fæddar voru á 19. öld. Þessar konur nutu ekki sömu tækifæra og karlar til að mennta sig í tónsmíðum. Meðal tónskálda sem fjallað er um eru Clara Schumann, Fanny Mendelssohn og Emilie Mayer. Þá er vert að benda á systurþættina Þögnin rofin þar sem leikin er tónlist tónskáldanna. Þetta er gott útvarp! Sex Education Gamandrama á Netflix Bresk þáttaröð sem hefur slegið í gegn um víða veröld - og ekkert rangt við það því Sex Education eru afar vel skrifaðir og vel leiknir þættir. Í þáttunum er tekist á við viðkvæm umræðuefni, svo sem fóstureyðingar, kynvitund og drusluskömm. Framsetningin er skemmtileg, áhugaverð og fræðandi. Þá spillir stórleikur Gillian Anderson ekki fyrir – hún hefur sjaldan eða aldrei verið betri. Seinfeld 180 þættir á Netflix Seinfeld er nú aðgengilegur á Netflix og verður ekki annað sagt en þáttaröðin, sem var fyrst í loftinu 1989-1998, eldist með eindæmum vel. Það er auðvelt að detta hvar sem er inn í þáttaröðina enda Seinfeld einstakur fyrir þær sakir að persónurnar, Jerry, Elaine, George og Kramer, þroskast ekkert, læra ekki af mistökum sínum og verða ekki betri manneskjur. „No hugging, no learning,“ er enda viðkvæðið í Seinfeld. Kvár Heimildamynda- saga eftir Elísabetu Rún Afar áhugaverð myndasaga eftir teiknarann og myndasöguhöfundinn Elísabetu Rún. Kvár fjallar um kynseg- inleika og byggir á viðtölum við sex kvár sem segja frá reynslu sinni; það eru Regn Sólmundur, Embla, Alda Villiljós, Viima, Hrafnsunna og Mars. Kvár er nýyrði sem táknar manneskju án tillits til kyns. Bókin er merkileg fyrir þær sakir að hún er fyrsta íslenska bókin sem fjallar um þetta efni og auk þess fyrsta íslenska heimildamynda- sagan. Delluferðin Sigrún Pálsdóttir – Forlagið Delluferðin er fjórða bók höfundar og fjallar um unga konu í kringum aldamótin 1900. Æðsti embætt- ismaður konungs á Íslandi boðaði til sam- drykkju með nokkrum félögum sínum seint um vetur árið 1897. Efni fundarins var landflótta stúlka, Sig- urlína Brandsdóttir, og íslenskur forngripur sem þá hafði nýlega komist í eigu Metropolitan-safnsins í New York. Það tekur við spennandi atburðarás og ekki skemmir fyrir fallegur stíll og texti höfundar. Þess má geta að höfundur hlaut Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins 2021 fyrir Delluferðina. Malid.is Verkfæri fyrir alla sem nota íslenskt mál Á málið.is er ókeypis og auðveldur aðgangur að ýmsum þeim gagnasöfnum um íslenskt mál sem Árnastofnun hefur yfir að ráða, um beygingar, stafsetningu, merkingu, notkun, orðasambönd og uppruna orða svo eitthvað sé nefnt. Vefgáttin hefur notið gríðarlegra vinsælda og notkun hennar fer enn hratt vaxandi. Í tilefni fimm ára afmælis Máls- ins verður vefgáttin uppfærð og gerð enn aðgengilegri, auk þess sem nýtt efni bætist við, m.a. Blöndalsorðabók, Nýyrðavefurinn og nokkrar íslensk-norrænar orðabækur. Einnig verður hægt að nálgast hugmyndir að nýtingu vefgáttarinnar í verkefnum í íslenskukennslu. Algjörlega ómissandi vefur fyrir alla kennara landsins!

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.