Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Side 7
Njótum góðra stunda... Grindavík... fjölskyldubær!
www.grindavik.is
Sjóarinn síkáti
Strandmenningarhátíð
Sjómanna- og fjölskylduhátíð
í Grindavík dagana 5. – 7. júní 2009
grindavik.is
saltfisksetur.is
Tjaldsvæðið er mjög vel staðsett, skammt frá sund-
lauginni og hjarta bæjarins og stutt í alla þjónustu. Í Grindavík
og nágrenni er margt afar forvitnilegt og skemmtilegt að sjá.
Jarðfræðin er einstök, hér í kring eru margar skemmtilegar
gönguleiðir, hér eru náttúruminjar og jarðfræðiminjar á heims-
vísu. Í bænum er Saltfi sksetur Íslands sem hefur vakið mikla
athygli. Hér starfa ferðaþjónustuaðilar vel saman og hafa stofnað
með sér regnhlífasamtökin Grindavik Experience. Þar eru mörg
áhugaverð ferðaþjónustufyrirtæki sem bjóða m.a. upp á eldfjalla-
ferðir, fjórhjólaferðir, skoðunarferðir, útreiðatúra, hjólreiðatúra og
gönguferðir með leiðsögn, svo eitthvað sé nefnt. Hér eru góðir
matsölustaðir og góð útisundlaug með úrvals aðstöðu fyrir börn.
Vertu velkomin(n) til Grindavíkur.
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri
Strandmenningarhátíðin
Sjóarinn síkáti
Sjómanna- og fjölskylduhátíð í Grindavík 5. - 7. júní 2009
Bæjarhátíð Grindavíkur verður haldin með glæsibrag um sjómanna-
dagshelgina. Sundlaugarpartý, bryggjuball, ýmsar sýningar
og uppákomur, tónleikar, skemmtisigling, kappróður,
stórdansleikir og leiktæki. Margir af helstu skemmtikröftum og
hljómsveitum landsins skemmta eins og Ingó og Veðurguðirnir,
Stjórnin, Skítamórall, Raggi Bjarna, Andrea Gylfa og fl eiri.
Við viljum fá þig í heimsókn til Grindavíkur!
Nýtt og glæsileg tjaldsvæði
í Grindavík opnar í lok maí
13.500 fermetra tjaldsvæði, með öllum nútíma þægindum fyrir kröfuharða
Íslendinga sem finnst gaman að ferðast um landið sitt yfir sumartímann.
Grindavík er 2850 manna bær sem byggir afkomu sína á traustum sjávarútvegsfyrirtækjum. Grindavík er vinalegur og fjölskylduvænn bær
með traustum stoðum og hefur að leiðarljósi að styðja við bakið á fjölskyldunni. Í Grindavík eru ókeypis æfi ngagjöld í íþróttum, ókeypis
tónlistarskóli, ódýrar skólamátíðir, fjögurra tíma ókeypis vistun fyrir elstu börnin á leikskólunum, öfl ugt tómstunda- og íþróttastarf og
leikskólar og grunnskólar í fremstu röð mannaðir vel menntuðu og öfl ugu starfsfólki.
“
„
S
ta
p
a
p
re
n
t