Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 36
Í fyrri hluta greinarinnar segir frá
„drulluprammanum“ Narfa, hvernig
Guðmundur dróst inn í baktjaldamakk
um skipakaup og hvernig við lá að hann
missti lífið í brautarslysi. Verður nú
þráðurinn tekinn upp að nýju; togarinn
Jörundur er kominn að bryggju á Akur-
eyri og vekur mikla athygli um allt
land.
Fékk ekki að kaupa radar
en Ægir fékk asdik
Það fór ekki framhjá neinum að
Jörundur var ekki eins og önnur skip.
Sigurjón Einarsson skipstjóri skrifaði að
hann væri því miður minnstur nýsköp-
unartogaranna en „ ... hefir þó uppá að
bjóða, flestar þær nýjungar sem að máli
skipta, fyrir okkur.“1 Til dæmis stóra
vökvadrifna togvindu sem ekki væri að
finna í öðrum íslenskum togara en Guð-
mundur hafði einmitt verið á leiðinni að
skoða þessa togvindu þegar hann lenti í
1 Sigurjón Einarsson: „Nýju togararnir“, Sjó-man-
nadagsblaðið 12. júní 1949, bls. 39.
þokunni og fékk aðvöruni-
na að handan. Ál var no-
tað í yfirbyggingu, reykháf
og lestar svo skipið yrði
sem léttast, kolamokstur
heyrði sögunni til en
Jörundur var þriðji diesel-
togari flot-ans, og lýsis-
bræðsluverk-smiðjan um
borð var af nýrri gerð sem
átti að skila mun betri
nýtingu en áður þekktist.
Ein var þó sú nýlunda sem
„kerfið“ hafði ekki
samþykkt að láta Guð-
mund fá. Íslensk gjaldeyri-
syfirvöld höfðu neitað ho-
num um ensk pund til kaupa á radar og
þannig sett fótinn – í bili – fyrir heil-
lavænlega þróun sem hófst tveimur árum
fyrr, með Ingólfi Arnar-syni, en hann var
fyrsta fiskiskip verald-ar búið slíku un-
dratæki.
Þannig bar Jörundur glögg merki
eiganda síns sem var flestum fundvísari á
gagnlegar nýjungar. Síldveiðarnar fyrir
norðan og austan land gengu afleitlega
allan 6. áratuginn. Guðmundur brást við
með því að senda Jörund á haustvertíðir
í Norðursjóinn. Kannski hefur ýtt undir
þessa ákvörðun að í byrjun síldarvertíðar
sumarið 1954 kom draumamaðurinn í
káetu til Guðmundar sem hafði lagt sig á
stíminu út Eyjafjörð.
Jón Hjaltason
Útgerðarmaðurinn á Eyrinni
Glefsur úr Akureyrarævi Guðmundar Jörundssonar - seinni hluti -
Jörundur EA 335.
Við bryggju í Krossanesi. - Minjasafnið á Akureyri.
36 – Sjómannablaðið Víkingur