Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 10
það svoleiðis. Hann spurði bara hvernig ég hefði það. Við töluðum eiginlega aldrei neitt saman. Ég rakst bara á hann tvisvar eða þrisvar ... nei, aldrei um okk- ar vesen saman. Hann spurði, hvernig ég hefði það og hvar ég væri að vinna og svoleiðis. Aldrei sá ég, að hann ræddi um þetta við blaðamenn eða opinberlega. Sigurður var fínasti karl, ábyggilega mjög almennilegur maður. Engin klíka hjá Eimskip - Hvað tók við? Þegar ég kom af Goðafossi, fór ég að vinna í pakkhúsunum hjá Eimskip og vann þar út veturinn 19-195, þangað til stríðið var búið. En strax eftir það fór ég tvo eða þrjá túra á Brúarfossi, og það voru fyrstu ferðir hans til Englands eftir stríð. Brúarfoss var happaskip. Hann hafði eiginlega haft hættulegustu sigl- inguna á stríðsárunum, rútuna á Eng- land, austurströndina, aðallega til Hull og Grimsby. Brúarfoss var eina frystiskip- ið þá, sem við áttum. Jón Eiríksson var nú með hann, og Kristján Aðalsteinsson fyrsti stýrimaður. Ég var kyndari, og við fórum til London. Brúarfoss var þannig útbúinn, að hann var afsegul-magnaður og dró ekki til sín segulmögnuð dufl, en þau lágu þarna á botninum meðfram austurströnd Englands lengi eftir stríð. Keyra varð báðar ljósavélarnar vegna þessarar af- segulmögnunar. Við komum við í Leith, og þá stendur það þannig, að einn þýzk- ur kafbátur vill ekki gefast upp. Þetta er hitamál þarna, og við fáum fylgd og er- um í skipalest til London. Í bakaleiðinni er komið við í Leith, og þá hafði kafbát- urinn gefizt upp og er til sýnis í Leith, og það var röðin af fólki allan daginn að bíða eftir því að fá að fara rúntinn og ganga í gegnum hann, og við fórum líka að skoða þetta, jólasveinarnir. Snorri goði var seldur Oddi Helgasyni og hét þá Viðey, en skipshöfnin var sú sama, og ég fór og talaði við Eyjólf Ein- arsson, vélstjóra, vin minn. Ég komst á Viðeyna, og er á henni til 197, en þá kaupir Oddur nýsköpunartogara, Akur- eyna, og við sækjum hana árið 197 til Hull. Ég er á henni til 1951, alltaf sama skipshöfnin, en þá er hún seld upp á Akranes, og við förum með, en fórum svo að týnast af henni smátt og smátt, ætli ég hafi ekki verið 7–8 mánuði á henni þarna uppi á Akranesi. Það var svo ömurlegt að vera uppi á Akranesi, og ég hætti á henni haustið 1951 og fer að vinna aftur á Eyrinni. Þar var engin klíka um stöðuhækk- anir hjá Eimskip. Stýrimenn og vélstjórar unnu sig upp eftir starfsaldri. Maður heyrði ekki um klíkuskap þar, þeir máttu eiga það hjá Eimskip. Þeir voru mjög heiðarlegir þannig. En ég hafði ekkert af skrifstofunni að segja. Það eina var, að þegar ég vildi nú koma aftur til Eimskips og var búinn að vera svona lengi á tog- urunum, á Akureynni og Viðeynni – þetta voru menn, sem alltaf vildu hafa mann, hvernig sem á stóð – þá segir Viggó Maack, að það séu 19 á undan mér. Ég svara, að ég hafi skilaboð frá framkvæmdastjóranum hjá Eimskip; að eftir slysið á Goðafossi sitji ég fyrir vinnu, hvort sem það sé á Eyrinni eða á sjó. Það gilti um alla, er björguðust á Goðafossi, það kom frá Guðmundi Vil- hjálmssyni, framkvæmdastjóra. Þeir höfðu á sínum tíma borgað allt, sem við töpuðum og voru mjög almennilegir. Svo var ég hjá Eimskip á Eyrinni eins og hver annar verkamaður, þetta æxlað- ist svona. Ég sagði Viggó, að ég ætti fyrsta pláss, sem losnaði, og hann held- ur áfram, já, er eitthvað að ybba sig, æsa sig upp, en ég vissi ekki vel, hvað hann meinti og sagði honum, að framkvæmda- stjórinn hefði sagt fyrir mörgum árum, að ég ætti fyrsta pláss, sem losnaði á hverjum stað, sem ég væri hæfur til þess að vinna, en bætti svo við: „En blessað- ur, mér er alveg sama, þú ræður, hvernig þú hefur þetta,“ – ég ætlaði ekki að fara í hart með það. Guðmundur Vilhjálmsson var löngu hættur. En þá kemur Hafliði Hafliðason, vélstjóri, ofan á bryggju, og segir við mig: „Þú ert efstur á lista næst; nú er september, og þeir eru að fara í skóla einhverjir, og þá ert þú næsti maður.“ Þar með komst ég inn. Þá fór ég á Goðafoss nýja (III) og var á honum til 1955, að ég hætti á sjónum og fór í Vélsmiðjuna Héðin. Goðafoss III var díselskip, .000 tonn með frystilest- ar, allt önnur tegund af skipi. Við sigld- um ýmist til Rússlands eða Ameríku með frosinn fisk, allt í frystilestum, nema fremsta lestin var undir venjulegar vörur. Nú var komin ný tegund af mönnum, rafvirkjar og aðstoðar-vélstjórar. Ég var kallaður dagmaður í vél. Þá unnum við frá klukkan 7 til klukkan 5 á daginn við að gera hreint og smyrja aftur í öxlun- um, skrúfásinn, halda öllu við og hreinu, og svo þurfti að taka ljósavélarnar í gegn. Stundum var ég kallaður aðstoðarvél- stjóri (það sem hjá Sambandinu var kall- að smyrjari), og þá át ég í svokölluðum yfirmannamessa. Allir fengu sama fæðið, en matsalirnir voru sér. Þó átu skipstjór- inn og fyrsti meistari á fyrsta plássi með farþegunum, ef þeir voru með okkur, og þeir fengu kannski einhverja deserta, sem við fengum ekki. En Hafliði Hafliða- son, sem var fyrsti vélstjóri á Goðafossi III, hann kom oft frá því að hafa verið að éta fínar steikur inni á fyrsta plássi, þá kom hann í ýsu til okkar. Hafliði Haf- liðason hafði verið annar vélstjóri á gamla Goðafossi, og hann var nýlega bú- inn að vinna sig upp á Dettifoss, þegar Dettifoss var skotinn niður í febrúar 195. Hann var sóma karl, og eins var hinn, Hafliði Jónsson, öðlingur. Nú var ég kominn í land og vann á vélaverkstæði hjá Eimskip í tvö ár. Eftir það fór ég í Héðin og var þar, þangað til 10 – Sjómannablaðið Víkingur Anna Borg. Á þessu skipi sigldi Olsen í heilt ár en kom þá í land og fór ekki aftur á sjóinn Hjónin Þorbjörg Sturlaugsdóttir og Stefán Olsen.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.