Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 37
„Þau eru eftir 8 ár ennþá“, tilkynnti draumamaðurinn. Guðmundur rumskaði, fór fram í stýrisklefann og sagði við karlana, heldur framlágur: „Réttast væri að snúa við og fara ekkert á síldveiðar í sumar.“ Hann hafði ráðið drauminn svo að enn væru eftir átta aflaleysisár. Um haustið varð Jörundur fyrsta íslenska skipið til að stunda síldveiðar í Norðursjónum.2 Guðmundur lét líka henda út mjölverksmiðjunni, sem komið hafði með skipinu, en setti í staðinn hrað- frystitæki, bæði til að frysta síldina en einnig til að gera meiri verðmæti úr öðr- um afla. Ýsan var eftirsóttust og strax 1952 var Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna tekin að selja í 5 punda pakkningum, beinlaus og roðlaus flök, sem unnin voru um borð í Jörundi fyrir bandarískan markað.3 Þetta sama ár, um vorið, hafði Guðmundur flutt erindi hjá Sjálfstæðis- félagi Akureyrar og sagt frá reynslu sinni af Norðmönnum sem hann hafði heim- sótt árið á undan. Þar hafði hann séð mikið galdratæki, asdik, sem minnti einna helst á neðansjávarradar. Svona tæki verðum við að eignast og setja í skip sem leitar síldarinnar fyrir flotann, staðhæfði hann við fundargesti. Helst 2 Guðmundur Jörundsson: Sýnir og sálfarir, bls 9-99; „Jörundur að síldveiðum ... “, Íslendingur 25. ágúst 1954. 3 Hjalti Einarsson: „Fyrsti frystitogarinna 1951?“, Frost febrúar 1994, bls. þyrfti íslenska þjóðin auðvitað að eignast hafrannsóknaskip. Þegar búið var að klappa fyrir orðum Guðmundar sam- þykktu fundargestir einróma að senda ríkisstjórn Íslands þessi skilaboð.4 Hvort sem það var fyrir þessa áskorun Guðmundar og félaga hans í Sjálfstæðis- flokknum á Akureyri eða eitthvað annað þá gerðist það árið eftir að asdik-tæki var sett í varðskipið Ægi sem fékk um leið nýtt hlutverk, að minnsta kosti hluta úr ári. Í stað þess að vakta fiskveiðilögsög- una átti Ægir nú að finna síld fyrir síld- veiðiflotann. Guðmundi var létt og það kom fljótlega á daginn sem hann hafði 4 „Síldveiðitæki og veiðihorfur“, Íslendingur 9. apríl 1952. haldið fram að síldarleitin með nýja undratækinu færði þjóðarbúinu veru- legar tekjur.5 Þegar svo kom að því að Guðmundur vildi fá sér nýtt skip sýndi hann sömu framsýnina og einkennt hafði allan hans útgerðarferil. Hann ætlaði að fá sér alveg nýja skipategund sem var tekin að ryðja sér til rúms á miðunum. Guðmundur sótti um nauðsynleg leyfi en „kerfið“ svaraði: „Íslendingar hafa ekki efni á experimentum.“6 Ekki efni á tilraunum – kannski var 5 Steinar J. Lúðvíksson: Silfur hafsins. Gull Íslands, bls. 11; „Rannsókarstarf Ægis ... “, Ís- lendingur 31. ágúst 1955. 6 Ólafur K. Björnsson: „Guðmundur Jörundsson útgerðarmaður“, Morgunblaðið 23. maí 1990. Jón Hjaltason Útgerðarmaðurinn á Eyrinni Glefsur úr Akureyrarævi Guðmundar Jörundssonar - seinni hluti - Jörundur á siglingu. Sjómannablaðið Víkingur – 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.