Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 19
Í seinasta Víkingi birtist mynd af Sval- baki EA . Ritstjóranum til láns fékk hann ábendingu um að myndin kynni að vera af allt öðru skipi. Honum gafst því tækifæri til að slá varnagla í myndatexta (sjá bls. 18 í 1. tbl.). Og það stóð ekki á viðbrögðum. Hinn glöggi skipaáhugamaður í Vest- mannaeyjum, Friðrik Ásmundsson, sagði það af og frá að þetta væri Svalbakur. Skipstjórinn Víðir Benediktsson, sem hóf sjómennskuferil sinn á Svalbaki, tók í sama streng: „Þetta er klárlega ekki það skip,“ skrifaði hann. Jónas Haraldsson hæstaréttarlögmaður var því sammála og benti meðal annars á að skorsteinsmerki ÚA vantar á umrætt skip. * * * Þá skrifaði Sævar Ingi Jónsson: „Varðandi myndina á blaðsíðu 18 full- yrði ég að þetta er ekki Svalbakur. Á þessu skipi er hvalbakurinn öðruvísi og með sama lagi og á Elliða. Þá var Sval- bakur aldrei með áttavitasúlu framan á stýrishúsinu, né krana fyrir björgunar- báta. Þá er skorsteinninn öðruvísi efst, auk þess sem vantar útgerðarfélags- merkið á hann. Auk þess var gangurinn í stýrishúsið með klæddri grind en ekki með opinni eins og þessi er. Þá held ég að það sé einnig rétt hjá mér að stytt- urnar á keysnum hafi verið fjórar á Sval- bak en ekki fimm eins og á þessum. Ég var um tíma pokamaður á Svalbak og þurfi þá að fara með gilsin út fyrir þær. Læt að gamni fylgja með drápu sem ort var þegar Svalbakur kom nýr til Akureyrar. Vona að ég fari rétt með: Svalbakur sævakur, siglir þótt hrönn ygli sig og sætröll digur, súðir blakir prúður svarrar um kjöl knarrar, kólska illsku bólgin ei dregur ferð af fleygi, fyrrn öll þó við spyrni. * * * Þorvaldur Davíðsson skrifaði: „Hvaða skip sem þetta nú er þá er það ekki Svalbakur. Talið framanfrá og aftur- eftir: Skipið er með bakka en ekki rúnn- aðan hvalbak, frammastrið er tvískipt en ekki einfalt mastur með vírvöntum og kaðalstigum, afturmastrið er uppi á brú en ekki fremst á bátadekki, á báta- dekkinu er einn björgunarbátur í krana í stað tveggja í davíðum.“ * * * Friðjón Hallgrímsson sá sömuleiðis öll tormerki á því að hér væri um mynd af Svalbaki að ræða: „Í fyrsta lagi var Svalbakur með hval- bak, en ekki bakka. Þá er afturmastrið horfið af sínum upprunalega stað og komið við brúna, sem gæti þó verið seinni tíma breyting. En það sem vekur mesta athygli er útfærslan á bræðslu- húsinu. Þessi gerð er hvergi sjáanleg á nýsköpunartogurunum. Ég á myndir af þeim öllum, misgóðar reyndar, en þetta hef ég hvergi séð. Það er fláinn aftast. Hann er öfugur á þessu skipi, miðað við þá sem voru yfirbyggðir aftast, að hluta. Þetta er nú trúlega það sem kallast einskis nýtur ómissandi fróðleikur. Ég tel að þetta sé breskur landhelgisbrjótur.“ * * * Árni Björn Árnason efndi til „réttar- halds.“ Fyrir réttinn kom vitnið Magnús Lórenzson vélfræðingur sem gerðist vél- stjóri á Kaldbaki árið 1957. Niðurstaðan varð að þetta væri ekki mynd af Svalbaki né neinum öðrum ÚA-togara en aftur á móti nokkuð örugglega af enskum toga: „ Rökin fyrir þessari fullyrðingu eru eftirfarandi: Í það fyrsta þá er bakki á þessum tog- ara en allir Akureyrartogararnir voru með hvalbak. Afturmastur var aftan við reykháf á öllum Akureyrartogurunum en á þessu skipi er það fyrir framan reykháfinn. Einn lífbátur er á þessu skipi og bóma til að koma honum fyrir borð en á tog- urum frá Akureyri voru lífbátarnir tveir og í davíðum. Reykrör frá olíukabyssu má sjá fram- an við bómuna sem hífir lífbátinn fyrir borð en togarar Akureyringa voru allir með rafmagnseldavélar. Að síðustu þá var enginn bátapallur á Kaldbaki eins og á þeim togara sem myndin er af.“ * * * Niðurstaðan verður því sú að hér ræðir um breskan togara, mögulega land- helgisbrjót, sem ekki ber að rugla saman við hið ágæta skip Svalbak EA . Hafi allir þökk fyrir er lögðu hér orð í belg. Svalbakur eður ei! Breskur togari á Pollinum, er niðurstaðan. - Minjasafnið á Akureyri Svalbakur, hinn eini og sanni. Sjómannablaðið Víkingur – 19

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.