Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 42
42 – Sjómannablaðið Víkingur
eftir Hilmar Snorrason
Ég ætla að þessu sinni að hefja för okkar
á norskri síðu sem þarlendur stýrimaður,
Jan Olav Stroli heldur úti. Slóðina finn-
um við á www.captainsvoyage.com og er
þetta síða sem tekur langan tíma að fara
í gegnum. Hann hefur verið að sigla á
skemmti- og farþegaskipum og er megin-
þorri síðunar um slík skip. Það sem þó
er mest áhugavert á síðunni er umfjöllun
hans um skemmtiferðaskipið Norway
sem hann starfaði á um lengri tíma.
Næst förum við á síðu sem fjallar um
nýja tækni og ný skip svo eitthvað sé
nefnt. Slóðin www.ship-technology.com
leiðir okkur í allan sannleika um nýjar
skipagerðir og eru þar upplýsingar og
myndir af nýjum og byltingarkenndum
skipum og tækninýjungum. Síðan er
ákaflega áhugaverð fyrir þá sem hafa
gaman af að vita hvað og hverju þeir
megi búast við að mæta á heimshöfunum
í framtíðinni.
Það er ekki á hverju ári sem íslensk
skip hafa verið í siglingum um Bos-
phorussund en sannarlega hefur íslenski
fáninn sést við hún skipa sem þar sigla
um. Mikil skipaumferð er um sundið og
kennir þar margra grasa á slóðinni www.
bosphorusstrait.com þar sem er síða um
sundið ásamt fréttum þaðan. Að sjálf-
sögðu er hægt að sjá AIS upplýsingar um
skipaumferð í og við Bosphorussundið á
síðunni.
Þegar ég rakst á næstu síðu, reyndar
fyrir algjöra tilviljun, þá ákvað ég að
segja frá henni í þessu blaði þótt hún sé
lítið til þess fallin að flakka mikið um
hana. Hér er síða http://archwayvideo.co.
uk/films.htm sem er sölusíða fyrir kvik-
myndafyrirtæki sem hefur hér sett saman
nokkrar myndir um líf og störf um borð
í tveimur mismunandi skipum. Mynd-
irnar eru til sölu og er ég þess viss að
þau ungmenni sem eru að huga að fram-
tíðaráformum hefðu gaman af því að
skoða þessar myndir til að átta sig á lífi
því sem er í boði fyrir farmenn í dag.
Næsta síða er frönsk og þótt þú skiljir
ekki frönsku þá gerir það ekkert til en
þessi síða fjallar um frönsk spítalaskip.
Slóðin http://navires-hopitaux.blogspot.com
leiðir okkur í sannleikann um þann
fjölda skipa sem hafa gegnt slíkum hlut-
verkum og bjargað lífum og limum fólks
um allan heim. Við sum skipanna má
finna samantekt á ensku en einnig eru
póstkort að finna þar með mörgum skip-
anna sem og umslög merkt þeim.
Ég ætla að halda áfram á frönskum
slóðum en næsta síða heitir Skipin frá St.
Malo og er að finna á slóðinni www.
bateaux-desaint-malo.com. Þessi síða er
einnig til á ensku og er mjög skemmtileg
að skoða. Þar eru myndir af togurum og
fiskiskipum sem áhugavert er að skoða.
Frá St. Malo kom franska rannsóknar-
skipið Pourquoi Pas? og er að finna
myndir af því skipi sem og fyrra skipi
Charcot.
Ég er þess næsta viss að mörgum
sjómanninum þætti það vera lítil sjó-
mennska að sigla um ár og fljót í Evrópu
þar sem alltaf er lítil von um velting og
brælur. Þessa sjómennsku getum við
kynnt okkur á slóðinni www.binnenvaart.
web-log.nl en hér getur að líta hin ýmsu
skip sem sinna þessum siglingum. Að
vísu er síðan á hollensku en það ætti nú
að vera vandræðalaust að ferðast um
slíka síðu ef þið hafið komist í gegnum
þá frönsku sem ég nefndi hér að framan.
Nú skulum við fara að huga að sum-
arleyfinu og þá er helst að velta því fyrir
sér hvort kreppan kemur í veg fyrir að
við getum fjárfest í skemmtibátum. Á
slóðinni www.yachtsmonthly.com getum
við leitað að bátum allt eftir efnum
okkar eða þá hvaða stærð hentar okkur.
Ég reyndar sló inn einhverjum tug-
þúsundum í skútu en ég var sannarlega
ekki búinn undir það að því sem næst
hlátur heyrðist frá síðunni. Eftir að hafa
slegið hundruð þúsunda dollara fór að
sjást einhver árangur af leit minni.
Stöðugt fleiri sjómenn hafa verið í
útrás og fundið sér störf erlendis enda
mikill skortur á yfirmönnum um allan
heim. Næsta síða gæti því reynst ein-
hverjum Íslendingnum nauðsynleg en á
slóðinni www.seafarerhelp.org er hjálpar-
lína fyrir sjómenn sem opin er allan
sólarhringinn. Þar eru upplýsingar um
það hvernig hægt sé að ná sambandi við
þessa þjónustu og í hverju hún felst.
Ekki er nauðsynlegt að kunna ensku til
að geta nýtt sér þjónustuna sem staðsett
er í Bretlandi þar sem fjöldi túlka eru á
þeirra snærum til að tala við erlenda sjó-
menn.
Lokasíðan að þessu sinni er dönsk og
gæti verið mikilvæg fyrir þá sem hyggja
á víking. Til að geta fengið starf á
dönsku skipi þurfa menn í dag að taka
próf í dönskum reglum en á slóðinni
www.marnav.dk sem leiðir okkur til stýri-
mannaskólans í Marstal en þar er hægt
að taka á netinu námskeið í dönskum
reglum. Þá er einnig hægt að taka nám-
skeið í svokölluðum „Vetting“ skoðun-
um tankskipa.