Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Page 13
Eins og undanfarin ár hefur Sjómannablaðið Víkingur staðið
fyrir ljósmyndakeppni meðal sjómanna og 1 myndir, auk
þriggja vinningsmynda, hafa síðan tekið þátt í Norrænni ljós-
myndakeppni sjómanna í kjölfarið.
Að þessu sinni verður Norðurlandakeppnin haldin hér á
landi í febrúar 010. Vill ritstjórn blaðsins minna sjómenn á að
taka fram myndavélarnar og vera ósparir á að finna myndefni
og senda í keppnina. Til að geta verið með í keppninni þurfa
ljósmyndarar að hafa verið til sjós en myndirnar þurfa þó ekki
að vera þaðan né tengdar sjó. Allar myndir eru gjaldgengar í
keppnina.
Ljósmyndir geta verið bæði á stafrænu formi sem og pappírs
eða skyggnur. Stafrænar myndir sendist á, iceship@heimsnet.is,
en aðrar myndir sendist á:
Sjómannablaðið Víkingur
Ljósmyndakeppni 2009
Grensásvegi 13
108 Reykjavík.
Augnablikið fangað, nefnir Jón Kr. Friðgeirsson þessa mynd sem var ein margra góðra sem bárust í Ljósmyndakeppni sjómanna í fyrra.
Ljósmyndakeppni sjómanna 2009
SART EPIRBGMDSSTalstöðvar
með FM útvarpi
Hand talstöð
við hjálm
FRIÐRIK A. JÓNSSON EHF
Akralind 2 - 201 Kópavogi - Sími: 552-2111 - Netfang: faj@faj.is - www.faj.is
FAJ
NAVTEX
Íslenskur texti
Ný Íslensk tíðni
Enginn pappír
SAILOR
Sea-Tel