Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Page 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Page 17
Sjómannablaðið Víkingur – 17 sinni, nema Raggi Kross sem stefndi að venju austur á Hraun. Farkostur okkar Gvendar var „Sigurvon“, tæp sex tonn að stærð, en þeir bræður Björn og Gvendur smíðuðu sjálfir þetta skip árið 1960. Sól skein í heiði Alkunna er að Raufarhöfn er einstök frá náttúrunnar hendi, ákaflega skjólgóð og svo haganlega sköpuð að siglt er út úr höfninni nánast beint í suður. Þegar á Hólsvíkina var komið hófumst við strax handa við að draga fyrstu trossuna. Afli var frekar tregur en alls ekki algjör ör- deyða. Þegar tveir menn draga þorskanet þarf svolítið annað verklag en þegar fleiri eru í áhöfn. Á „Sigurvon“ var lóðrétt dráttarskífa á borðstokki og hún tengd hefðbundnu línuspili. Netin voru síðan lögð niður innan við borðstokk en væri fiskur í var honum kippt inn á borð og hann greiddur úr þar. Þegar við höfðum dregið fyrstu tross- una og lagt hana aftur taldi Gvendur tímabært að drekka morgunkaffið vegna þess að annar bátur hafði lagt yfir næstu trossu sem við ætluðum að draga og við urðum að bíða meðan hann drægi ofan af. Við sátum nú um stund úti og Gvendur hafði orð á því að þetta væri fyrsti dagurinn á vertíðinni sem hægt var að drekka kaffið utan dyra. Báturinn haggaðist varla, sól skein í heiði og Hóls- víkin var eins og heiðartjörn í logninu. Nú kom vélbáturinn „Kristinn“ upp að síðunni hjá okkur og Björn Hólmsteins- son sagði okkur að hann hefði verið að hlusta á tíutíu veðrið. Spáin gerði ráð fyrir snarvitlausu veðri og þar með að í lok veðurfregna hefði komið ný veður- lýsing frá Hornbjargsvita en á tíunda tímanum hafði brostið þar á norðanstór- viðri jafnframt því sem kólnað hafði ver- ulega. Við byrjuðum nú að draga næstu trossu. Þeir bræður höfðu fimm net í hverri trossu og má gera ráð fyrir að í tregfiski og blíðviðri eins og þarna var hafi verið svo sem hálftíma verk að draga hverja trossu. Á þriðja neti, því í miðjunni, varð skyndileg breyting á veðri, það byrjaði að snjóa. Aðra eins snjókomu hef ég aldrei séð, hvorki fyrr né síðar, þéttleik- inn var svo mikill og kornastærðin ein- stök svo að buldi í sjónum. Þetta stóð í eina eða tvær mínútur og svo brast hann á. Mig skortir orð til að lýsa þessum veðrabrigðum, svo snögg voru þau, orðtök eins og hendi væri veifað eru alltof hversdagsleg. Í minningunni var þetta einhvers konar árekstur, við sigld- um á vegg. Á sama tíma hrapaði hitinn. Ef við hefðum haft mæli og tíma til að horfa á hann hefðum við ábyggilega séð súluna síga um tíu gráður á fáum mínútum. Vindur var af norðnorðaustri og nú dugði ekkert venjulegt andóf heldur þurfti að keyra af töluverðu afli. Gvendur æpti á mig að skera á netin um leið og hann snaraðist inn í stýrishús en af meðfæddum þráa og heimsku hélt ég áfram að drösla netunum inn fyrir borð- stokkinn. Nú þýddi ekkert að hugsa um að greiða úr eða leggja niður. Eftir örfáar mínútur voru netin komin inn í bát og hægt var að leggja af stað heim á leið. Á þessari stuttu stund hafði rifið upp haugasjó svo að útilokað var að keyra í hliðskellunni sömu leið og við höfðum farið um morguninn. Gvend- ur keyrði því beint upp í veðrið til að komast sem lengst frá landinu. Hann gjörþekkti bátinn og leiðina og sýndi hér úrvalssjómennsku þegar hann sneiddi hjá stærstu sjóunum til að lágmarka ágjöfina. Í bátnum var ágæt lensidæla og aftan við stýrishús var öflug handdæla sem nú kom í góðar þarfir. Ég kom mér fyrir í skjóli við stýrishúsið og dældi án afláts með handdælunni enda veitti ekki af því í ágjöfinni. Þegar komið var vel norður fyrir Raufarhöfn sneri Gvendur undan og nú fórum við á hressilegasta lensi sem ég hef upplifað þráðbeint í Sundið og síðan beinustu leið inn að bryggju. Hinir netabátarnir tíndust inn um svipað leyti og við. Næsta hálftímann eða svo greiddum við úr netunum og gerðum að fiskinum. Snjókoman hafði færst í aukana, við hömuðum okkur ásamt hinum strákun- um og ræddum um veðrið og veiðarfærin en fengum okkur einhvern veginn ekki til að nefna það sem hvíldi á okkur öll- um, örlög Ragga Kross. Okkur var öllum ljóst að útilokað var að trilla á borð við „Sindra“ gæti komist austan af Hrauni til Raufarhafnar í þessu veðri. Menn héldu nú hver heim til sín til að láta vita að við hefðum þó alla vega sloppið lífs úr þess- um hvelli. Gvendur Lúlla kenndi mér að lesa í náttúruna, rifjar Hreinn upp. Hann var einstakur maður. - Mynd: Jón Páll Ásgeirsson Stundirnar á sjónum geta orðið ógleymanlegar og þó kannski engum eins og trillukarlinum sem andar með náttúrunni og finnur hjartslátt hafsins þegar hann á reki situr einn við færarúllurnar.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.