Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Qupperneq 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Qupperneq 40
Kyrrsett Þann 22. febrúar síðastliðinn varð flutn- ingaskipið Tide Carrier vélarvana undan Feistein, sunnan við Stavanger, í Noregi. Mikill viðbúnaður var við björgun skips- ins sem var við að reka á land þrátt fyrir að vera með akkeri úti en hluti áhafnar- innar var tekinn frá borði af öryggisá- stæðum, með þyrlum, ef ekki tækist að bjarga skipinu frá strandi. Um borð í skipinu voru 600 tonn af svartolíu og 300 tonn af gasolíu sem hefðu geta lekið út við strand og valdið miklu umhverfisslysi. Tókst að koma dráttartaug í skipið og draga það inn til hafnar í Gismarvik og kom skipið þang- að daginn eftir þar sem gera skyldi við skipið. Það var svo ekki fyrr en í byrjun apríl að Norska siglingamálastofnunin var fengin um borð til að ganga úr skugga um að gert hefði verið við allt sem kraf- ist hafði verið að framkvæmt yrði áður en skipið fengi að halda áfram för. Kom þá í ljós að til stæði að sigla skipinu til niðurrifs og var þegar haft samband við Umhverfisráðuneytið og lögreglu þar sem grunsemdir vöknuðu um að Pakistan væri áfangastaður skipsins. Var það þegar kyrrsett og mun þetta vera í fyrsta sinn sem norsk yfirvöld kyrrsetja skip á þessari forsendu. Við nánari rann- sókn á væntanlegri ferð skipsins, sem þá hafði verið nefnt Harrier, kom í ljós að það hafði verið tryggt til einnar ferðar sem skyldi ljúka með því að skipinu yrði siglt á land eða „beaching“ eins og það kallast á fagmálinu. Þykir norskum yfir- völdum ljóst á þessu orðalagi að förinni væri heitið til niðurrifsstöðvar sem ólög- leg er að selja skip til samkvæmt Evrópukröfum en Pakistan og Indland nota þá aðferð til niðurrifs skipa. Búið var að lesta skipið með brotajárni og hafa yfirvöld gefið það út að skipið fái ekki að fara úr höfn fyrr en að tryggt sé að áfangastaðurinn verði viðurkenndur aðili til niðurrifs á skipum þar sem farið er í einu og öllu eftir kröfum um eyðingu skipa. Margir vilja komast um borð Norska hafrannsóknastofnunin hefur verið með nýtt skip í smíðum sem á að stunda rannsóknir á pólarsvæðum en skipið hefur fengið nafnið Kronprins Ha- akon. Unnið hefur verið að því að undir- búa rekstur skipsins og eitt af því sem þarf að gera er að ráða áhöfn á skipið. Á síðasta ári auglýsti stofnunin 25 störf á skipum sínum og bárust hvorki meira né minna en 1679 umsóknir. Um borð í nýja Krónprinsinum verður 34 manna áhöfn og var ákveðið í ljósi fyrri auglýs- inga að áhafnardeildin fengi auka mann- skap til að svara spurningum áhuga- samra sem og að taka á móti umsóknum. Var sérstök símalína opnuð til að auð- veldara væri fyrir áhugasama að fá frek- ari upplýsingar um væntanleg störf. Á þeim tveimur vikum sem um- sóknarfresturinn stóð bárust 2290 um- sóknir í þau störf sem auglýst var eftir. Var mikið annríki í áhafnardeildinni þessar tvær vikur við að svara símtölum en við tók síðan gríðarleg vinna við að vinna úr umsóknunum. Mestur áhugi var á stöðum stýrimanna en 863 um- sóknir bárust um þær. Næst á eftir voru það umsóknir um hásetastörfin en það voru 528 umsóknir. Að sögn áhafnar- deildarinnar er meginþorri þeirra sem sóttu um að koma úr olíugeiranum en einnig eru umtalsvert margir fiskimenn meðal umsækjenda. Flestir þeirra sem sóttu um voru Norðmenn en einnig var talsvert um umsóknir frá skandinavísk- um sjómönnum. Ætli einhverjir Ís- lendingar hafi ekki örugglega sótt þarna um? Hluti skipverja þarf að hefja störf í haust en skipið á að vera full mannað í ársbyrjun næstkomandi. Skipið er 100 metrar að lengd, hannað af Rolls-Royce og mun kosta um 1,4 milljarða NKR. Er það í smíðum hjá skipasmíðastöð á Ítalíu og var það sjósett í febrúar. Verður þetta fullkomnasta rannsóknarskip í heimi en prófanir á skipinu hefjast í sumar en bú- ist er við að skipið verði afhent seint í haust. Skipstjóri skipsins, Karl Robert Røttingen, er bjartsýnn á að allar áætlan- ir standist og skipið verði komið til Nor- egs fyrir jól. Strandstöðvar hverfa Telenor hefur tilkynnt að 1. janúar 2018 muni þeir leggja niður strandstöðvarnar Vardø, Florø og Tjøme sem eru íslensk- um skipstjórnarmönnum, sem hafa siglt um strendur Noregs, góðu kunnar. Við lokun strandstöðvanna munu 24 missa vinnu sína en að vísu verður samtímis fjölgað á strandstöðvunum í Bodø og Rogalandi. Hluti þeirra sem missa vinnu sína við lokun stöðvanna þriggja munu þó fá tilboð um að flytja sig um set og ráðast til hinna tveggja stöðvanna. Öðr- um verður boðið að fara á eftirlaun eða gera starfslokasamninga. Með þessum breytingum munu jafnframt verða breytingar á nöfnum þeirra tveggja strandstöðva sem eftir verða og kallast þá Kystradio Sør (Rogaland) og Kystrad- io Nord (Bodø). Stöðvarnar þrjár sem lagðar verða niður hafa allar verið í notkun í nærri 100 ár og hafa gegnt gríðarlega stóru hlutverki í að tryggja ör- yggi sæfarenda allan þann tíma sem þær hafa starfað. Skálínan Þann 19. október 1956 bjargaði banda- ríska strandgæsluskipið Pontchartrain farþegum Pan American flugvélarinnar 40 – Sjómannablaðið Víkingur Utan úr heimi Hilmar Snorrason skipstjóri USCG Eagle var síðasta skip bandarísku Strandgæslunnar til að fá skástrikin sem hannað var af franskætt- aða hönnuðinum Loewy.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.