Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Page 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Page 24
24 – Sjómannablaðið Víkingur Þarna var lítil baðstofa, fjögur stafgólf og tvö uppbúin rúm. Mæðgurnar vildu að við gistum hjá þeim en rúmplássið var lítið fyrir tvo stóra karlmenn. Við af- þökkuðum því gott boð og fórum yfir á hinn bæinn sem stóð auður en meistari Kjarval átti hann og dvaldi þar stundum er hann stundaði list sína undir Jökli. Um morguninn fórum við í kotið til mæðgnanna og drukkum kaffi og var þá komið gott veður en skýjað. Mummi fór að taka myndir en ég skrapp í Djúpalón að reyna við Fullsterkan og í þriðju at- rennu kom ég honum upp á hrauns- nefið. Nú var steinninn þurr og ég óþreyttur. Gamlar syndir Eftir að hafa kvatt mæðgurnar var haldið áfram norður eftir. Laust eftir hádegi komum við þar sem heitir Garðar og svo skemmtilega vildi til að þar var til húsa kona að nafni Rósa en hún hafði verið vinnukona í mörg ár í Kúldshúsi þar sem við Mummi ólumst upp. Okkur var tek- ið tveimur höndum og eftir að hafa þeg- ið góðgerðir að Görðum var haldið áfram norður eftir. Við höfðu ekki farið langt þegar við heyrðum hróp og köll neðan að og að okkur steðjaði lítill kall með skömmum. Hann sagðist vera einbúi og búa á Saxhóli – og ég hef verið póstur í mörg ár, sagði hann, og mér líkar það illa að allir sem hér fara um koma við á Görðum en enginn á Saxhóli. Við tókum upp pela og gáfum karlin- um snaps. Að skilnaði gáfum við honum pelann og skildum við hann ánægðan. Áfram var haldið. Við höfðum þó ekki farið langt þegar maður á jeppa keyrði fram á okkur og spurði hverra mann við værum. Þegar hann heyrði fóstra minn nefndan lifnaði hann allur við og sagði: Við bræður vorum hjá honum á skútu mörg úthöld. Hann sagði heita Guðmundur og bróðirinn Snæbjörn og að þeir byggju að Klettsbúð á Hellissandi. Við fórum upp í jeppann hjá Guð- mundi og heim í Klettsbúð þar sem Snæbjörn tók á móti okkur tveim hönd- um. Þeir fengu vinkonu sína til þess að baka pönnukökur og um kvöldið var boðið upp á steikt lambalæri og síðan skrafað um hitt og þetta yfir bragðbættu kaffi fram á nótt. Við sváfum fram eftir um morguninn, því ekkert lá á. Það var ekki fjara fyrr en um hádegi. Við þáðum góðgerðir um morguninn og rétt fyrir hádegi keyrði Guðmundur okkur inn að Enni og þar kvöddum við hann og gengum fjöruna fyrir Enni til Ólafsvíkur. Þegar þangað kom fórum við til séra Magnúsar, en Mummi og Anna dóttir hans voru skólasystkini úr Kenn- araskólanum. Séra Magnús var ekki heima, hann var að líta á bilaða vél í bát. Anna var hins vegar heima og tók hún okkur tveim höndum. Við gistum þarna næstu nótt og um morguninn, héldum við frá Ólafsvík og þrömmuðum inn Fróðárhreppinn. Þegar við nálguðumst Brimilsvelli vildi Mummi kíkja við á höfuðbólinu en ég sagði að að gætum við ekki gert. Vegna hvers? spurði Mummi. Vegna þess, svaraði ég, að þegar ég var unglingur á Bjarnarhöfn kom Ólafur á Brimilsvöllum þangað. Hann var með tvo til reiðar, hryssu og klár, og ætlaði með báti inn í Stykkishólm og kvaðst verða tvö daga í burtu. Nú bað hann mig og frænda minn, Jón, að passa fyrir sig hrossin og tók fram að hryssan mætti ekki koma nálægt fola. Við settum hrossin í girðingu við heimatúnið. Morg- Greinarhöfundur í Stapagati. Stykkishólmur. Stykkishólmur.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.