Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Blaðsíða 49
Sjómannablaðið Víkingur – 49
*
Vitaskuld rann ritstjóra vorum blóðið
til skyldunnar og hafði samband við
Anitu Elefsen, safnstjóra Síldarminja-
safnsins á Siglufirði, sem leysti fljótt og
vel úr spursmálinu. Myndin er tekin á
Sólbakka við Önundarfjörð, sagði Anita,
og staðfesti þannig tilgátu Jóns Páls.
Verksmiðjurekstur á Sólbakka á sér raun-
ar langa sögu sem nær aftur á 19. öld en
það var ekki fyrr en 1935 að Síldarverk-
smiðjur ríkisins tóku þar lyklavöld og þá
fyrst hófst karfabræðsla á Flateyri. En
karfi er einmitt eitt lykilorða í að greina
hina títtnefndu ljósmynd. Hún sýnir
nefnilega ekki síld heldur karfa eins og
glöggir lesendur Sjómannablaðsins Vík-
ings sáu þegar í stað.
*
Enn er þess að geta að lögmaðurinn
Jónas Haraldsson – sem hefur meiri
húmor en aðrir íslenskir kollegar hans –
skrifaði og sagðist svo sem ekki sjá neina
ástæðu til að veita ritstjóra vorum yfir-
halningu. Að minnsta kosti ekki neina
líkri þeirri sem sýslumaðurinn í Hnappa-
dalssýslu fékk forðum frá vinnumanni
sínum en sá var í veri og líkaði illa
vistin. Umræddur „höfðings manns
þénari“ skrifaði og skóf ekki utan af
hlutunum:
„Heiðarlegum, háttvirtum, hágöfug-
um, sóma gæddum, velskrýddum,
dyggðum prýddum sjálfs herra kóngsins
stórmegtugum sýslumanni yfir allri
Hnappadalssýslu, hverri hann með
rögg og stjórn ríkilega ráðgjörir.
Í heiðri hafandi,
hátt vel agtandi,
í sældum sitjandi,
sinn hest vel alandi,
kotunginn kúgandi,
böðlana brúkandi,
með byssum æðandi,
sá bölvaði blótfjandi.
Það er nú efni orðanna, ólukku hús-
bóndi, að ég ræ daglega út á sjóinn, til
að fá nokkuð ofan í bannsettar horkind-
urnar þínar, og er þá ekki á mér þur
þráður heldur en kæfðum ketti. Er ég þá
líkari fátækum förumanni heldur en
háttvirtum höfðings manns þénara. Segi
ég þér það í alvarlegum jötunmóð, að fái
ég ekki brókina og skinnstakkinn, lop-
ann teygðan eða togann spunninn, þá
strýk ég til skollans burt úr skiprúminu.
Þér er ekki þjónandi né fyrir þig
vinnandi, þessa heims né annars.
Stattu svo stásslega,
drekktu djarflega,
þar til baldurinn bærist
og bikarinn tæmist.
Sama segir hann Jón Ormsson og ég.
Og vertu nú ekki kvikinskur, helviskur.“
Þessi kvörtun – eða öllu heldur hótun
– er í heimildum kallað Hrómundarbréf,
væntanlega eftir höfundi. Gerum því að
minnsta kosti skóna þar til annað kemur
í ljós.
*
Ritstjóri þakkar athugasemdir og
ábendingar og hvetur lesendur Víkings
til eftirbreytni. Hikið ekki við að leiðrétta
þar sem ritstjóra verður á, aukið við frá-
sagnir sem blaðið flytur, segið af ykkar
eigin reynslu eða í sem stystu máli:
Gerum blaðið okkar enn fjölbreyttara
og skemmtilegra.
Vatnagarðar 16, Reykjavík, s. 568 6625, velarehf.is
Við látum dæluna ganga
• Dælur
• Dæluviðgerðir
• Ásþétti
• Rafmótorar
• Vélavarahlutir
Viðgerðir • Tæringarvarnir
Keramikhúðun
Fyrir Eftir