Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Qupperneq 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Qupperneq 32
32 – Sjómannablaðið Víkingur í vatni eða kjúklingasoði og þykkið sósuna. Berið fram með soðnu grænmeti. Rjómasveppasósa 2 til 3 matskeiðar smjör eða olía ½ meðalstór saxaður laukur 150 gröm sveppir, skornir í sneiðar ½ bolli rjómi ½ bolli kjúklingasoð 2 matskeiðar maísmjöl Hitið smjörið eða olíuna í potti eða á pönnu. Bætið lauknum út í. Kraumi í 2 til 3 mínútur. Bætið sveppunum út í og látið krauma í 2 til 3 mínútur. Bætið vökvanum í og látið sjóða í 2 til 3 mínútur. Smakkið til. Leysið maísmjölið upp í vatni eða kjúklingasoði og þykkið sósuna. Borið fram með soðnu grænmeti og grófu brauði. Spergilsósa 2 til 3 matskeiðar smjör eða olía ½ meðalstór saxaður laukur 200 gr. grænn spergill ferskur, skorinn á ská í þunnar sneiðar ½ bolli rjómi ½ bolli kjúklingasoð 2 matskeiðar maísmjöl Hitið smjörið eða olíuna í potti eða á pönnu. Bætið lauknum út í og látið krauma í 2 til 3 mínútur. Bætið sperglinum út í og kraumið í 1 til 2 mínútur. Bætið vökvanum í og látið sjóða í 2 til 3 mínútur. Smakkið til. Leysið maísmjölið upp í vatni eða kjúklingasoði og þykkið sósuna. Borið fram með soðnu grænmeti. Agúrku- og kapersmeðlæti 2 til 3 matskeiðar smjör eða olía ½ meðalstór saxaður laukur 1 agúrka, skorin langsum, kjarninn fjarlægður og skorinn í sneiðar 1 lítið glas kapers 50 gr. óbráðið smjör Hitið smjörið eða olíuna í potti eða á pönnu. Bætið lauknum út í. Látið krauma í 2 til 3 mínútur. Bætið agúrkunum út í og síðan kapersinum og safanum líka. Látið sjóða upp og bætið óbrædda smjörinu út í. Þegar smjörið er bráðnað er meðlætið tilbúið. Berið fram með soðnum kartöflum og spergilkáli. Rækjusósa 2 til 3 matskeiðar smjör eða olía ½ meðalstór saxaður laukur ½ bolli rjómi ½ bolli kjúklingasoð 200 gr. rækjur 2 matskeiðar maísmjöl Hitið smjörið eða olíuna í potti eða á pönnu. Bætið lauknum út í og kraumið í 2 til 3 mínútur. Bætið vökvanum út í og látið suðuna koma upp. Leysið maís- mjölið upp í vatni eða kjúklingasoði og þykkið sósuna. Bætið rækjunum út í, bragðið til og takið af hitanum um leið og suð- an kemur upp. Rækjurnar eiga ekki að sjóða. Berið fram með soðnum kartöflum og gulrótum. Appelsínusmjörsósa ½ bolli appelsínuþykkni 150 grömm óbrætt smjör Skerið smjörið í bita. Setjið appelsínuþykknið og smjörið í pott og yfir hálfan hita. Hrærið í þar til allt smjörið er bráðnað. Þá er sósan til, má ekki sjóða. Berið fram með soðnu, blönduðu grænmeti. Bananameðlæti 2 til 3 matskeiðar smjör 2 bollar eplasafi 2 gulir afklæddir bananar og skornir í tæplega 1 cm. sneiðar 1-2 mats maísmjöl (Maizena) Hitið smjörið á pönnu. Athugið, smjörið má ekki brúnast. Bætið bananasneiðunum út í og rétt hitið. Bætið eplasafanum í og látið suðuna koma upp. Leysið maísmjölið upp í eplasafa eða kjúklingasoði og þykkið sósuna. Berið fram með soðnu spergilkáli og gulrótum. Eplakarrýsósa 3 til 4 matskeiðar smjör eða olía ½ meðalstór saxaður laukur 1 grænt epli. Flysjað, kjarnað og skorið í litla teninga 1 til 2 matskeiðar karrý ½ bolli rjómi ½ bolli kjúklingasoð 2 matskeiðar maísmjöl Hitið smjörið eða olíuna í potti eða á pönnu. Bætið lauknum út í. Látið krauma í 2 til 3 mínútur. Bætið eplinu út í og kraumið í rúma mínútu. Bætið karrýinu út í og hrærið saman við í 10 til 15 sekúndur. Bætið vökvanum út í og látið sjóða í 3 til 4 mínútur. Bragðið til. Leysið maísmjölið upp í vatni eða kjúklingasoði og þykkið sósuna. Berið fram með soðnum hrísgrjónum og grófu brauði. Mynd í grunni: Jón Páll Ásgeirsson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.