Fréttablaðið - 17.08.2022, Side 24

Fréttablaðið - 17.08.2022, Side 24
Óskalög við orgelið fara fram í Skáholtskirkju í kvöld. Laga- listinn er afar fjölbreyttur, allt frá Queen til Bach. Þá stendur einnig yfir söfnun fyrir flygli í kirkjuna. birnadrofn@frettabladid.is „Við byrjuðum á þessu í fyrrasumar og þetta varð strax mjög vinsælt,“ segir Jón Bjarnason, organisti í Skálholti, um við- burðinn Óskalög við orgelið sem fram fer í Skálholtskirkju klukkan átta í kvöld. „Ég spila á orgelið og við erum með lista með yfir hundrað lögum sem fólk getur valið sér að heyra og svo geta allir sungið með,“ segir Jón. Lagalistinn er sérlega fjölbreyttur en þar má meðal annars finna Söknuð Vilhjálms Vil- hjálmssonar, Mamma Mia! frá Abba, Star Wars-þemalagið og Tríósónötu númer 1 í Es-dúr eftir Bach. Spurður að því hvað sé vinsælasta lagið segir Jón svarið við því auðvelt. „Það er Vikivaki eftir Valgeir Guðjóns- son, sem margir þekkja kannski betur sem Sunnan yfir sæinn breiða, það er langvinsælasta lagið,“ segir hann. „Þar á eftir kemur svo Bohemian Rhapsody með Queen, þarna sérðu strax hvað þetta er fjölbreytt,“ bætir hann við. Jón segir að fjöldi fólks leggi leið sína í Skálholt til að hlýða á Óskalög við org- elið og syngja með. Mest sé það fólk úr sveitinni í kring en þó sé einnig algengt að fólk geri sér ferð þangað. „Þetta er mjög fjölskylduvænt og allir velkomnir,“ segir Jón. „Það er mjög fjölbreyttur hópur sem kemur hingað og einu sinni kom meira að segja heill karlakór og tók nokkur lög,“ bætir hann við. Jón segir það skemmtilega upplifun fyrir gesti að fá að heyra ólíka tónlist hljóma á orgelið. „Orgel er svo magnað hljóðfæri og er eiginlega eins og heil hljómsveit. Það er svo gaman fyrir fólk að heyra annað en orgeltónlist og sálma spilað á það,“ segir hann. Í Skálholtskirkju er orgelið tignar- lega sem Jón talar um en í kirkjunni hefur aldrei verið píanó. Nú stendur yfir söfnun þar sem sem safnað er fyrir f lygli í kirkjuna. Nýr f lygill er sagður muna lyfta tónlistarlífi kirkjunnar í nýjar hæðir og auka framboð á mis- munandi tónleikum í kirkjunni. Tekið verður við frjálsum framlögum í flygil- sjóðinn í kvöld svo þau sem vilja geta lagt söfnunni lið. En hvað kostar nýr f lygill? „Hann kostar mjög mikið. Svona átján milljónir,“ segir Jón. „En við erum komin með yfir fimm milljónir svo það er góð byrjun,“ bætir hann við. n Óskalög við orgelið í Skálholti Fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Skálholt til að hlýða á Óskalög við orgelið, þegar mest hefur verið hafa mætt um hundrað manns. MYND/AÐSEND Jón Bjarnason, organisti í Skálholti. Ég spila á orgelið og við erum með lista með yfir hundrað lögum sem fólk getur valið sér að heyra. Jón Bjarnason 1819 Jón Árnason, þjóðsagnasafnari fæðist. 1943 Robert De Niro leikari fæðist. 1946 Valgerður Þorsteins­ dóttir verður fyrsta íslenska konan til að ljúka einkaflugmanns­ prófi. 1970 Bandaríkin sökkva 418 taugagasgeymum í Golfstrauminn við Bahamaeyjar. 1980 Heklugos hefst en stendur aðeins í nokkra daga. 1982 Fyrstu geisladiskarnir fara á markað í Þýskalandi. 1998 Fjármálakreppan í Rússlandi hefst. 2017 Maður ekur sendiferðabíl inn í mannfjölda á Römbl­ unni í Barcelona með þeim afleiðingum að þrettán látast. Merkisatburðir Á þessum degi árið 1993 var Bucking­ ham­höll í London opnuð almenningi í fyrsta sinn. Elísabet Englandsdrottn­ ing ákvað að opna höllina og rukka gesti um aðgangseyri til að fjármagna enduruppbyggingu Windsor­kastala sem brann árið á undan. Gert var ráð fyrir að um 7.500 manns myndu mæta og berja höllina augum þá daga sem hún var opin og höfðu yfirmenn hallarinnar gert ráð fyrir því að þegar dyrnar yrðu opnaðar biðu þúsundir manna fyrir utan. Raunin varð þó önnur og einungis um 900 manns biðu við dyrnar. Þrátt fyrir að fjöldi gesta í höllinni ylli vonbrigðum eyddi hver og einn þeirra þar meiri tíma en búist hafði verið við og sala á minjagripum og gjafavörum fór fram úr björtustu vonum. Gestirnir keyptu tebolla, silki­ bindi og kristalsglös með myndum af konungsfjölskyldunni og með sölu þeirra muna kom meiri peningur í kassann en með aðgangseyrinum. Flestir gestanna sem komu í höllina voru ánægðir og yfir sig hrifnir af íburðarmikilli höllinni. Það sem sætti þó gagnrýni var að drottningin sjálf var hvergi sjáanleg. Daginn sem höllin var opnuð var Elísabet drottning við útför Baldvins Belgíukonungs. n Þetta gerðist: 17. ágúst 1993 Almenningur fékk loks að skoða höllina Hér má sjá skemmdirnar sem urðu á Windsor­kastala í brunanum árið 1992. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorvaldur Sigurjón Helgason lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 29. júlí. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 19. ágúst kl. 15.00. Helga Ingvarsdóttir Bjarni Þór Þorvaldsson Ingvar S. Þorvaldsson Anna María Bjarnadóttir Helgi B. Þorvaldsson Elín H. Ragnarsdóttir Rúnar Sólberg Þorvaldsson Helga Karlsdóttir Valdimar T. Þorvaldsson Adrian Estorgio Sólveig Þrúður Þorvaldsdóttir Reynir Þór Valgarðsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Emil L. Guðmundsson Skúlagötu 40, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 7. ágúst, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 19. ágúst nk. kl. 15.00. Jóna Lára Pétursdóttir Ellen Vestmann Emilsdóttir Emil Emilsson Steinunn Baldursdóttir Jóhannes G. Harðarson Guðný Baldursdóttir Lilja Margrét Hreiðarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, Guðmundur Hansson veitingamaður, Furuhjalla 5, Kópavogi, varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn 5. ágúst. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 22. ágúst kl. 13. Haraldur Guðmundsson Bryndís Bjarnadóttir Albert Þór Guðmundsson Snædís Björt Agnarsdóttir Stefán Guðmundsson Guðbjörg Lilja Svavarsdóttir og barnabörn. Sæunn Halldórsdóttir Sigrún Bryndís Hansdóttir Hrund Apríl Guðmundsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Sigfús Valgarð Stefánsson vélstjóri frá Hofsósi, lést á Landspítalanum 11. ágúst. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveitina Gretti, Hofsósi, eða hjartadeild Landspítalans. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjartadeildarinnar fyrir hlýhug í okkar garð. Fanney Björk Björnsdóttir og fjölskylda. TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 17. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.