Fréttablaðið - 17.08.2022, Síða 27
Sumt fólk
er með
ákveðnar
fyrir fram
gefnar
hugmyndir
um að
klassískir
tónleikar
séu eitt-
hvað voða
alvarlegt
og leiðin-
legt.
Andrew J. Yang
Bandaríski píanóleikarinn
Andrew J. Yang fluttist á
Patreksfjörð í miðjum heims-
faraldri þar sem hann stofn-
aði Píanóhátíð Vestfjarða,
fyrstu tónlistarhátíðina á
Vestfjörðum sem er tileinkuð
slaghörpunni.
Andrew J. Yang er Bandaríkjamaður
fæddur og uppalinn í Kaliforníu.
Andrew hóf píanónám fimm ára
að aldri og stundaði háskólanám
í hljóðfæraleik við háskóla í Kali-
forníu, þar á meðal doktorsnám
við USC Thornton School of Music.
Þegar heimsfaraldurinn skall á
ákvað Andrew að söðla um og flutt-
ist búferlum á Patreksfjörð.
„Ég var í doktorsnámi í USC í Los
Angeles og hafði verið að spila mjög
mikið. Þegar Covid skall á áttaði
ég mig á því að allt slíkt var að loka
þannig að í stað þess að bíða veir-
una af mér í Kaliforníu ákvað ég að
sækja um vinnu annars staðar þar
sem væru minni samkomutakmark-
anir. Ég sótti um störf á Íslandi og í
Hong Kong og svo fékk ég vinnu á
Patreksfirði og ákvað að flytja þang-
að. Ég ætlaði mér fyrst bara að vera
þar í eitt misseri, tvö í mesta lagi, en
síðan ákvað ég bara að vera hér.“
Andrew starfar sem píanó- og
fiðlukennari við Tónlistarskóla
Vesturbyggðar sem er starfræktur
bæði á Patreksfirði og Bíldudal.
Spurður um hvort honum finnist
tónlistarlífið á Vestfjörðum vera
blómlegt segir hann:
„Það er það klárlega á Ísafirði þar
sem er mjög sterk tónlistarhefð og
hér á Patreksfirði er það greinilega
að byggjast upp. Sem dæmi þá er
yfirmaður minn, skólastjóri tón-
listarskólans Kristín Mjöll Jakobs-
dóttir, virkilega fær fagottleikari.
Hún spilaði með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands, lærði við Yale og spil-
aði í Fílharmóníusveit Hong Kong.
Þannig að tónlistarlífið er virkilega
að byggjast upp hér og börnin hér
hafa mikinn áhuga á tónlist.“
Skorti lifandi tónlistarflutning
Að sögn Andrews fékk hann hug-
myndina að því að stofna Píanó-
hátíð Vestfjarða þegar hann áttaði
sig á því að á Patreksfjörð vantaði
algjörlega lifandi tónlistarflutning
á klassískri tónlist og djasstónlist
en hann hefur sjálfur komið fram
á fjölmörgum tónlistarhátíðum
víða um heim, í Norður-Ameríku
og Evrópu.
„Ég hugsaði með mér að það væri
nokkuð áhugavert að á Íslandi væri
engin píanóhátíð, hvað þá á Vest-
fjörðum. Mér fannst það hljóma
eins og góð byrjun að stofna hátíð
hér og bjóða nokkrum af færustu
píanóleikurum heims, kollegum
mínum og fólki sem ég þekki,
hingað vestur. Það gæti bæði verið
frábært tækifæri fyrir fólkið sem býr
hérna og sjálfa listamennina af því
þetta er virkilega fallegt svæði og ég
held að listamennirnir geti fundið
mikinn innblástur á stað eins og
Patreksfirði,“ segir hann.
Heimsklassa píanóleikarar
Píanóhátíðin fer fram á Tálknafirði,
Patreksfirði og Ísafirði og auk And-
rews koma fram tveir þekktir tón-
listarmenn sem hann hefur fylgst
með frá unga aldri, suður-kóreski
píanóleikarinn og tónskáldið Myung
Hwang Park og ungversk-bandaríski
píanóleikarinn Peter Toth.
„Ég hef þekkt Myung Hwang Park
í nákvæmlega tíu ár en við spiluðum
saman á tónlistarhátíð á Spáni fyrir
áratug. Í gegnum árin hefur hann
þróast meira í áttina að því að vera
tónskáld, hann kemur enn fram
sem píanóleikari en hefur skapað
sér feril sem tónskáld í París. Ég hef
pantað verk frá honum og þannig
höfum við haldið sambandi. Hann
mun frumf lytja nýtt píanóverk,
Tales Under the Snow sem ég pant-
aði af honum, á hátíðinni,“ segir
Andrew og bætir því við að Park
sé eitt efnilegasti unga tónskáldið
í dag.
Peter Toth er ung verskætt-
aður píanóleikari sem hlaut nýlega
bandarískan ríkisborgararétt. Þeir
Andrew kynntust á tónlistarhátíð í
Stofnaði alþjóðlega píanóhátíð á Patreksfirði
Andrew J.
Yang segir
tónlistarlífið
á Patreksfirði
vera í blóma og
vonast til þess
að vekja athygli
Vestfirðinga á
píanótónlist.
MYND/AÐSEND
Ungversk-bandaríski píanóleikarinn Peter Toth er meðal þeirra sem koma
fram á Píanóhátíð Vestfjarða í vikunni. MYND/AÐSEND
tsh@frettabladid.is
Tónlistarhátíðin Ung Nordisk
Musik (UNM) fer fram í Reykjavík
dagana 15. til 21. ágúst. UNM var
stofnuð árið 1946 og er því ein elsta
tónlistarhátíð sinnar tegundar.
Hátíðin f lakkar á milli Norður-
landanna og er þetta í tíunda skiptið
sem hún er haldin hérlendis.
Markmið UNM er að kynna verk
eftir yngstu kynslóð tónskálda og
hljóðlistamanna frá Norðurlönd-
um og Eystrasaltslöndunum en í
ár taka 39 tónskáld þátt frá Íslandi,
Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finn-
landi, Eistlandi, Lettlandi og Litáen.
Þemað í ár er „co·structing“, nýyrði
sem lýsir framsækinni sköpun sem
byggist á þverfaglegu samstarfi úr
ólíkum áttum.
„Þetta þema er sprottið af því að
það hafa orðið ýmsar breytingar í
tónsköpun bæði í stærra samhengi
og á þessari hátíð á síðastliðnum
árum og áratugum. Sem hátíð sem
styður við nýja tónlist höfum við
náttúrlega verið svolítið mikið
tengd við akademíuna og klassískar
tónsmíðar. En í gegnum árin sér
maður að tónskáld vilja mörg vinna
þvert á miðla,“ segir Sóley Sigurjóns-
dóttir, einn skipuleggjenda.
Að sögn Sóleyjar rímar þemað
vel við íslensku tónlistarsenuna en
samsköpun og samvinna tónskálda
og tónlistarf lytjenda hefur lengi
verið óaðskiljanlegur hluti hennar.
„Mér finnst Ísland svo sérstakt
í þessu að því leyti að það eru allir
svolítið í öllu og snerta á mismun-
andi flötum. Við erum að reyna að
tækla það að tónskáld eru ekki bara
tónskáld heldur líka f lytjendur og
kannski líka að mála myndir eða
gera mismunandi hluti,“ segir hún.
Í aðdraganda hátíðarinnar í ár
var haldin sérstök listamannadvöl
á Íslandi í mars í fyrsta sinn í sögu
UNM.
„Þar voru 19 tónskáld sem bjuggu
til 18 ný verk sem verða svo frum-
f lutt núna á hátíðinni. Þetta var
listamannadvöl sem var sérstak-
lega miðuð að samstarfi á milli tón-
skáldanna eða við flytjendur eða að
vinna á skemmtilegum stöðum,“
segir Sóley.
Á UNM 2022 munu áhorfendur
upplifa fjölbreytt úrval nýrrar tón-
og hljóðlistar en hátíðin er haldin
víðs vegar um höfuðborgarsvæðið
í hefðbundnum rýmum á borð
við Mengi, Iðnó og Tjarnarbíó, auk
óhefðbundinna rýma á borð við
Rauðhóla og Gróttuvita. Dagskráin
samanstendur af 24 viðburðum,
tónleikum, sýningum, pallborðs-
umræðum, kynningum, örvinnu-
stofum og vettvangsferðum. Nálgast
má dagskrána í heild á heimasíðu
hátíðarinnar: ungnordiskmusik.is. n
Framsækin hátíð ungra tónskálda
Sóley Sigurjóns-
dóttir, einn
skipuleggjenda
UNM
Nítján tónskáld tóku þátt í fyrstu listamannadvöl UNM í mars. MYND/AÐSEND
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
Austurríki þegar sá síðarnefndi var
fimmtán ára.
„Hann er um það bil tíu árum
eldri en ég og hann er örugglega ein
af ástæðunum fyrir því að ég varð
píanóleikari. Ég man eftir því að
hafa heyrt hann spila á tónleikum
þegar ég var fimmtán ára, ég varð
einstaklega snortinn og það virki-
lega hvatti mig til að leggja meiri
metnað í að æfa mig á píanóið,“
segir Andrew og bætir því við að
ferill Toth sé á miklu flugi um þessar
mundir en hann mun koma fram á
sínum fyrstu einleikstónleikum í
Carnegie Hall eftir tvo mánuði.
Aðgengileg og tilfinningaleg
Er mikill áhugi fyrir píanóhátíðinni
meðal Vestfirðinga?
„Ég held að það sé þegar ákveð-
inn hópur fólks sem hefur áhuga á
svona viðburðum. En ég held að ein
af hindrununum, sem eru meira að
segja til staðar í stórum borgum,
sé að sumt fólk er með ákveðnar
fyrir fram gefnar hugmyndir um
að klassískir tónleikar séu eitthvað
voða alvarlegt og leiðinlegt. Þann-
ig að það er viss áskorun að vekja
athygli samfélagsins. En ég vona að
í gegnum árin muni okkur takast að
sýna fólki hversu aðgengileg þessi
tónlist er og að hún er ekki tilgerðar-
leg heldur mjög tilfinningaleg,“ segir
Andrew.
Píanóhátíð Vestfjarða fer fram
17. til 21. ágúst. Nánari upplýs-
ingar má finna á heimasíðunni,
icelandpianofestival.com. n
MIÐVIKUDAGUR 17. ágúst 2022 Menning 23FRÉTTABLAÐIÐ